Læknablaðið - apr 2020, Qupperneq 39
LÆKNAblaðið 2020/106 207
þvagfæraskurðlæknarnir á Íslandi sem ég
hafði kynnst, Eiríkur Jónsson, Guðmund-
ur Vikar og Þorsteinn Gíslason, allt góðir
menn í sínu fagi og ég leit upp til, fóru
til Ameríku og ég ákvað að feta í fótspor
þeirra.“
Hann lærði í Dartmouth í New Hamps-
hire, sem er í um tveggja tíma akstursfjar-
lægð frá Boston. Þar hafi íslenskir læknar
verið fyrir, bæði Eiríkur Jónsson og Einar
Sverrisson en hann starfar enn við þann
spítala.
„Ég vissi því að hverju ég gekk,“ seg-
ir Jóhann. Umhverfið sé sérstakt. „Ivy
League“ háskóli í 12.000 manna bæ í
skóglendi langt frá öllum stórborgum.
Hann fór ekki einn út. Álfheiður Haralds-
dóttir konan hans og nokkurra mánaða
dóttir fluttu með. „Svo fæddist seinni
dóttirin þegar við vorum búin að vera úti í
5 ár,“ segir hann.
Of dýrkeypt að flytja heim
Hann stefndi heim eftir sérnám en sótti
fyrst undirsérnám á Mayo Clinic í Roche-
ster Minnesota. „En sérnám er ekki arð-
vænlegt til skamms tíma og sagan mín
því lík sögu margra. Við vorum með lítil
fjárráð eftir sérnámið og lítið uppsafnað
fé. Við sáum að það gengi ekki upp fjár-
hagslega að koma heim,“ segir hann.
„Það er erfið tilhugsun að flytja heim 38
ára með tvö börn eftir strangt háskólanám.
Það er einfaldlega ekki hlaupið að því.“
Þau hafi því sótt um starf í Banda-
ríkjunum. „Því er ekki að neita að laun
þvagfæraskurðlækna í Bandaríkjunum
eru góð.“ Þá hafi ekki skemmt fyrir að fá
starf sem var sem sniðið að námi hans og
fullmótað.
Var á Læknadögum
Jóhann sagði frá nýrnasteinaaðgerðum
sínum á Læknadögum í janúar. Hann
bendir á að 11. hver Bandaríkjamaður fái
nýrnasteina og margir hverjir aftur og aft-
ur. „Þetta er það algengt vandamál,“ segir
hann.
Hann segir að flestir sjúklingar sem fái
nýrnasteinakast nái að skila steinunum frá
sér af sjálfsdáðum. „Þetta eru grábölvaðir
verkir og fólki líður ömurlega. Ef það nær
að pissa þeim út ráðumst við ekki í inn-
grip.“ Þrjár leiðir séu í boði gangi steinarn-
ir ekki niður.
„Hægt er að nota höggbylgjumeðferð
sem brýtur steininn niður í smáar agnir.
Svo stólum við á að sjúklingurinn skili
þeim út. Kosturinn við þá aðferð er að
ekkert tæki fer inn í sjúklinginn og ekki
Jóhann Ingimarsson hefur komið sér vel fyrir í
Bandaríkjunum eftir sérnám ásamt fjölskyldu
sinni. Hann flutti erindi á Læknadögum um
nýrnasteina en fjórðungur allra aðgerða sem
hann framkvæmir eru tengdar þeim. Mynd/
Védís