Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2020, Side 31

Læknablaðið - nov. 2020, Side 31
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 525 F R É T T I R Metþátttaka á Heimilislæknaþingi Yfir hundrað heimilislæknar flykktust á Heimilislæknaþingið 2020. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Ráðstefnan var rafræn. Erindi Elínar Helgu Þórarinsdóttur var valið það besta í ár ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Þetta kom mér mjög skemmtilega á óvart enda fundust mér svo mörg erindi vera áhugaverð og vel unnin á þinginu,“ segir Elín Helga Þórarinsdóttir, sérnáms- læknir í heimilislækningum. Á þinginu, sem haldið var rafrænt 16.-17. október, fjallað hún um íþyngjandi dagsyfju hjá kæfisvefnssjúklingum og fékk viðurkenn- ingu fyrir besta erindið. Rannsóknir Elínar sýna að eingöngu 17,6% kæfisvefnssjúklinga lýsa ekki syfju, en rétt um helmingur þeirra sem það ger- ir er líklegur bæði til að sofna eða dotta eða upplifa dagsyfju. Syfja hafi minnkað markvert hjá þeim sem noti svefnöndunar- vélina. „Hafa þarf í huga að um helmingur kæfisvefnssjúklinga er með mikla dagsyfju sem getur haft alvarlegar afleiðingar, svo sem aukið líkur á slysum og dregið verulega úr lífsgæðum viðkomandi,“ segir Elín. „Sem betur fer lagast dagsyfjan yfir- leitt við meðferð með svefnöndunarvél en ef hún gerir það ekki er mikilvægt að huga að öðrum þáttum sem geta valdið syfju óháð kæfisvefninum.“ Hún segir rannsóknarteymið, sem þeir Thor Aspelund og Þórarinn Gíslason skipa auk hennar, einnig hafa skoðað mismun- andi aðferðir til að mæla dagsyfju. „Við sáum að það skipti töluverðu máli hvaða aðferð var notuð. Ef notaður var bara hinn hefðbundni Epworth-syfjuskali sem metur líkur á að dotta eða sofna, þá varð það til þess að nokkuð stór hluti kæfisvefnssjúk- linga, sem upplifir dagsyfju án þess að dotta eða sofna, var vangreindur. Þetta höfum við einnig sýnt fram á hjá einstak- lingum í almennu þýði og birtum þá grein í Journal of Sleep Research í fyrra“ segir hún. Berglind Gunnarsdóttir, formaður fræðslunefndar Félags heimilislækna og heimilislæknir á Sólvangi í Hafnarfirði, segir Heimilislæknaþingið hafa gengið vonum framar í ár. „Það jákvæða við að halda ráðstefnuna með fjarfundabúnaði er að aldrei hafa fleiri mætt.“ Yfir 100 skráðu sig inn þegar mest var og oft fleiri en einn á bak við hverja innskráningu. Innskrán- ingarnar voru 80 á laugardeginum. „Fag okkar lækna er þannig að breytingar gerast hratt og því þörf á endurmenntun,“ segir hún. Mikilvægt hafi því verið að halda þingið þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn. Hún vonar að hægt verði að hittast sem fyrst og styrkja böndin. „Þótt það sé viss kostur að vera í fjartengingu eru allir sammála um að vilja fara aftur í gamla formið, en þó með möguleika á að hafa fjartengingu líka,“ segir hún. Læknadagar verða rafrænir í ár. Það er ákvörðun stjórnar Fræðslustofnunar félagsins. „Ástandið í samfélaginu býður ekki upp á annað,“ segir Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélagsins. Árlega hafa um 900 skráð sig á Læknadaga og 450-500 komið saman á hverjum degi. „Við erum spennt að sjá hvaða áhrif fjarfundur hefur á Læknadaga,“ segir Reynir. „Það verða þrjú málþing í gangi á hverjum tíma og því 6 á hverjum degi auk tveggja hádegisfunda.“ Taka á erindin upp. „Við stefnum á að þau verði aðgengileg í mánuð. Fólk á því ekki að missa af neinu.“ Læknadagar 2021 rafrænir Kynjahlutfall í stjórnum, nefndum og ráðum félagsins árið 2020 er 53%, körlum í vil. Karl fer með formennsku stjórna, nefnda og ráða í 75% tilvika og kona í 25% þeirra. Tölurnar eru birtar í fyrsta sinn og koma fram í ársskýrslu félagsins, en konur eru tæp 43% félagsmanna LÍ, karlar tæp 57%. „Ég lít svo á að það sé eðlilegur þáttur að varpa ljósi á þennan halla og fylgja eft- ir að það verði breytingar,“ segir Ólöf Sara Árnadóttir, handaskurðlæknir og formað- ur samskipta- og jafnréttisnefndar. Stjórn Læknafélagsins hefur sam- þykkt jafnréttisstefnu fyrir félagið. Hún er komin á heimasíðuna og var kynnt á rafrænum aðalfundi félagsins 29. október. Nefndin leiddi vinnuna við jafnréttis- stefnuna en hún var skipuð haustið 2018 í kjölfar #metoo-yfirlýsingar lækna. Öll að- ildarfélög LÍ eiga tvo fulltrúa í henni. „Við erum stolt af því að hafa komið jafnréttisstefnunni til leiðar. Hún á að vera lifandi skjal og laga sig að breyttum tímum. Vonandi sjáum við hana í fram- tíðinni verða að alhliða mannréttinda- stefnu, því þetta fléttast allt saman,“ segir Ólöf Sara. Læknafélagið setur sér jafnréttisstefnu Reynir Arngrímsson formaður Læknafélags Íslands og formaður stjórnar Fræðslustofnunar. Berglind Gunnarsdóttir, for- maður fræðslunefndar Félags heimilislækna. Elín Helga Þórarinsdóttir, sérnámslæknir í heimilis- lækningum. Ívið fleiri karlar sitja í stjórnum, nefndum og ráðum hjá Læknafélaginu en konur. Þeir veljast frekar í forystuhlutverk þeirra, eða í 75% tilvika. Kynjahlutfall í stjórnum, nefndum og ráðum hjá LÍ. Í forystuhlutverki.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.