Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2020, Side 24

Læknablaðið - nov. 2020, Side 24
518 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Y F I R L I T hormóns, styrkur þess hækkar þegar líður að svefntíma og nær hámarki við innleiðingu svefns en lækkar svo aftur í djúpsvefni og eftir því sem líður á svefntímann.17 Í djúpsvefni á sér stað losun vaxtarhormóna sem eru mikilvæg fyrir endurnýjun vefja líkam- ans og heilinn losar sig við úrgangsefni (b-amyloyid) sem safnast upp í heila- og mænuvökva í vöku.18 Þeir sem fá ekki nægilegan djúpsvefn eru útsettari fyrir að þróa með sér ýmsa sjúkdóma eins og háþrýsting, sykursýki 2, hjarta- og æðasjúkdóma, offitu, kvíða, þunglyndi og einkenni heilabilunar (alzheimer).19 Þessir einstak- lingar eru einnig líklegri til að vakna þreyttir að morgni og eiga oft erfitt með að einbeita sér.20 Helstu orsakir svefnkvartana Algengt er að fólk leiti til heilsugæslu með svefnkvartanir og er talið að um 30% fullorðinna hafi einkenni svefnleysis á hverjum tíma.21,22 Ýmsar ástæður geta legið að baki því að svefn er ekki nógu góður og má þar nefna slæmar svefnvenjur, svo sem þegar einstaklingar forgangsraða öðrum þáttum daglegs lífs fram yfir svefn eða trufla gæði hans til dæmis með neyslu koffíns eða áfeng- is. Einnig getur geðræn og/eða líkamleg vanlíðan truflað og haft neikvæð áhrif á reglu, lengd og gæði svefns, sem og ógreindir svefnsjúkdómar.22 Hver svo sem ástæðan er geta afleiðingar af óreglulegum og/eða stuttum svefni og lélegum svefngæðum kom- ið fram í margvíslegum birtingarmyndum með neikvæðum áhrif- um á heilsu, þar með talið á hjarta- og æðakerfið.2,3,6,9,23-32 Svefngæði Svefngæði eru ýmist metin huglægt með spurningalistum33 eða með hlutlægum svefnmælingum sem mæla þá hversu langan tíma það tekur að sofna (sleep latency: SL), lengd svefntíma (sleep duration: SD), svefnstig og vökur yfir svefntímann (wake after sleep svefnsjúkdómar og áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma (tafla I sem geymd er í greininni á heimasíðu Læknablaðsins). Svefn Mælt er með að fullorðið fólk sofi 7-9 klukkustundir á sólarhring.13 Þær ráðleggingar eru byggðar á rannsóknum sem sýnt hafa að bæði of stuttur og of langur svefn geti haft neikvæð áhrif á heilsu og að þeir sem reglulega sofa skemur eða lengur en núverandi ráðleggingar mæla með séu líklegri til að þróa með sér langvinna sjúkdóma.2,3,5-11 Hversu langur svefntíminn er segir samt ekki alla söguna því jafnframt þarf að huga að reglu og gæðum svefns- ins.14-16 Svefn er lífeðlisfræðilega flókið ferli sem meðal annars stjórn- ast af áhrifum dægursveiflu ljóss á undirstúku heila og uppsöfn- un á adenosíni í miðtaugakerfi sem veldur aukinni syfju eftir að einstaklingur hefur verið vakandi í 12-16 klukkustundir. Til inn- leiðingar á svefni þarf einnig að eiga sér stað ákveðin aðlögun á líkamsstarfsemi; minnkað ljósmagn hefur áhrif á undirstúku- heiladinguls-nýrnahettu-öxulinn sem eykur losun melantóníns og magn kortisóls í blóði lækkar og nálgast lágmarksgildi um miðnætti. Dægursveiflan hefur einnig áhrif á líkamshita sem smám saman lækkar þegar svefntími nálgast. Við innleiðingu á svefni lækkar líkamshitinn enn frekar, öndun og hjartsláttur verða hægari og reglulegri, ásamt því að blóðþrýstingur lækkar.16,17 Svefntíminn skiptist í mismunandi svefnstig þar sem heil- brigður svefn einkennist af um það bil 90-120 mínútna löngum svefntímabilum sem innifela vöku, léttari svefnstig, djúpsvefn og draumsvefn og er þetta ferli endurtekið nokkrum sinnum (fjórum til sex sinnum) yfir svefntímann. Hvert svefnstig hefur sitt sér- kenni og er djúpsvefn ríkjandi fyrri hluta svefntímans en seinni hluta nætur verður svefninn léttari og draumsvefn meira áber- andi. Bæði svefn og dægursveiflan hafa áhrif á losun skjaldkirtils- Mynd 1. Skýringarmynd (Venn) sem sýnir á einfaldan hátt: (a) samspil hreyfingar, nær- ingar, svefns og heilsu. (b) Samband svefntíma, svefngæða, svefnsjúkdóma og heilsu. A B

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.