Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nov. 2020, Síða 39

Læknablaðið - nov. 2020, Síða 39
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 533 Einmanaleikinn ekki aðeins á tíma kórónuveirunnar ,,Í vetur, þegar COVID-19 kom upp, urð- um við vör við að töluvert margir aldraðir upplifðu mikinn einmanaleika og kvíða, vandamál sem var þegar til staðar varð alvarlegra. Afar og ömmur búa ekki leng- ur inni á heimilum afkomendanna, það er löngu liðið. Augu fólks beindust að þessum vanda út af COVID og ástandið var erfitt í vor. Við þurftum að loka okkar deild, en nú í haust höfum við ákveðið að hafa opið og nýta allar þær varúðarráð- stafanir sem unnt er að grípa til og þær eru gríðarlegar. Í upphafi faraldursins var lögð mest áhersla á að verja fólk fyrir líkamlegum áhrifum COVID, en andleg líðan og einangrun geta líka verið heil- brigðisvandamál. Fólk tapar færni, fer ekki úr út húsi, hreyfir sig ekki, einangr- ast heima, nærist ekki, hittir ekki vini og ættingja og koðnar niður. Sums staðar var dagþjálfun lokað í vor en annars staðar ekki. Við sáum merkjanlegan mun á hóp- unum sem nutu dagþjálfunar og þeirra sem gerðu það ekki. Sáum fólk sem hafði lést gríðarlega, misst færni til venjubund- inna athafna og var skelkað. Tölvufærni margra aldraðra er takmörkuð eða engin og það eykur bæði á einangrunina og útilokar þá frá því að sækja sér ýmsa þjónustu, svo sem að geta pantað sér mat gegnum netið. Öryggið skiptir enn sem fyrr mestu máli en á þessu ástandi þarf að finna lausn og búseta á sambýlum aldraðra hefði getað komið í veg fyrir ein- angrun. Hjá okkur er staðan sú að hér mynduð- ust biðlistar og ásóknin jókst, tilvísunum fjölgaði. Það mun taka tíma að vinda ofan af þessu. Við ákváðum að gera örkönnun meðal skjólstæðinga okkar til að fá staðreynd- irnar á borðið og staðfesta þá tilfinningu sem við höfum fyrir ástandinu. Við sjáum til dæmis að næstum því 70% segja að COVID hafi breytt þeirra daglegu rútínu og um 80% segja að COVID hafi haft áhrif á líðan þeirra til hins verra. Um 95% segjast hitta vini og ættingja minna en áður. Mér finnst það skylda mín að leggja fram upplýsingar um hvert ástandið er hjá öldruðum, það er fyrsta skrefið til breytinga. Í sjálfu sér vitum við margt um hvern- ig má bæta stöðu aldraðra. Þar skiptir bæði máli aðgangur að aðila sem er tengiliður og samhæfir þjónustuna, vax- andi teymisvinna milli ólíkra aðila heil- brigðis- og félagsþjónustu og fjölbreyttari búsetuform. En okkur vantar alltaf fleira heilbrigðisstarfsfólk í öldrunarþjónustu. Ég bind miklar vonir við sérnámið í öldrunarlækningum, þetta er ein besta sérgrein sem hægt er að læra, fjölbreytt, kostur á sérhæfingu og auk þess eitt helsta framtíðarviðfangsefni heilbrigðis- þjónustunnar.“ Anna Björg í anddyri Landakots- spítalans. Mynd/aób Snögg umskipti á Landakoti Frá því viðtalið við Önnu Björgu Jóns- dóttur var tekið hafa orðið snögg umskipti á Landakoti. Umskipti sem ekki sér fyrir endann á er þetta er ritað, 25. október 2020. Alvarleg hópsýking var staðfest á spítalanum 22.10. Fjöldi sjúklinga og starfsmanna hefur þurft að fara í sóttkví auk þess sem veiku- stu sjúklingarnir hafa verið færðir á Landspítala í Fossvogi. Landspítalinn hefur vegna þessa ástands í fyrsta sinn verður færður á neyðarstig.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.