Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nov. 2020, Síða 26

Læknablaðið - nov. 2020, Síða 26
520 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Y F I R L I T þegar hafa verið greindir með áhættuþætti hjarta- og æðasjúk- dóma, svo sem hækkaðan blóðþrýsting, sykursýki 2 eða offitu, og sofa að jafnaði minna en 6 klukkustundir á nóttu eru tvisvar sinn- um líklegri til þess að deyja úr hjartasjúkdómi eða heilablóðfalli en þeir sem sofa lengur og hafa betri svefngæði.70 Með það að markmiði að draga úr dauðsföllum tengdum hjarta- og æðasjúkdómum er aukin áhersla á góðan svefn og meðhöndl- un svefnsjúkdóma mikilvæg.71 Ráðlögð meðferð við kæfisvefni, öndunaraðstoð, hefur sýnt sig að hafa jákvæð áhrif á æðaþel og ónæmiskerfi gegnum lækkun á hs-CRP, IL-6 og TNF-a,72-74 lækk- ar blóðþrýsting,54,75 hefur jákvæð áhrif á blóðsykurstjórnun,76 dregur úr líkum á hjartsláttartruflunum77 og hugsanlega alvar- legum afleiðingum hjarta- og æðasjúkdóma eins og hjarta- og heilaáfalla.70,78,79 Samkvæmt klínískum leiðbeiningum er hugræn atferlismeðferð fyrsta skref til að bæta svefngæði og lengja svefn- tíma.80,81 Með hugrænni atferlismeðferð má meðal annars draga úr streitustigi og hafa þannig jákvæð áhrif á bæði svefngæði og lengd svefntíma, sem sýnt hefur verið fram á að bætir sykurefnaskipti, dregur úr offitu og hefur jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið.82-86 Umræður Þrátt fyrir aukna þekkingu á mikilvægi svefngæða er takmörkuð umræða meðal lækna um neikvæðar afleiðingar af stuttum og/ eða óreglulegum svefni og áhrif ómeðhöndlaðra svefnsjúkdóma á heilsu, líðan og lífsgæði. Höfundar taka undir það sjónarmið að of lítil áhersla sé lögð á mikilvægi þess að greina og með- höndla svefnsjúkdóma eins og aðra langvarandi sjúkdóma.3,6-8,12,64 Einnig er áhyggjuefni hversu lítið er fjallað um svefn og svefn- tengda sjúkdóma í hefðbundnu læknanámi,87 sem leiðir til þess að læknar útskrifast með takmarkaða þekkingu á hlutverki svefns og hvernig markvisst megi nálgast mat á svefngæðum og svefn- framleitt í hvítum fituvef og hefur margþætt áhrif á efnaskipti og á hjarta- og æðakerfið. Offita, sérstaklega kviðfitusöfnun, hefur truflandi áhrif á framleiðslu á adiponektíni sem minnkar. Áhrif adiponektíns á blóðþrýstingsstjórnun er talin vera gegnum bólgueyðandi áhrif sem koma í veg fyrir að skemmdir myndist í æðaþeli og með letjandi áhrifum adiponektíns á sympatíska taugakerfið.59 Komið hefur í ljós að hækkun á adiponektíni í sermi minnkar líkur á háþrýstingi og að með hækkun um 1,0 µIU/ml á serum adiponektíni má minnka líkur á háþrýstingi um 6%.60,61 Offitu fylgir oft veruleg skerðing á svefngæðum og tíðni kæfisvefns eykst. Þegar adiponektín-gildi fólks með kæfisvefn eru borin saman við samanburðarhóp, samsettan af einstakling- um sem ekki eru greindir með svefnsjúkdóm en með sambæri- leg blóðþrýstings- og blóðsykurgildi og eru í sambærilegri þyngd og á sama aldri, eru adiponektín-gildi þeirra sem hafa kæfisvefn marktækt lægri.62 Óskilvirk meðferð svefnsjúkdóma og lélegra svefngæða getur þannig haft margvísleg áhrif á orkuefnabúskap líkamans, stuðlað sykursýki 2, valdið blóðfituröskun, hækkun á blóðþrýstingi, þyngdaraukningu og offitu (mynd 2).2,3,5-8, 36,63,64 Áhrif á dánartíðni Stuttum svefni og/eða lélegum svefngæðum fylgir aukin virkni í örvandi hluta ósjálfráða taugakerfisins. Sú hækkun sem verður á kortisóli virkjar bólguferla og hefur neikvæð áhrif á ónæmiskerfið sem aftur getur aukið líkur á ýmsum sjúkdómum.65,66 Rannsóknir undanfarinn áratug hafa á sannfærandi hátt sýnt fram á að léleg svefngæði og öfgar í svefnlengd (minna en 6 klukkustundir eða meira en 9 klukkustundir) hafa bólgumyndandi áhrif (hækkun á Interleukin-6 (IL-6), tumor necrosis factor-a (TNF-a), high-sensity C-reactive protein, (hs-CRP) sem getur aukið dánartíðni af marg- víslegum orsökum.67-69 Ennfremur hefur komið í ljós að þeir sem Mynd 2. Áhrif svefnsjúkdóma og lélegra svefngæða á orkubúskap og efnaskipti.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.