Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.08.2020, Qupperneq 62

Víkurfréttir - 19.08.2020, Qupperneq 62
– Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig? Þó nokkuð á kvöldin. Finnst best að velja mér eitthvað á Netflix eða á Frelsinu. – Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Smáborgarasýn Frímanns á RÚV. – Besta kvikmyndin? Shawsank Redemption hefur setið þar lengi og ekki enn verið velt af þeim stalli. – Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða -rithöfundur? Jón Kalman finnst mér alveg magnaður. – Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Þegar ég læt allt fara í taugarnar á mér. – Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Tillitsleysi. – Uppáhaldsmálsháttur eða -tilvitnun: „Life is what happens to you while you’re busy making other plans“ – John Lennon. – Hver er elsta minningin sem þú átt? Stóra systir er að passa mig með vinkonum sínum um kvöld. Búið að fara með mig inn að sofa. Ég stend uppi rimlarúmi og geri mér upp grát til að stelpurnar komi inn til mín og taki mig með sér fram í fjörið. – Orð eða frasi sem þú notar of mikið: „Þessir andskotar…“ – Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu? Til Los Alamos í Nýju Mexíkó árið 1945 til að rugla í formúlum Op- penheimers og félaga í Manhattan- prójektinu. – Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Ég lifi í draumi. – Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til? Mjög skrýtnir tímar og breyt- ingar út af þessari „jarðarveiru“ sem enginn gat séð fyrir. Ég veit að margir hafa átt erfitt, sérstak- lega þeir sem hafa ekki stuðn- ingsnet fjölskyldu og vina. Hvað mig varðar þá átti ég góðan tíma og samveru með mínum nánustu og svo kom þetta íslenska ferða- sumar eins og bónus í kjölfarið. Mér finnst, eins og eflaust fleirum, að þessir tímar hafi fengið okkur sem samfélag til að staldra við og endurmeta stöðu okkar í þessari veröld, eins og ákveðinn doði hafa vikið fyrir aukinni samkennd. Ég held og vona svo innilega að manneskjan nái auknum þroska og skilningi út úr þessari reynslu. Það er a.m.k. mín upplifun að ofan á allar raunir fólks í veikindum og einsemd vegna takmarkana að fjarlægðin virki einhverja krafta í okkur sem gerir okkur nánari. Það gefur gott tilefni til að setja í bundið mál: Á þessum tímum þykir mér, er þokast eigum fjær, að fjarlægðin sem faðmur er færi okkur nær. – Hver er tilfinning þín fyrir haustinu og komandi vetri? Bara góð. Haustið er alltaf minn uppáhaldstími og nú er spenn- andi að sjá hvernig verður í þessu nýja veruleika. Hef fulla trú á að við höldum áfram að efla okkur í náungakærleiknum. – Hver er besti brandari sem þú hefur heyrt nýlega? Maður er að verða allt of gleyminn á slíkt og segir alltaf sömu brand- arana aftur og aftur. Held mig því við þá gömlu og hér er einn: Maður einn kíkti í heimsókn í vinnuna til vinar síns sem var apótekari. Hann sá sér leik á borði og bað hann um að passa fyrir sig búlluna meðan hann brygði sér frá í hálftíma. Þegar apótekarinn sneri aftur spurði hann vin sinn hvort einhver hefði komið meðan hann var í burtu. „Já, það kom einn með alveg svakalegan hósta,“ svaraði vin- urinn. „Og þú hefur náttúrlega selt honum hóstasaft,“ sagði apótek- arinn. „Nei, alls ekki. Ég lét hann hafa laxerolíu,“ svaraði vinurinn. „Guð minn góður! Hún virkar ekkert á hósta,“ sagði apótekarinn og fórnaði höndum. „Jú, heldur betur,“ svaraði vin- urinn og benti út um gluggann. Sérðu! Þarna stendur hann við staur og þorir ekki að hósta.“ Fornleifauppgröftur í Stöð: Fjölskyldan nýtur leiðsagnar Björgvins Vals Guðmundssonar um merkan fornleifafund í Stöð innst í Stöðvarfirði. 62 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.