Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Síða 26

Læknablaðið - apr. 2020, Síða 26
194 LÆKNAblaðið 2020/106 F R É T T A S Í Ð A N „Nei, við erum ekki lífhrædd,“ segja þau Margrét Ólafía Tómasdóttir og Guðmund- ur Ingi Sveinsson sem fóru í útköll vegna kórónuveirunnar fimmtudaginn 11. mars á sérútbúinni sendiferðabifreið. Hún sem læknir, hann atvinnubílstjóri Læknavakt- arinnar. Læknablaðið slóst í för með þeim þar sem þau vitjuðu um sýktan einstak- ling í Hafnarfirði. „Fólk sem finnur aukin einkenni kór- ónuveiru er hrætt út af öllum fréttaflutn- ingnum og hárri andlátstíðni á Ítalíu og í Kína. Það vill fá lækni til að kíkja á sig og meta stöðuna,“ segir Margrét Ólafía sem klæddist hlífðarútbúnaðinum með aðstoð Guðmundar aftur í bifreiðinni áður en hún sinnti sjúklingnum. Hvernig líður læknum þegar þeir heyra af nýrri veiru? „Þetta er eitthvað sem læknar búast við að ganga í gegnum nokkrum sinnum á starfsævi sinni. En auðvitað verður maður uggandi, sérstak- lega þegar veiran er hættuleg og getur verið banvæn. Við búumst við, eins og nú er orðið: álagi og óreiðu.“ Hún segir breytingarnar stöðugar dag frá degi. „Það er endalaust verið að breyta áætluninni og laga sig að ástandinu eins og það er hverju sinni. Það krefst mikils, sérstaklega í heilsugæslunni.“ Hún segir sérstaklega hafa verið erfitt að sleppa handabandinu. „Á hverjum degi hafa handaböndin verið 30-130. Það er erfitt að venja sig af því að taka í hendurn- ar á fólki,“ segir hún. Bíllinn er ekki eins vel búinn og sjúkrastofurnar og þau hafa þurft að sýna útsjónarsemi. „Við tókum til að mynda upp á að nota tvenn pör af hönskum til að lágmarka smithættu. Smitvarnir eru upp- haflega þróaðar inni á spítalanum þar sem við erum með ruslafötur sem hægt er að opna með fótstigi, vaskinn við hliðina á og aðra slíka hluti,“ segir hún. „En það er öðruvísi að hafa sig til aftur í bíl í miðbænum með jafnvel ferðamenn í kringum sig. Með tveimur settum af hönskum getum við tekið af okkur mask- ann og gallann án þess að eiga á hættu að fá smit á hendur,“ lýsir hún. Vitja sjúkra á sérútbúinni COVID-bifreið Heimilislækningar draumastarfið Margrét lauk sérfræðinámi í heimilislækningum fyrir 6 árum og hefur starfað í 13 ár sem læknir. Hún tók doktorspróf í Þrándheimi í Noregi. „Það er frábært að vera heimilislæknir. Draumastarfið,“ segir hún. „Ég ætlaði ekki að verða læknir til að byrja með. Ákvað það á fjórða ári í læknanámi. En smám saman heillaðist ég af heimilislækningum og er klárlega á réttri hillu,“ segir hún þar sem við ökum áleiðis frá Hafnarfirði þar sem sjúklingur smitaður af COVID-19 fékk aðhlynningu. Margrét Ólafía Tómasdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum, og Guðmundur Ingi Sveinsson, atvinnubílstjóri Læknavaktarinn- ar, aðstoðuðu hvort annað fagmannlega við þjónustu COVID-19-sýktra skjólstæðinga. Myndir/gag Læknavaktin sinnir COVID-19- sjúkum og þeim sem komast ekki sjálfir á heilsugæslustöðvar vegna kórónaveirunnar sem nú geisar um heiminn. Læknablaðið slóst með í för gegn krúnuvírusnum

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.