Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Nov 2020, Page 37

Læknablaðið - Nov 2020, Page 37
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 531 Ný heildarlöggjöf um lyfjamál var sam- þykkt á Alþingi 29. júní 2020 og mun taka gildi þann 1. janúar 2021.1 Í 63. grein nýju lyfjalaganna eru þau nýmæli að heil- brigðisstarfsfólki er skylt að tilkynna um grun um alvarlega, nýja eða óvænta auka- verkun af notkun lyfs. Aukaverkun telst alvarleg, samkvæmt skilgreiningu, ef hún veldur dauða eða lífshættulegu ástandi, sjúkrahúsvist eða lengingu á sjúkrahús- vist, fötlun, ólæknandi eða langvarandi sjúkdómseinkennum eða fósturskaða. Aukaverkun telst óvænt ef ekki er getið um hana í samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC). Auk þessara tilkynninga er mikilvægt að tilkynna um aukaverkanir vegna lyfja sem notuð eru við COVID-19 eða hjá sjúklingum sem eru með COVID-19. Með tilkomu bóluefnis við COVID-19 verður einnig lögð sérstök áhersla á að tilkynna grun um aukaverkanir tengdar því. Heilbrigðisstarfsfólk þarf ekki að sanna tengsl lyfs og aukaverkunar. Alþjóðaheil- brigðisstofnunin (WHO) metur tengsl lyfs og aukaverkunar út frá matskvarða sem örugg, líkleg, hugsanleg eða ólíkleg (WHO Causality Assessment).2 Ástæða er til að tilkynna hugsanlega aukaverkun. Þetta á sérstaklega við um lyf sem hafa verið á markaði innan við 5 ár. Öllum aukaverkanatilkynningum er safnað í sam-evrópskan gagnagrunn (Eudravigilance). Tilkynningarnar eru svo metnar með tilliti til orsakasambands og fjölda. Lágmarksupplýsingar með tilkynn- ingu eru kyn, aldur, lyf og lýsing á auka- verkun. Ítarlegri viðbótarupplýsingar gefa betri mynd af tilvikinu og auðvelda mat á orsakasambandi. Vekja skal athygli á að það er auðvelt að tilkynna mögulega aukaverkun lyfs. Heilbrigðisstarfsfólk hefur aðgang að klínískum lyfjafræðingum Miðstöðvar lyfja upplýsinga á Landspítala til að auð- velda uppvinnslu á tilfellum. Við slíkt mat er notað viðurkennt verklag að breskri fyrirmynd (UK Medicines Information) sem Miðstöð lyfjaupplýsinga hefur tileink- að sér. Klínískir lyfjafræðingar fara yfir mikilvægar upplýsingar sjúkrasögu og rannsókna, lyfjasögu og mat á möguleg- um milliverkunum lyfja. Þær upplýsingar sem þurfa að liggja fyrir frá heilbrigðisstarfsfólki sem óskar slíkrar aðstoðar eru hvaða sjúkling um ræðir, lýsing á mögulegri aukaverkun og lyfið sem grunað er. Heilbrigðisstarfsmað- urinn fær síðan mat lyfjafræðings í hnit- miðuðu svari og aðstoð við að tilkynna til Lyfjastofnunar. Tilkynningin er send í nafni Miðstöðvar lyfjaupplýsinga sem einnig tekur að sér að vera í samskiptum við Lyfjastofnun ef ítarlegri upplýsinga er óskað. Ef um óvænta aukaverkun er að ræða er hægt að skoða í gagnagrunnum EMA (Eudraviglance) og WHO (Vigibase) hvort aukaverkunin hafi verið tilkynnt áður einhvers staðar í heiminum. Þetta er ómet- anlegt ef grunur vaknar um aukaverkun af lyfi sem er sjaldgæf, eða reynsla með lyf er takmörkuð. Þar er einnig hægt að meta fljótt hvaða lyf er líklegast til að valda einkennunum hjá sjúklingum á mörgum lyfjum. Þannig geta þessar upplýsingar líka gagnast einstaka sjúklingum. Ef um alvarlegar aukaverkanir er að ræða þarf aðeins fáar tilkynningar til að koma af stað skoðun á öryggi lyfsins sem getur leitt til uppfærslu á upplýsingum um ör- yggi lyfsins. Þar er framlag Íslands í slíka upplýsingaöflun jafnmikilvægt og framlag annarra landa. Um nokkurra ára skeið hefur ver- ið formlegt samstarfsverkefni á milli Landspítala og Lyfjastofnunar um tilkynn- ingar alvarlegra aukaverkana. Á svipuðum tíma og það hófst kom upp grunur um að lyfið nivolumab gæti hafa valdið alvar- legum aukaverkunum í heila, heilabólgu (encephalitis), og voru fjórar tilkynningar sendar frá Landspítala til Lyfjastofnunar og áfram í Eudravigilance. Hér var um alvarlegar, óvæntar aukaverkanir að ræða. Í ljós kom að þegar voru 9 tilkynningar um heilabólgu skráðar í Eudravigilance. Við bættust fjórar tilkynningar frá Íslandi. Þessar fáu tilkynningar leiddu til frekari skoðunar hjá nefnd EMA um lyfjagát (PRAC) og leiddu til þess að viðvörunum var bætt við samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC). Tilkynningar frá Íslandi lögðu mikilvægt lóð á vogarskálarnar. Þess vegna er lögð áhersla á að heil- brigðisstarfsmenn átti sig á sínu mikil- væga hlutverki í lyfjagát, að taka þátt í al- þjóðlegri upplýsingaöflun um öryggi lyfja eftir að þau koma á markað. Þetta er nú orðið skylda, samkvæmt nýjum lyfjalög- um, ekki til að beita viðurlögum, heldur til að leggja áherslu á ábyrgð heilbrigðis- starfsmanna á að tryggja öryggi sjúklinga. Aukaverkanir má tilkynna á vefeyðublaði á heimasíðu Lyfjastofnunar en einnig er hægt að tilkynna í gegnum Sögukerfið eða ICEBIO (hjá gigtardeild Landspítala). Á Landspítala er hægt að leita til Miðstöðvar lyfjaupplýsinga til að fá aðstoð við auka- verkanatilkynningar. Heimildir 1. Stjórnarráð Íslands, Ný heildarlöggjöf um lyfjamál samþykkt á Alþingi, 30. júní 2020. stjornarradid.is/efst-a- -baugi/frettir/stok-frett/2020/06/30/Ny-heildarloggjof-um- lyf-samthykkt-a-Althingi/ - október 2020. 2. The use of the WHO-UMC system for standardised case causality assessment. who.int/medicines/areas/quality_ safety/safety_efficacy/WHOcausality_assessment.pdf október 2020. Aukaverkanatilkynningar og ný lyfjalög Guðrún Stefánsdóttir1 lyfjafræðingur Hrefna Guðmundsdóttir1,2 læknir Elín I. Jacobsen2 lyfjafræðingur 1Lyfjastofnun, 2Landspítali F R Á L Y F J A S T O F N U N O G L A N D S P Í T A L A hrefna.gudmundsdottir@lyfjastofnun.is

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.