Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 42

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 42
536 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Ingibjörg Guðmundsdóttir, Helgi Birgisson, Ágúst Ingi Ágústsson Frumurannsóknastofu Krabbameinsfélagsins, Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins og Leitarstöð Krabbameinsfélagsins Ástæða þessara greinarskrifa eru um- hugsunarverð ummæli sem komu fram í viðtali við Óskar Reykdalsson í síðasta tölublaði Læknablaðsins. Þar var rædd- ur undirbúningur flutnings skimunar fyrir leghálsskrabbameini frá Leitarstöð Krabbameinssfélagsins yfir til heilsugæsl- unnar. Meðal annars virðast vera komnar fram hugmyndir um að að flytja frumu- rannsóknir á leghálssýnum frá Íslandi til annarra landa og segir Óskar orðrétt: „… Við höfum rannsóknarstofu í Skandinavíu sem er tilbúin að vera okkur innan handar ef á þarf að halda. Ódýrast er oftast að senda á stórar stofnanir með mikla sjálf- virkni …“* Við efumst um að það þjóni hags- munum íslenskra kvenna að flytja þessa starfsemi úr landi og viljum því í stuttu máli kynna betur starfsemi frumurann- sóknastofu Krabbameinsfélags Íslands (FKÍ), en hún hefur verið rekin í yfir 40 ár. Við leghálssýnatöku er strok tekið með því að skrapa ytra leghálsop og neðsta hluta leghálsgangsins. Sýnið er sett í sýnatökuglas með flutningsvökva og sér vélasamstæða (ThinPrep Processor) um að undirbúa sýnið og setja á smásjár- skoðunargler. Rúm 27.000 leghálssýni eru skoðuð frá íslenskum konum ár hvert. Skoðun hvers sýnis er nákvæmnisvinna og afleiðingar þess að missa af alvarlegum frumu- breytingum geta verið afdrifaríkar eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið. Sérþjálfaðir frumugreinar skoða sýnin á staðlaðan hátt. Ef grunur er um frumu- breytingar fer sýnið til skoðunar hjá frumumeinafræðingi. Fyrir tveimur árum var tekið í notkun tæki (ThinPrep Imaging System) á FKÍ sem skannar yfir sýnið og velur út þá staði sem líklegast er að hafi frumubreytingar. Þetta eykur næmi rannsóknarinnar, það er að segja ólíklegra er að frumubreytingar fari fram hjá frumugreinum. Tækninni miðar áfram en mannsaugað er enn sem komið er ómissandi. Frumubreytingar eru flokkaðar af meinafræðingi í tvo undirflokka, sem eru vægar og alvarlegar frumubreytingar. Rúmlega 18% sýna (5000 tilfelli á ári) hafa vægar frumubreytingar sem leiða til HPV-mælingar á sýninu en um 40% þessara kvenna hafa há-áhættu HPV-veiru og er því boðið í endurkomu eftir hálft ár, hinar fara í hefðbundna skimun. Ef alvarlegar frumubreytingar greinast leiðir það strax til leghálsspeglunar og töku vefjasýnis (rúmlega 500 tilfelli á ári). Tilkoma HPV-mælinga hefur breytt skimunum fyrir forstigum leghálskrabba- meina mikið síðustu ár. Frá árinu 2015 hafa HPV-mælingar verið notaðar á Ís- landi sem viðbót við frumusýnaskoðunina þegar vægar frumubreytingar greinast (um 5000 mælingar á ári). Skimun með HPV er einnig notuð í dag fyrir svokallað útgöngusýni hjá konum sem eru 65 ára (um 1200 HPV mælingar á ári). HPV-mæl- ingar eru gerðar á sýkla- og veirufræði- deild Landspítala. HPV-skimun hefur betra næmi en skimun með hefðbundinni frumurann- sókn, hins vegar er sértæki minna. Aðeins lítill hluti þeirra kvenna sem greinast há-áhættu jákvæðar við HPV-skimun eru með frumubreytingar og því langflestar með eðlileg frumusýni. Það verður því áfram þörf á að gera frumurannsóknir hjá HPV-jákvæðum kon- um til að geta sagt til um hverjar þurfi á frekari rannsóknum að halda. Til að flækja málið enn frekar má búast við að um 80% kvenna komist í kynni við HPV á lífsleiðinni og að um helmingur kvenna sé með HPV í leghálssýni á yngri árum. Því mæla til dæmis hin Norður- löndin með því að frumurannsókn verði áfram fyrsta skimunarrannsókn fram til 29 ára aldurs. Bólusetning gegn HPV veirustofnum mun einnig hafa mikil áhrif á leghálsskimun í framtíðinni en hún minnkar mjög áhættu á forstigsbreyting- um og þar af leiðandi leghálskrabbameini. Samantekið má því segja að frumu- rannsóknum muni fækka í framtíðinni, en að þær muni áfram gegna lykilhlutverki við skimun forstiga leghálskrabbameins. Á FKÍ er til staðar áratuga þekking á leit að afbrigðilegum frumum í legháls- sýnum. Ísland verður fátækara ef þessi þekking verður látin glatast og starfsemin flutt úr landi samhliða flutningi legháls- leitar frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til heilsugæslunnar um næstu áramót. Tíminn sem tekur að skoða og að fá svar við leghálssýnum myndi lengjast mikið og utanumhald verður einnig flóknara ef starfsemin fer að stórum hluta fram erlendis. Hætta á mistökum eykst í ferlinu. Þessu til stuðnings má geta mik- illa erfiðleika Íra sem sendu stóran hluta sinna leghálssýna úr landi til greiningar árið 2008, en í kjölfarið jókst til muna fjöldi leghálskrabbameina og dauðsfalla vegna þeirra. Það getur tekið stuttan tíma að rífa niður það sem hefur verið byggt upp á löngum tíma. Að flytja þessa starfsemi úr landi er ekki skynsamlegt fyrir íslenska heilbrigð- isstarfsemi. Við vonum því að ráðamenn átti sig á þessu og sjái til þess að frumurannsókn- um leghálssýna verði áfram sinnt hér innanlands. Tilvist frumurannsókna leghálsskimunar á Íslandi ógnað? B R É F T I L B L A Ð S I N S helgi.birgisson@krabb.is * Gunnarsdóttir GA. Ljósmæður munu taka leghálssýnin á heilsugæslunum, segir Óskar Reykdalsson. Læknablaðið 2020; 106: 445.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.