Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2020, Side 33

Læknablaðið - nov. 2020, Side 33
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 527 Á síðastliðnu ári gerðist það að aðilar sem semja við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) um þjónustu tóku sig saman og óskuðu eftir úttekt endurskoðunarfyrirtækisins KPMG á starfsumhverfi veitenda í heilbrigðis- þjónustu sem gera samninga við SÍ. Þeir aðilar sem stóðu að þessu voru Læknafélag Reykjavíkur (LR), Félag sjúkraþjálfara, Samtök heilbrigðisfyrir- tækja, Tannlæknafélag Íslands og Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Ástæðan fyrir þessari sameiginlegu ákvörðun var sú að allir voru sammála um að núverandi kerfi í kringum kaup ríkisins á heilbrigð- isþjónustu væri gallað og að þörf væri á endurbótum. Í nóvember var haldið fjölmennt mál- þing um annmarka á kaupum ríkisins á heilbrigðisþjónustu þar sem skýrsla KPMG var kynnt. Við vinnslu skýrslunnar var safnað upplýsingum frá ofantöldum aðilum en þar að auki frá hjúkrunarheim- ilum og SÍ. Í skýrslunni kemur ýmislegt fram. Það sem meðal annars er gagnrýnt eru óskýr vinnubrögð og fyrirkomulag í tengslum við innkaup þar sem fram kemur vantraust á milli samningsaðila. Ótryggt starfsumhverfi rekstraraðila sem semja við SÍ einkennist af of stuttum gild- istíma samninga sem leiðir af sér ófull- nægjandi framþróun, fjárfestingu og upp- byggingu í þjónustunni. Nýliðun skortir og óvissa ríkir í starfsumhverfi. Hlutverk og ábyrgð aðila í stjórnkerfinu eru óskýr þar sem samspil heilbrigðisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Embættis landlæknis og SÍ virðist óljóst og illa skilgreint. Jafn- framt kemur fram að fagþekking af hálfu SÍ virðist ófullnægjandi, sem hefur í för með sér víðtæk áhrif á gerð, greiningu og eftirlit samninga og skortur er þar að auki á mannafla innan SÍ. Einnig kemur fram í skýrslunni að mikill aðstöðumunur sé á milli samningsaðila þannig að það hallar á þjónustuveitendur. Miklar og skyndilegar breytingar sem orðið geta á þjónustunni geta haft víðtæk áhrif og bitna að endingu á þjónustuþegum sem geta þurft að taka á sig kostnaðarhækkanir sem ekki hefur tekist að semja um. Þar að auki fyrirfinnst ekki ferli fyrir úrlausn ágreiningsmála. Fleiri frummælendur gagnrýndu á málþinginu vinnubrögð SÍ og staðfestu í raun mörg þeirra atriða og vankanta sem fram komu í skýrslu KMPG. Sú krafa kom upp á fundinum að SÍ tæki upp ný og bætt vinnubrögð. Stjórnvöld voru hvött til að bera sína ábyrgð og taka þátt í vinnu til að lagfæra annmarkana. Traust og virðing voru orð sem höfð voru í hávegum. Mark- miðið var augljóst, að skapa markvissara vinnuumhverfi, efla þjónustu og hámarka gæði. KPMG kastar þó ekki einungis fram annmörkum í skýrslunni heldur var einnig unnið að hugmyndum um það hvernig hægt væri að betrumbæta fyrir- komulag innkaupa SÍ fyrir undirbúning, samninga, eftirfylgni og vinnuumhverfi þessara aðila, þar sem traust og reglulegt samtal vógu þungt. Hugmyndir um það hvernig SÍ gæti staðið betur að undirbún- ingi koma einnig fram í skýrslunni, sem samræmist þar að auki settum lögum og núverandi heilbrigðisstefnu. Væntingar hafa skapast um það meðal þjónustuveitenda að vinnubrögð SÍ muni breytast og að hægt verði að snúa ofan- töldum annmörkum í rétta átt. Því miður virðist þó staðreyndin önnur. Svo virðist sem stefnan sé í raun óbreytt eða jafnvel að stefni í öfuga átt og mikil ólga og óvissa ríkir á meðal hinna ýmsu þjónustuveit- enda og SÍ. Þar með taldir eru sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar sem hafa verið án samnings í bráðum tvö ár. Í dag semur SÍ um kaup á um það bil 15-20% af allri heilbrigðisþjónustu hér á landi. Markmiðið er að SÍ sjái um öll kaup á heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins árið 2030. Það er deginum ljósara að þetta mun aldrei ganga ef ofangreindir ann- markar eru ekki lagfærðir. Ef ekki er geng- ið heilshugar að samningaborði af hálfu SÍ, í þeim tilgangi að stuðla að faglegu vinnuumhverfi sem einkennist af gæðum og góðri þjónustu, er óljóst hvert stefnir og hvað framtíðin ber í skauti sér. Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A FAL Guðrún Ása Björnsdóttir Ýmir Óskarsson FÍH Salóme Ásta Arnardóttir Jörundur Kristinsson FSL María I. Gunnbjörnsdóttir LR Þórarinn Guðnason Alma Gunnarsdóttir Stjórn Læknafélags Íslands sérfræðingur í háls- nef- og eyrnalækningum alma.gunnars@gmail.com LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO Kaup ríkisins á heilbrigðisþjónustu – vinnubrögð og vankantar Alma GunnarsdóttirÍ pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. Reynir Arngrímsson formaður BYLTING Í MEÐFERÐ LANGVARANDI HJARTABILUNAR Entresto dregur úr sjúkrahúsinnlögnum og dauðsföllum samanborið við enalapril 2 HLUTFALLSLEG ÁHÆTTUMINNKUN Á HJARTADAUÐA (CARDIOVASCULAR DEATH) EÐA FYRSTU SJÚKRAHÚSINNLÖGN VEGNA HJARTABILUNAR SBR. VIÐ ENALAPRIL *ARR 4,7% HLUTFALLSLEG ÁHÆTTUMINNKUN Á FYRSTU SJÚKRAHÚSINNLÖGN VEGNA HJARTABILUNAR, SBR. VIÐ ENALAPRIL *ARR 2,8% HLUTFALLSLEG ÁHÆTTUMINNKUN Á HJARTADAUÐA (CARDIOVASCULAR DEATH) SBR. VIÐ ENALAPRIL *ARR 3,1% PARADIGM-HF var fjölþjóðleg, slembiröðuð, tvíblind samanburðarrannsókn hjá 8.442 sjúklingum með langvinna hjartabilun (NYHA flokkar II-IV) og skert útfallsbrot (útfallsbrot vinstri slegils [LVEF] ≤40%, síðar breytt í ≤35%). * ARR = Hrein áhættuminnkun (absolute risk reduction).2 Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum Entresto, Lyfjastofnun, www.serlyfjaskra.is. 2. McMurrey JJV, Packer M, Desai AS, et al. for PARADIGM-HF Investigators and Committees. Angiotensin-neprilysin inhibition vs. enalapril in heart failure. N Engl J Med. 2014; 371(11):993-1004. EN T 20 19 /1 2- 57 /I S. Ú tb úi ð í d es em be r 20 19 Heiti virkra efna: sacubitril og valsartan. Ábendingar: Ætlað til meðferðar hjá fullorðnum sjúklingum við langvarandi hjartabilun með einkennum og skertu útfallsbroti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna.Samhliðanotkun með ACE hemlum. Ekki má gefa Entresto fyrr en 36 klst. eftir að meðferð með ACE hemli er hætt. Þekkt saga um ofnæmisbjúg í tengslum við fyrri meðferð með ACE hemli eða angíótensín II viðtakablokka. Arfgengur eða frumkominn ofnæmisbjúgur. Samhliðanotkun með lyfjum sem innihalda aliskiren hjá sjúklingum með sykursýki eða sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi (eGFR <60 ml/mín./1,73 m2). Verulega skert lifrarstarfsemi, gallskorpulifur eða gallteppa. Annar og síðasti þriðjungur meðgöngu. Markaðsleyfishafi: Novartis Europharm Limited. Nálgast má upplýsingar um lyfið, fylgiseðil þess og gildandi samantekt á eiginleikum lyfs á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is. Entresto 24 mg/26 mg, 49 mg/51 mg og 97 mg/103 mg, filmuhúðaðar töflur SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS – Styttur text SPC Ábending: Til meðferðar hjá fullorðnum sjúklingum við langvarandi hjartabilun með einkennum og skertu útfallsbroti.1

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.