Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - apr. 2020, Side 21

Læknablaðið - apr. 2020, Side 21
LÆKNAblaðið 2020/106 189 R A N N S Ó K N Sjónsviðsskerðing mældist á bilinu 0,8-26,2 desibel (dB) og meðaltal sjónsviðsskerðingar við tilvísun í aðgerð var 13,4 ± 7,7 dB (mynd 1). Tilfellum var skipt í þrjá hópa eftir alvarleika sjóns- viðsskerðingar: 18 augu höfðu milda sjónsviðsskerðingu (21%), 20 augu miðlungsalvarlega (23%) og 48 augu alvarlega (56%) (mynd 1 og tafla I). Augu með milda sjónsviðsskerðingu höfðu hærri augnþrýsting við tilvísun í aðgerð (25 mmHg) samanborið við augu með miðlungsalvarlega (21 mmHg) og alvarlega skerðingu (21 mmHg) (tafla 1). Þessi munur var ekki tölfræðilega marktæk- ur (fervikagreining, ANOVA: p=0,16; Tukeys próf: p>0,05). Augu með alvarlega sjónsviðsskerðingu höfðu marktækt hærri meðala- ldur, eða 77 ár samanborið við 70 ár við mildan sjúkdóm (ANOVA: p=0,03; Tukeys: p<0,05). Samanburður á alvarleika sjónsviðsskerðingar eftir gláku- tegund sýndi að augu með flögnunargláku höfðu marktækt minni sjónsviðsskerðingu við tilvísun í aðgerð samanborið við augu með frumgleiðhornagláku (p<0,05, t-próf). Meðaltal sjónsviðs- skerðingar fyrir frumgleiðhornagláku var 14,7 ± 7,7 dB samanborið við 11,0 ± 7,5 dB fyrir flögnunargláku. Ástæða tilvísunar í aðgerð var í 70% tilvika versnun á sjónsviði (60 augu) og af þeim höfðu 33% einnig hækkaðan augnþrýsting, 22% höfðu einnig óþol gagnvart lyfjum og 3% höfðu einnig lélega meðferðarheldni. Tuttugu og þremur prósentum sjúklinganna var vísað í aðgerð vegna hækkaðs augnþrýstings án versnunar á sjón- sviði og í 7% tilfella var sjúklingum vísað í aðgerð vegna óþols fyrir lyfjum. Augum sem var vísað í aðgerð vegna óþols gagnvart lyfjum höfðu marktækt minni sjónsviðsskerðingu en augu sem var vísað í aðgerð vegna versnunar á sjónsviði (p<0,05, ANOVA og Tukeys-próf). Að öðru leyti var ekki marktækur munur á sjón- sviðsskerðingu eftir tilvísunarástæðu (mynd 2). Meðalfjöldi augnþrýstingslækkandi lyfja var 3,0 ± 1,2 lyf á hvern sjúkling (0-6 lyf). Sextíu og fjögur prósent sjúklinganna tóku þrjú lyf eða fleiri (mynd 3). Ekki var marktækur munur á sjónsviðsskerðingu eftir því hve mörg lyf sjúklingur tók (mynd 4). Ályktun og umræða Þeir sjúklingar sem undirgengust fyrstu hjáveituaðgerð á Íslandi á rannsóknartímabilinu höfðu allt frá mildri til alvarlegrar sjón- sviðskerðingar. Líkt og klínískar leiðbeiningar mæla með virðist meðferðin einstaklingsmiðuð og algengasta ástæða tilvísunar í að- gerð var versnun á sjónsviði. Hins vegar höfðu tæplega 80% augna miðlungs eða alvarlegan skaða við tilvísun í aðgerð og meðaltal sjónsviðsskerðingar (13,4 dB) reyndist hærra í okkar rannsókn en í erlendum samanburðarrannsóknum. Í rannsókn Foulsham og félaga í Bretlandi var meðaltal sjónsviðsskerðingar 7,3 dB,11 í kanadískri rannsókn Baril og félaga 8,7 dB14 og í hollenskri rann- sókn Montolio og félaga 11 dB15. Í einni breskri rannsókn (Jiang og félagar) höfðu augu álíka mikla sjónsviðsskerðingu (12,97 dB) og Mynd 2. Sjónsviðsskerðing (MD) eftir ábendingu fyrir aðgerð. Kassinn táknar hundraðshluta nr. 25, 50 og 75. Línurnar tákna hámark og lágmark. Augu sem var vísað í aðgerð vegna óþols gagnvart lyfjum höfðu marktækt minni sjónsviðsskerðingu en augu sem var vísað í aðgerð vegna versnunar á sjónsviði (p<0,05). Mynd 3. Heildarfjöldi augnþrýstingslækkandi lyfja sem sjúklingar tóku við tilvísun í aðgerð (augnþrýstingslækkandi augndropar og lyf til inntöku). Mynd 4. Sjónsviðsskerðing (MD) eftir fjölda lyfja. Kassinn sýnir hundraðshluta nr. 25, 50 og 75. Línurnar sýna hámark og lágmark. Það var ekki marktækur munur á sjón- sviðsskerðingu eftir fjölda glákulyfja. 0 1 2 3 4 5 6 30 20 10 0 Fjöldi lyfja Fj öl di s jú kl in ga 0-1 2 3 4 5+ (n=7) (n=24) (n=25) (n=23) (n=7) 30 25 20 15 10 5 0 Fjöldi glákulyfja M D (d B) 30 25 20 15 10 5 0 M D (d B) Sjónsviðs- Hækkaður Óþol fyrir skerðing augnþrýstingur lyfjum (n=60) (n=20) (n=6)

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.