Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2020, Side 15

Læknablaðið - nov. 2020, Side 15
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 509 R A N N S Ó K N eða dapurleika en ungmenni sem vinna hóflega eða ekki með skóla. Hins vegar mælast ekki marktæk tengsl milli þess að finna stundum eða oft fyrir kvíða eða spennu og vinnu með skóla. Tafla II sýnir greinilegan kynjamun á tengslunum milli vinnu með skóla og geðrænnar líðanar. Þegar tengslin eru greind eft- ir kyni haldast þau hjá stelpum hvað varðar fjölþætta geðræna vanlíðan auk þreytu eftir fullan nætursvefn, svefnleysi, þunglyndi og áhyggjur eða dapurleika. Engin þessara tengsla mælast mark- tæk hjá strákum. Eftir sem áður mælast ekki marktæk tengsl milli vinnu með skóla og kvíða eða spennu og á það við bæði kynin. Þegar tengslin milli geðrænnar líðanar og vinnu með skóla eru skoðuð eftir aldri haldast þau í yngsta aldurshópnum (13-15 ára) hvað varðar fjölþætta geðræna vanlíðan og þunglyndi (tafla III). Tengslin eru hins vegar U-laga en ekki línulaga eins og í fyrri mæl- ingum. 13-15 unglingar sem eru í hóflegri vinnu eru þannig ólík- legust til að búa við fjölþætta geðræna vanlíðan sem og að finna fyrir þunglyndi, en þau sem vinna mikið með skóla eru líklegust til þess. Þau sem ekki vinna koma síðan þar á milli. Að öðru leyti hverfa tengslin milli geðrænnar vanlíðanar og umfangs vinnu með skóla þegar tengslin eru greind eftir aldri. Tafla IV sýnir tengslin milli geðrænnar líðanar og vinnu með skóla eftir fjárhagsstöðu fjölskyldunnar. Tengslin haldast í hópi þeirra sem búa við góða fjárhagsstöðu hvað varðar þreytu eftir fullan nætursvefn, svefnleysi, þunglyndi og áhyggjur eða dapurleika. Ungmenni sem telja fjölskyldu sína fjárhagslega vel stæða og vinna mikið með skóla eru líklegust til að finna fyrir þessum einkennum en þau sem vinna ekki með skóla ólíklegust. Að öðru leyti hverfa marktæk tengsl milli geðrænnar líðanar og vinnu með skóla þegar þau eru greind eftir fjárhagsstöðu fjöl- skyldu ungmennanna. Þó er vert að hafa í huga að taflan sýnir að sá hópur sem telur fjárhagsstöðuna slæma er fámennur. Umræður Markmið þesarar rannsóknar var að skoða tengsl geðrænnar líð- anar íslenskra ungmenna við umfang vinnu með skóla. Rann- sóknin sýnir marktæk tengsl í hópi stúlkna. Stúlkur sem vinna ekki með skóla eru þannig ólíklegastar, en þær sem vinna mikið líklegastar til að búa við fjölþætta geðræna vanlíðan og að finna stundum eða oft fyrir þreytu eftir fullan svefn, svefnleysi, þung- lyndi og áhyggjum eða depurð. Í hópi stráka mældust hins vegar engin tengsl milli geðrænnar líðanar og umfangs vinnu með skóla. Þá eru tengsl geðrænnar vanlíðanar og umfangs vinnu með skóla að nokkru háð fjárhagsstöðu fjölskyldunnar. Tengslin haldast hjá þeim sem telja fjölskyldu sína vel stadda fjárhagslega hvað varðar þreytu eftir fullan svefn, svefnleysi og þunglyndi og meðal þeirra sem telja fjölskyldu sína hvorki vel né illa stadda fjárhagslega hvað varðar áhyggjur og dapurleika. Meðal þeirra sem telja fjölskyldu sína illa stadda fjárhagslega kom hins vegar ekki fram neinn mun- ur á umfangi vinnu með skóla og geðrænnar vanlíðanar. Jafnframt kemur í ljós að tengslin eru aðeins að litlu leyti tengd aldri, eða að- eins í aldurshópi 13-15 ára hvað varðar fjölþætta geðræna vanlíðan og þunglyndi og er þá munurinn mestur á milli þeirra sem vinna mikið með skóla og þeirra sem vinna hóflega með skólanum. Í engu tilfelli mældust hins vegar tengsl milli umfangs vinnu með skóla og þess að finna oft eða stundum fyrir kvíða eða spennu. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að ungmenni sem vinna með skóla sofa minna en ungmenni sem ekki vinna7 og að slæmar vinnuað- stæður ungmenna geta leitt til þunglyndis.20 Þessi rannsókn bætir um betur og sýnir að umfang vinnu með skóla getur ýtt undir margvísleg einkenni geðrænnar vanlíðunar. Skýringin á þessum tengslum gæti legið í því að vinna með skóla er aukastarf ung- linga sem bætist ofan á önnur skyldustörf. Almennt er nám helsta skyldustarf ungmenna og að auki stunda mörg íþróttir, tónlist- arnám og/eða aðrar skipulagðar tómstundir.17 Þegar við bætist launuð vinna með skóla getur vinnuvika unga fólkins orðið ansi löng. Álagið sem fylgir því að þurfa að sinna mörgum skyldum gæti skýrt að ungmenni sem vinna mikið eru áhyggjufull og ná ekki úr sér þreytu með fullum nætursvefni.21 Tímaleysið sem hin mörgu hlutverk kalla fram gæti einnig orðið til þess að vinnandi ungmenni sofi ekki nóg og svefnleysið síðan ýtt undir þunglyndi en þekkt er að tengsl eru milli svefnleysis og þunglyndis.7 Niður- stöður rannsóknarinnar benda þó til að slíkur vítahringur mikils álags bitni fyrst og fremst á stúlkum og að einhverju leyti á ung- mennum úr betur stæðum fjölskyldum. Niðurstöðurnar um að vinna með skóla tengist ekki kvíða og spennu falla heldur ekki að þessari tilgátu og frekari rannsókna er þörf til að kanna hvað það er sem veldur ungmennum helst kvíða eða spennu.15 Margar skýringar hafa verið gefnar á þeim kynjamun sem mælist á geðrænni heilsu ungmenna,28 meðal annars að hjá strák- um brjótist geðræn vanlíðan frekar fram í hegðunarvanda en hjá stelpum í innri vanlíðan.29 Það gæti að einhverju leyti skýrt kynja- muninn sem hér kemur fram þar sem einungis var mælt fyrir innri vanlíðan. Önnur skýring sem gefin hefur verið á kynjamuninum og gæti átt við hér er að það sé meiri þrýstingur á stelpur en stráka að standa sig í lífinu.28 Slíkur kynbundinn þrýstingur gæti orðið til þess að stelpur sem vinna með skóla finni frekar fyrir miklu álagi en strákar í sömu sporum. Að auki má vænta þess að kynja- munurinn skýrist að hluta af kynbundnum aðstöðumun í vinnu og kynskiptum störfum eins og raunin er hjá fullorðnum.30 Erf- iðara er að skýra þann mun sem niðurstöðurnar sýna á tengslum vinnu með skóla og geðrænnar líðanar eftir fjárhagsstöðu fjöl- skyldu. Ein möguleg skýring er að börn vel stæðra foreldra verði frekar en börn verr stæðra foreldra fyrir þrýstingi frá foreldrum sínum eða frá samfélaginu almennt að standa sig í lífinu. Önnur möguleg skýring er að unglingar sem koma úr fjölskyldum sem eru illa staddar fjárhagslega upplifi almennt meiri vanlíðan en þau sem eiga fjölskyldur sem eru betur staddar. Rótin að slíkri stéttskiptri vanlíðan gæti verið tengd margvíslegum félagslegum þáttum sem takmarki þátt vinnu í vanlíðaninni.4 Einnig gæti hér verið um skekkju í mælingum að ræða en hópurinn sem metur fjár- hagsstöðu fjölskyldunnar slæma er mjög fámennur en það dregur úr afli marktækni mælinga.27 Rannsókninni voru ákveðnar skorður settar. Mælikvarðinn á geð- ræna líðan sem notaður er hér hefur sínar takmarkanir en í honum eru Fyrri rannsóknir hafa sýnt að ungmenni sem vinna með skóla sofa minna en ungmenni sem ekki vinna og að slæmar vinnuaðstæður ungmenna geta leitt til þunglyndis. Þessi rannsókn sýnir að umfang vinnu með skóla getur ýtt undir margvísleg einkenni geðrænnar vanlíðunar.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.