Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 28
Leikir framundan:
Lengjudeild karla:
Grindavík - Þór
Grindavíkurvöllur lau. 22/8 kl. 14:00
Afturelding - Keflavík
Fagverksvöllurinn Varmá lau. 22/8 kl. 16:00
Lengjudeild kvenna:
Keflavík - Tindastóll
Nettóvöllurinn sun. 23/8 kl. 13:00
2. deild karla:
Þróttur - Dalvík/Reynir
Vogaídýfuvöllur sun. 23/8 kl. 14:00
Kórdrengir - Víðir
Framvöllur sun. 23/8 kl. 14:00
Völsungur - Njarðvík
Vodafonevöllurinn Húsavík sun. 23/8 kl. 14:00
2. deild kvenna:
Fjarðab/Höttur/Leiknir - Grindavík
Vilhjálmsvöllur sun. 23/8 kl. 14:00
3. deild karla:
Augnablik - Reynir
Fagrilundur (gervigras) fös. 21/8 kl. 18:00
Langþráður sigur Víðismanna
Það er óhætt að segja að Víði hafi ekki
gengið sem skildi í 2. deild karla í knatt-
spyrnu í sumar. Þeir hafa átt í tals-
verðum vandræðum og eru óþægilega
nærri fallsæti þegar deildin er um það
bil hálfnuð.
Víðismenn tóku á móti KF á Nesfisk-
vellinum í vikunni en fyrir leikinn var KF
í sjöunda sæti deildarinnar á meðan Víðir
sat í því tíunda.
Það voru Víðismenn sem mættu
ákveðnir til leiks og voru sterkari aðilin.
Þeir náðu þó ekki að opna markareikn-
inginn fyrr en undir lok fyrri hálfleiks
þegar Stefan Spasic skoraði mark eftir
hornspyrnu og Víðismenn voru 1:0 yfir
í hálfleik.
Víðismenn héldu áfram að vera sterkari að-
ilinn í seinni hálfleik og á 55. mínútu fengu þeir
dæmda vítaspyrnu þegar brotið var á Hregg-
viði Hermannssyni. Það var Guyon Philips sem
tók spyrnuna og skoraði örugglega, staðan 2:0
fyrir Víði.
Þeir urðu þó fyrir áfalli skömmu síðar þegar
Guðmundur Marínó Jónsson fékk að líta sitt
annað gula spjald í leiknum og Víðismenn því
manni færri það sem eftir lifði leiks. Víðir hélt
þó áfram að vera sterkari aðilinn, þótt þeir væru
einum færri, og lönduðu langþráðum sigri sem
lyftir þeim aðeins frá fallsæti.
Leikurinn var vel leikinn af Víðismönnum og
sýnir að meira býr í liðinu en stigataflan sýnir.
Vonandi verður áframhald á þessari spila-
mennsku þeirra.
Guðmundur Marínó Jónsson skorar
hér gegn Þrótti sem lauk með sigri
þó með sigri þeirra síðarnefndu.
Þróttarar unnu Kára
og sitja í fjórða sæti
Þróttur úr Vogum lék gegn Kára á Akranesi
á miðvikudagskvöld. Fyrir leik sat Þróttur í
fimmta sæti
Það var Viktor Smári Segatta sem skoraði opn-
unarmark Þróttara á 10. mínútu og þannig stóðu
leikar í hálfleik.
Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálf-
leik fengu Þróttarar vítaspyrnu sem Alexsander
Helgason skoraði úr og tvöfaldaði forystu þeirra.
Kári klóraði í bakkann á 65. mínútu og
minnkaði muninn í eitt mark en þar við sat og
sigur Þróttar í höfn.
Njarðvíkingar töpuðu heima
gegn Selfyssingum
Njarðvík var búið að vinna sig upp í þriðja sæti 2. deildar karla eftir góðan sigur á
Haukum í síðustu umferð. Þeir mættu Selfyssingum, sem sátu í fjórða sæti, á Raf-
holtsvellinum í tólfu (10.) umferð deildarinnar.
Selfoss byrjaði leikinn betur og náði að
skora á 13. mínútu leiksins. Fyrri hálfleikur
var ekkert augnayndi og fátt markvert
gerðist, þó voru það gestirnir sem voru lík-
legri til að bæta í en Njarðvíkingar að jafna.
Heimamenn veittu mótspyrnu í upphafi
fyrri hálfleiks og sköpuðu sér færi með
hættulegri skyndisókn en markvörður
Selfyssinga varði vel.
Það voru svo gestirnir sem bættu við
marki eftir að nærri tuttugu mínútur voru
liðnar af hálfleiknum og juku forskot sitt
í tvö mörk.
Bergþór Ingi Smárason minnkaði
muninn á 75. mínútu þegar Njarðvíkingar
náðu góðri sókn sem Selfyssingar áttu
engin svör við.
Nær komust Njarðvíkingar ekki og
Selfoss kláraði leikinn skömmu áður en
dómarinn flautaði til leiksloka. Lokaniður-
staðan 3:1 fyrir gestina og með tapinu féll
Njarðvík niður í fimmta sæti.
Viktor Smári með skot að marki
í fyrri leiknum gegn Kára.
Kenneth Hogg átti ágætis
færi gegn Selfyssingum
en náði ekki að setja
mark sitt á leikinn.
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
28 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár