Víkurfréttir - 19.08.2020, Page 36
– Hvert var ferðinn heitið í
sumarfríinu í ár?
Ákveðið var að fara austur á land
í sumarfríinu og farið var suður-
leiðina austur og svo norðurleiðina
til baka.
– Hvaða ferðamáta notaðir þú?
Ferðast var á húsbíl en ég hef átt
húsbíl frá árinu 1999 og er þetta
þriðji bílinn sem ég á.
– Var ferðalagið um landið
skipulagt fyrirfram eða var
fríið látið ráðast af „veðri og
vindum“?
Það var búið að fylgjast með
spánni svoldið áður en átti að
leggja í hann og leist okkur ágæt-
lega á að fara austur á bóginn og
langaði mig til að fara til Norð-
fjarðar en þar liggja rætur mínar í
móðurætt.
En ekkert skipulagt bara keyrt
af stað og svo kemur þetta bara
af sjálfu sér, hvar maður stoppar,
hvað er skoðað og hversu lengi
dvalið er á sama stað, veðrið hefur
dálítið mikið um það að segja.
Það er nú alltaf skemmtilegra að
ferðast um landið ef maður er svo
heppinn að fá gott veður.
Byrjað var að fara um Suður-
landið því þar eru svo margar fal-
legar perlur.
Við byrjuðum fríið á Hellu og
fórum svo á fallegu staðina sem
eru á leiðinni til Víkur í Mýrdal og
við nutum þess að labba um fal-
legu perlurnar okkar á þessari leið
gistum þar eina nótt og héldum
svo til Kirkjubæjarklausturs þar
sem við stoppuðum í tvo daga.
Heimsóttum Höfn í Hornarfirði,
keyrðum þar um plássið og skoð-
uðum m.a. Steinagarðinn sem er
kynningarreitur fyrir jarðfræði
svæðisins og þar eru kynntar
nokkrar bergtegundir Suðaustur-
lands með hressilega stórum grjót-
hnullungum og grettistökum.
Þessi steingarður er við nátt-
úrustíginn, sem er göngustígur
fyrir heimamenn og liggur frá Ós-
landshæð og inn að golfvellinum
á Höfn, þessi gönguleið er rómuð
fyrir fallegt útsýni yfir fjörðinn til
Vatnajökuls.
Ísland er svo
fallegt land og
þú sérð alltaf
eitthvað nýtt
Netspj@ll
Soffía G. Ólafsdóttir segir lesendum Víkurfrétta frá
sumarfríinu innlands árið 2020 en hún og Ólafur Björg-
vinsson fóru hringinn í kringum Ísland á húsbíl í sumar.
Óli við Seljalandsfoss.
36 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.