Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Nov 2020, Page 3

Læknablaðið - Nov 2020, Page 3
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 497 Heimild: 1. Laakso M. Cardiovascular disease in type 2 diabetes from population to man to mechanisms. Diabetes Care 2010;33(2):442–9. ▼ PP-XAR-IS-0013-1 Janúar 2020 XARD0251 – Bilbo Xarelto fyrir sjúklinga með gáttatif og sykursýki Yfir 70 % sjúklinga með sykursýki látast af völdum hjarta- og æðatilfella, þ.m.t. heilaslagi1 „ Ég vissi ekki að sykursýki og gáttatif gætu valdið heilaslagi og auk þess skaðað nýrun!“ XARD0251 SPAF + diabetes ad A4 IS.indd 1 2020-01-24 08:54 Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Margrét Ólafía Tómasdóttir Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingar Sólveig Jóhannsdóttir solveig@lis.is Umbrot Margrét E. Laxness melax@lis.is Prófarkalestur Aðalsteinn Eyþórsson Upplag 1900 Prentun og bókband Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 21.900,- m. vsk. Lausasala 2190,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scop- us og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL „Mikill meirihluti er sammála aðgerðum” Alma hefur sannarlega staðið í ströngu undan- farnar vikur og mánuði. Hún segir þriðju bylgju COVID-19 faraldursins hafa komið svolítið aftan að heilbrigðisyfirvöldum og hana megi rekja til einstaklings sem kom til landsins í ágúst eins og áður hefur komið fram. „Við töldum okkur vera að ráða niðurlögum annarrar bylgjunnar sem var frekar lítil þegar sú þriðja skall á okkur. Mér finnst ótrúlegt til þess að hugsa að við fengum þessa óvæntu útbreiðslu faraldursins út frá einum einstaklingi. Við rað- greinum alla og vitum með vissu hvenær veiran kom til landsins í þessari bylgju og hvað hún hef- ur náð að dreifa sér síðan kemur verulega á óvart,” segir Alma og bætir því að vissulega séu nokkur vonbrigði að grípa hafi þurft til hertari aðgerða að nýju. „Við höfum haft að leiðarljósi frá upphafi að aðgerðir séu ekki harðari en nauðsynlegt er en það er þó ánægjuefni að svo virðist sem við séum að snúa þróun bylgjunnar okkur í hag og smitum sé að fækka. Við erum eitt af þremur löndum í Evrópu sem er með fækkun smita á milli vikna. Aðrir eru á leiðinni upp með fjölgun smita.” - Mun okkur takast að halda þessu niðri þegar faraldurinn er í vexti allt í kringum okkur? „Ég held að það verði erfitt en okkur tókst það í sumar og tvöfalda skimunin á landamærunum virðist árangursrík. Við misstum nokkuð af smit- uðum einstaklingum inn í landið með einni skim- un en ef okkur tekst að halda þessu niðri núna má leyfa sér einhverja bjartsýni. Við getum aldrei treyst því fullkomlega að missa ekki smitaða einstaklinga út í samfélagið en þetta virðist gefa góða raun. Það er reyndar frekar mild ráðstöfun að setja fólk í 5 daga sóttkví við komu til landsins. Til samanburðar má benda á að mörg nágranna- landa nota 10-14 daga sóttkví.” Alma segir að þrátt fyrir að farsóttarþreyta hafi vissulega gert vart við sig í haust og að ýms- ar skoðanir hafi verið viðraðar á aðgerðum þá sé mikill meirihluti fólks sammála þeirri stefnu sem heilbrigðisyfirvöld hafa tekið. „Könnun Félagsvísindastofnunar staðfestir það og hér er almennt meiri stuðningur við að- gerðir heldur en víða annars staðar í Evrópu.” Hún segir að við verðum að takast á við veiruna þar til bóluefni kemur fram og almenn bólusetning getur orðið. „Ég er ekki eins bjartsýn og þeir sem telja að bóluefni verði tilbúið til notk- unar í lok þessa árs. Ég tel að það gerist ekki fyrr en á miðju næsta ári og við þurfum einfaldlega að viðhafa áfram allar grunnreglur í sóttvörnum í samfélaginu þangað til bóluefni kemur fram og bólusetningar eiga sér stað. Við þurfum að vera viðbúin því að staðbundin smit komi upp og okk- ar verkefni er að vera viðbúin því og bregðast hratt og rétt við.” Alma telur að bóluefni verði tilbúið til notkunar um mitt næsta ár. Mynd/Hávar Sigurjónsson Alma D. Möller landlæknir segir að rekja megi þriðju bylgju COVID-19 faraldursins til eins einstaklings ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.