Læknablaðið - nov. 2020, Side 13
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 507
R A N N S Ó K N
eftir því hvort þeir telja fjárhagsstöðu fjölskyldunnar frekar eða
mjög góða (67,6%), hvorki góða né slæma (28,7%) eða frekar eða
mjög slæma (3,6%).
Pearsons kí-kvaðrat próf (χ2) var notað við útreikninga á töl-
fræðilega marktækni. Prófið er tvíbreytupróf og metur hvort
marktækur munur er á milli mismunandi hópa í tíðnitöflum.
Prófið mælir hins vegar ekki styrkleika sambanda.27 Miðað var við
95% vikmörk. Tölfræðiforritið IBM SPSS statistics 26 var notað við
greiningu gagnanna.
Niðurstöður
Tafla I sýnir niðurstöður mælinga á tengslum milli umfangs vinnu
með skóla og geðrænu þáttanna áður en tekið var tillit til lýðfræði-
legu þáttanna sem skoðaðir voru. Hún sýnir marktæk tengsl milli
umfangs vinnu með skóla og 5 af 6 þáttunum sem mælt var fyrir.
Ungmenni sem vinna mikið með skóla (28,0%) eru líklegri til að
búa við fjölþætta geðræna vanlíðan en ungmenni í hóflegri vinnu
(19,9%) og ungmenni sem vinna ekki með skóla (17,2%). Einnig sýn-
ir taflan að ungmenni sem vinna mikið með skóla eru marktækt
líklegri til að vera stundum eða oft þreytt eftir fullan nætursvefn,
finna oft eða stundum fyrir svefnleysi, þunglyndi og áhyggjum
eða aldrei. Hér voru 5 einkenni geðrænnar líðanar skoðuð; þreyta
eftir fullan svefn, svefnleysi, þunglyndi, kvíði eða spenna og
áhyggjur eða dapurleiki. Að auki var lagt heildarmat á geðræna
vanlíðan með því að leggja öll einkennin 5 saman og þeir svar-
endur sem hafa fundið oft eða stundum fyrir fjórum eða fimm
einkennum á síðastliðnum 12 mánuðum taldir búa við fjölþætta
geðræna vanlíðan. Umfang vinnu með skóla var mælt með því að
skipta þeim svarendum sem voru í skóla (1250, eða 94,6%) niður í
þrjá hópa þeirra sem unnu ekki með skóla (53,6%), unnu hóflega
með skóla (28,9%) og unnu mikið með skóla (17,5%). Fyrri rann-
sóknir á vinnu ungmenna hafa sýnt að áhrif umfangs vinnu þessa
aldurshóps á líðan helgast ekki eingöngu af lengd vinnuvikunnar
heldur einnig af sveigjanleika vinnutímans.18 Að vinna mikið með
skóla var því skilgreint sem að vinna meira en 12 klukkustundir
á viku og hafa fastan vinnutíma, en að vinna hóflega með skóla
að vinna 12 klukkustundir á viku eða minna með skóla og/eða
að hafa ekki fastan vinnutíma. Svarendum var skipt í þrjá aldurs-
hópa, 13-15 ára (50,2%), 16-17 ára (30,5%) og 18-19 ára (19,4%). Yngri
aldursflokkarnir tveir falla undir reglur um vinnu barna og ung-
linga, sem tryggir þeim sérstaka vinnuvernd umfram fullorðna,17
en elsti aldurshópurinn stendur jafnfætis fullorðnum hvað vinnu-
verndarréttindi varðar. Svarendum var einnig skipt í þrjá hópa
Tafla I. Hlutfall (%) 13-19 ára sem hafa stundum eða oft fundið fyrir geðrænum einkennum á síðustu 12 mánuðum eftir umfangi vinnu með skóla.
Einkenni Ekki í vinnu Í hóflegri vinnu Í mikilli vinnu Samtals Kí-kvaðrat próf n
Fjölþætt geðræn vanlíðan 17,2 19,9 28,0 19,9 p = 0,005** 1086
Þreyta eftir fullan svefn 41,4 46,7 56,9 45,7 p = 0,001** 1110
Svefnleysi 28,0 31,3 40,0 31,0 p = 0,007** 1115
Þunglyndi 15,9 19,6 27,3 19,0 p = 0,002** 1095
Kvíði eða spenna 42,4 44,4 46,4 43,7 p = 0,578 1113
Áhyggjur eða dapurleiki 32,7 37,3 45,6 36,3 p = 0,005** 1110
*p≤0,05, **p≤0,01
Tafla II. Hlutfall (%) 13-19 ára sem hafa stundum eða oft fundið fyrir geðrænum einkennum á síðustu 12 mánuðum eftir umfangi vinnu með skóla, skipt eftir kyni.
Einkenni Kyn Ekki í vinnu Í hóflegri vinnu Í mikilli vinnu Samtals Kí-kvaðrat próf n
Fjölþætt geðræn vanlíðan
Stelpur 23,3 23,7 35,8 26,0 p = 0,022* 589
Strákar 11,2 14,6 15,1 12,7 p = 0,502 497
Þreyta eftir fullan svefn
Stelpur 46,8 52,1 62,0 51,5 p = 0,018* 604
Strákar 36,1 39,1 48,6 38,7 p = 0,140 506
Svefnleysi
Stelpur 29,4 34,7 46,7 34,5 p = 0,004** 603
Strákar 26,6 26,3 29,3 27,0 p = 0,879 512
Þunglyndi
Stelpur 19,7 22,6 36,7 24,1 p = 0,001** 590
Strákar 12,3 15,3 12,2 13,1 p = 0,686 505
Kvíði eða spenna
Stelpur 51,5 53,4 55,4 52,9 p = 0,776 601
Strákar 33,6 31,6 32,0 32,8 p = 0,909 512
Áhyggjur eða dapurleiki
Stelpur 42,3 43,2 56,7 45,4 p = 0,021* 601
Strákar 23,5 28,8 28,0 25,5 p = 0,444 509
*p≤0,05, **p≤0,01