Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 35
Aleksandra Kołtunowska sér um
æfingarnar fyrir pólsku krakkana
hjá júdódeild Njarðvíkur. Hún
hefur æft júdó í sautján ár, síðan
hún var fimm ára gömul en þá
fór pabbi hennar með hana á sína
fyrstu æfingu. Í dag er hún með
annað dan [2. gráða af svarta
beltinu] og hefur talsverða reynslu
af keppni og þjálfun. „Ég hef keppt
mikið og hef m.a. lent í fimmta sæti í
Evrópukeppni,“ segir Aleksandra.
– Hvernig stendur á því að þú ert að þjálfa
hér á Íslandi?
„Kærastinn minn fór að vinna hérna og ég
kom í kjölfarið. Ég hafði þjálfað börn og full-
orðna í Póllandi í þrjú ár auk þess að vinna
á leikskóla. Ég hef ekki getað fengið vinnu á
Íslandi vegna þess að ég tala ekki tungumálið
og þar sem ég hafði enga vinnu þá sóttist ég
eftir að taka að mér æfingar hér. “
– Hvernig finnst þér þetta hafa gengið?
„Þetta hefur gengið mjög vel, það fjölgar í
hópnum og þau eru farin að nálgast fjörutíu
iðkendur. Við byrjuðum að æfa í febrúar, þá
voru þau bara fimm.“
Þær fyrstu í hópnum
Þær Lena Andrejenko, Gabriela Chojnacka og
Gabriela Sobczak aðstoðuðu okkur í viðtalinu
og túlkuðu það sem fram fór. Þær voru með
fyrstu iðkendunum sem fóru að æfa í pólska
hópnum. Stelpurnar sögðu júdó vera mjög
skemmtilegt og eftir að þær byrjuðu að æfa
fóru fleiri að bætast í hópinn. „Við byrjuðum
og svo komu vinir okkar og allt í einu vildu
allir æfa saman,“ segja þær stöllur og brosa út
að eyrum.
Pólsk afreks-
íþróttakona
Aleksandra Kołtunowska
Þær Lena Andrejenko, Gabri
ela
Chojnacka, Aleksandra Kołtu
nowska,
þjálfari, og Gabriela Sobczak
ánægðar
eftir góða æfingu pólska hóp
sins.
vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 35