Læknablaðið - apr. 2020, Síða 34
202 LÆKNAblaðið 2020/106
9. Fylgdu gleðinni, gefðu þér tíma fyr-
ir það sem þér finnst skemmtilegt,
mundu að leika þér og hlæja.
10. Ekki eyða löngum tíma í að velta þér
uppúr sjálfum/sjálfri þér hvernig
þú stendur þig eða lítur út í augum
annarra, athugaðu frekar hvort þú get-
ur orðið einhverjum öðrum að liði, það
er mikið skemmtilegra.
11. Allt breytist, og erfiðir tímar ganga líka
yfir. Hjálpumst að og munum eftir öllu
því mikla sem við höfum til að þakka
fyrir. 🌸
11. mars
Karl G. Kristinsson
Nú er búið að greina 14 einstaklinga með
COVID-19 sýkingu á Íslandi. Íslenskt heil-
brigðiskerfi er viðkvæmt og afdrifaríkt
gæti verið ef upp koma smit og veikindi
hjá læknum. Læknafélag Íslands hefur því
farið þess á leit við lækna að þeir fresti
fundum og þátttöku í samkomum sem
ekki telst nauðsynleg eða getur beðið á
meðan það er að skýrast hvert umfang
faraldursins verður. Vegna stöðu minnar
mun ég verða við þessum tilmælum. Við
Guðrún höfum því ákveðið að fara ekki
á tónleikana á laugardaginn, "Gunnar
Þórðarson 75 ára". Við eigum tvo miða
á besta stað 1. svalir 1. bekkur, klukkan
16:00 á laugardaginn. Hver miði kostaði
12.990 krónur og það er nánast uppselt
á tónleikana. Er ekki einhver sem hefði
áhuga á að fá þessa miða á 10.000 krónur
hvorn miða?
26. mars
Síðustu dagar hafa verið sérstakir. Höfum
unnið hörðum höndum að því að afla
nothæfra sýnatökusetta. Eftirspurnin er
margfalt meiri en framboðið og í sumum
tilvikum er selt hæstbjóðanda sem býður
reiðufé. Við höfum fundið fyrir ótrúleg-
um stuðningi fjölmargra velunnara sem
hafa sambönd um allan heim. Fyrir þeirra
Heilög þrenning sem þjóðin hefur algerlega reitt sig á að undanförnu á daglegum upplýsingafundum í beinni kl 14 á
RÚV: Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir og Alma Möller landlæknir. Fundirnir eru táknmálstúlkaðir, - á þessum fundi, 9. mars, sá Árný Guðmunds-
dóttir um þá hlið. - Mynd/Védís
Ólafur Már Björnsson tók þessa mynd af toppi Snæfellsjökuls.