Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 62
– Horfirðu mikið á sjónvarp og
hvernig?
Þó nokkuð á kvöldin. Finnst best
að velja mér eitthvað á Netflix eða
á Frelsinu.
– Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu?
Smáborgarasýn Frímanns á RÚV.
– Besta kvikmyndin?
Shawsank Redemption hefur setið
þar lengi og ekki enn verið velt af
þeim stalli.
– Hver er uppáhaldsbókin þín
og/eða -rithöfundur?
Jón Kalman finnst mér alveg
magnaður.
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu?
Þegar ég læt allt fara í taugarnar
á mér.
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra?
Tillitsleysi.
– Uppáhaldsmálsháttur eða
-tilvitnun:
„Life is what happens to you while
you’re busy making other plans“ –
John Lennon.
– Hver er elsta minningin sem
þú átt?
Stóra systir er að passa mig með
vinkonum sínum um kvöld. Búið
að fara með mig inn að sofa. Ég
stend uppi rimlarúmi og geri mér
upp grát til að stelpurnar komi inn
til mín og taki mig með sér fram í
fjörið.
– Orð eða frasi sem þú notar of
mikið:
„Þessir andskotar…“
– Ef þú gætir farið til baka í
tíma, hvert færirðu?
Til Los Alamos í Nýju Mexíkó árið
1945 til að rugla í formúlum Op-
penheimers og félaga í Manhattan-
prójektinu.
– Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
Ég lifi í draumi.
– Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Mjög skrýtnir tímar og breyt-
ingar út af þessari „jarðarveiru“
sem enginn gat séð fyrir. Ég veit
að margir hafa átt erfitt, sérstak-
lega þeir sem hafa ekki stuðn-
ingsnet fjölskyldu og vina. Hvað
mig varðar þá átti ég góðan tíma
og samveru með mínum nánustu
og svo kom þetta íslenska ferða-
sumar eins og bónus í kjölfarið.
Mér finnst, eins og eflaust fleirum,
að þessir tímar hafi fengið okkur
sem samfélag til að staldra við og
endurmeta stöðu okkar í þessari
veröld, eins og ákveðinn doði hafa
vikið fyrir aukinni samkennd.
Ég held og vona svo innilega að
manneskjan nái auknum þroska
og skilningi út úr þessari reynslu.
Það er a.m.k. mín upplifun að ofan
á allar raunir fólks í veikindum og
einsemd vegna takmarkana að
fjarlægðin virki einhverja krafta
í okkur sem gerir okkur nánari.
Það gefur gott tilefni til að setja
í bundið mál:
Á þessum tímum þykir mér,
er þokast eigum fjær,
að fjarlægðin sem faðmur er
færi okkur nær.
– Hver er tilfinning þín fyrir
haustinu og komandi vetri?
Bara góð. Haustið er alltaf minn
uppáhaldstími og nú er spenn-
andi að sjá hvernig verður í
þessu nýja veruleika. Hef fulla
trú á að við höldum áfram að
efla okkur í náungakærleiknum.
– Hver er besti brandari sem
þú hefur heyrt nýlega?
Maður er að verða allt of gleyminn
á slíkt og segir alltaf sömu brand-
arana aftur og aftur. Held mig því
við þá gömlu og hér er einn:
Maður einn kíkti í heimsókn
í vinnuna til vinar síns sem var
apótekari. Hann sá sér leik á borði
og bað hann um að passa fyrir sig
búlluna meðan hann brygði sér frá
í hálftíma. Þegar apótekarinn sneri
aftur spurði hann vin sinn hvort
einhver hefði komið meðan hann
var í burtu.
„Já, það kom einn með alveg
svakalegan hósta,“ svaraði vin-
urinn.
„Og þú hefur náttúrlega selt
honum hóstasaft,“ sagði apótek-
arinn.
„Nei, alls ekki. Ég lét hann hafa
laxerolíu,“ svaraði vinurinn.
„Guð minn góður! Hún virkar
ekkert á hósta,“ sagði apótekarinn
og fórnaði höndum.
„Jú, heldur betur,“ svaraði vin-
urinn og benti út um gluggann.
Sérðu! Þarna stendur hann við
staur og þorir ekki að hósta.“
Fornleifauppgröftur í Stöð: Fjölskyldan nýtur
leiðsagnar Björgvins Vals Guðmundssonar um
merkan fornleifafund í Stöð innst í Stöðvarfirði.
62 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.