Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Nov 2020, Page 44

Læknablaðið - Nov 2020, Page 44
538 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 R A D D I R L Æ K N A Guðrún G. Björnsdóttir bráðalæknir í Glasgow Guðrún segir það vera skrýtið að vera núna raunverulega fjarri öllum. „Áður var svo stutt að skreppa til Íslands eða fyrir fjölskyldu og vini að skella sér í heimsókn í beinu flugi til Glasgow. Það er eins og að við fjölskyldan höfum skyndilega flust til útlanda og farið aftur til tíma skipaferða.“ COVID og „novid“ Guðrún vinnur núna á gjörgæslu á öðrum af stóru spítölum borgarinnar Glasgow. Í fyrri bylgjunni í vor þurfti að þrefalda plássið fyrir gjörgæsluna og það var full- nýtt. „Sögurnar af álagi eru ógnvekjandi. Vaktalínur voru margfaldaðar og starfs- fólk frá öðrum sviðum var þjálfað upp til vinnu. Á sama tíma voru sumar lyflækn- ingadeildir aðeins hálffullar vegna þess að einangra þurfti sjúklinga og margar skurðdeildir voru teknar undir lyflækn- ingar. Nú er önnur bylgjan að byrja hér, það er búið að skipta gjörgæslunni upp í COVID og „novid“ eins og þau kalla það. Tilfellum fer núna ört fjölgandi hér og við erum líklegast hvergi nærri öðrum toppi. Hér er búist við viðvarandi bylgju allan veturinn. Það er ónotaleg tilhugsun.“ Fyrri hluta ársins starfaði Guðrún á lyflækningasviði á öðrum spítala og segir að þá hafi verið mjög mismunandi eftir stökum deildum hversu vel fólk kunni að búa sig og hvaða verkferlar hafi verið í notkun. „Það var ruglingslegur tími og allt einkenndist af óvissu en fólk var ótrú- lega nægjusamt, staðfast og duglegt. Ís- lendingurinn í mér hneykslaðist á aðbún- aðinum og dugleysi stjórnenda, en fólk hér hélt bara sínu striki.“ Hún bætir við að hún heyri það á gjörgæslulæknunum á sjúkrahúsinu í Glasgow, þótt viss uggur sé í þeim, að þau búi að reynslunni úr fyrri bylgjunni. „Þau vita að þetta hafðist. Svo þekkja þau kvillann aðeins núna og vita betur en áður við hverju er að búast. Ég ætla því að vera vongóð um að þótt mikið verði að gera, þá munum við gera okkar vel.“ Skortur á hlífðarbúnaði olli smitum Spurð um hverju hún taki helst eftir ólíku með Bretlandi og Íslandi á tímum COVID, segir Guðrún að munurinn sé næstum farsakenndur. „Ekkert traustvekjandi þríeyki er hér heldur sein og ómarkviss viðbrögð ríkisstjórnar með þriggja orða slagorð sem gera mismikið gagn. Þegar skortur var á veiruprófum var ákveðið að prófa fáa. Skortur á hlífðarbúnaði leiddi til þess að gefnar voru út ráðleggingar um að ekki þyrfti nema léttan maska, hanska og ermalausa svuntu við almenna umönnun og mat á hóstandi COVID-sjúklingum. Svo er fullur hlífðarbúnaður ef sjúklingar eru barkaþræddir eða annað loftúðaframleið- andi (aerosol generating) á sér stað. Þetta leiddi af sér að talsvert af starfsfólki á lyf- lækningadeildum smitaðist af COVID en afar fáir á gjörgæslum.“ Hvað hefði verið hægt að gera betur? „Í Bretlandi var loksins sett á útgöngubann þegar reynt var að stemma stigu við smit- um. Við tóku 12 vikur án skóla eða sam- Raddir lækna erlendis Læknablaðið sendi línu til nokkurra íslenskra lækna sem eru við nám og störf erlendis til að fá fréttir af líðan þeirra, daglega starfi og hvaða breytingar COVID-19 hefur haft í för með sér ■ ■ ■ Olga Björt Þórðardóttir „Ég fylltist hreinlega auðmýkt við að sjá hvernig hægt er að vinna saman að markmiðum ef vilji er fyrir því. Á spítölum var öllu snúið við, verkferl- um breytt, fólk tók að sér ný störf og fólk leysti ágreiningsmál. Stórir spít- alar og stórt heilbrigðiskerfi eins og NHS (National Health Service) er æði oft fast í hjólförum. Þetta var jú einu sinni heimsveldi. Eftir þetta eigum við öll þessa sameiginlegu reynslu.“

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.