Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 54
– Skipulagðir þú sumarfríið fyr-
irfram eða var það látið ráðast
af veðri?
Sumt þarf að skipuleggja fyrir-
fram, t.d. ef maður ætlar að leigja
sér húsnæði. Annað kemur af
sjálfu sér, til dæmis ferðir hér um
Suðurnesin.
– Áttu þér uppáhaldsstað til að
sækja heim innanlands?
Einn af uppáhaldsstöðum mínum
hér er Stóra-Sandvíkin, þangað
fer ég oft og sæki mér orku og
gleði í fjöruna og sjóinn! Þetta er
falinn fjársjóður og ég vona að
sem fæstir fái að vita það!
Þá fer ég oft austur um og ek
þá Suðurstrandaveginn. Kem
stundum við í hverfinu við
Strandarkirkju. Fæ mér heitt
kakó og vöfflur! Á kæra systur
í Keflavík og við förum saman
vítt og breitt um svæðið. Hún
þekkir vel til og hefur frætt mig
um margt. Ég uppgötvaði Stóru-
Eldborg fyrir nokkrum árum og
gekk á hana. Hún er undur sem
fáir vita um þótt hún sé nánast í
alfaraleið! Sama á við um margar
perlur hér á Suðurnesjunum og
kannski er best að láta sem fæsta
vita af þeim.
Annar uppáhaldsstaður er
Grindavík og nesið þar utar. Fæ
mér humarsúpu á Bryggjunni og
eða heitt súkkulaði og mareng-
stertu! Jummí! Í sumar gekk ég
á Þorbjörn en varð ekki var við
neina lyftingu þar!
Svo fékk ég lánað bjálkahús í
Vaðlaheiðinni fyrir norðan í júlí.
Þar var ég með elstu systur minni
í eina fjóra daga, við ókum m.a. út
í Grenivík, komum við í Laufási
og kíktum í Nes í Höfðahverfi
en þar bjó langalangafi okkar,
Einar Ásmundsson í Nesi. Einnig
ókum við eins langt norður og
við komumst, í átt að Látraströnd
og lentum þar í óvegi. Urðum að
snúa við þar sem varla var hægt
um vik en nýi Jimny-inn minn
kallar ekki allt ömmu sína!
Á bökkum
Rangár við
Hellu.
Bláin (dýragras) fegurst alls sem blátt er.
54 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.