Læknablaðið - Apr 2020, Page 41
LÆKNAblaðið 2020/106 209
Rangt er að Landspítali hafi talið sig fórn-
arlamb vegna fráflæðisvandans sem ríkti
á spítalanum fyrir kórónuveirufaraldurinn
COVID-19. „Það er alrangt þegar horft er
til þess mikla innra starfs sem spítalinn
hefur lagt í til að slípa ferla sína,“ segir
Páll Matthíasson, forstjóri spítalans.
Í áliti tveggja sænskra sérfræðinga,
Markus Castegren og Johan Permert, sem
voru í sérstökum átakshópi stjórnvalda
sem kynnti tillögur til lausnar bráðamót-
tökunnar 25. febrúar, segir að spítalinn líti
á sig sem fórnarlamb. „Hugtakið á hins
vegar sannarlega við þá sem hafa þurft að
bíða fullnægjandi úrræða og beðið þeirra
við misgóðar aðstæður á Landspítala,“
segir Páll í skriflegu svari til Læknablaðsins.
Vandinn vegna langlegunnar
Eins og þekkt er voru aldraðir sjúklingar
sendir á nýtt hjúkrunarheimili til að rýma
spítalann og leysa fráflæðisvandann í að-
draganda kórónufaraldursins COVID-19.
Páll segir spítalann hafa kallað eftir lausn-
um lengi. Löng lega sjúklinga væri ástæða
þess að meðalbiðtími á bráðamóttöku eftir
innlögn nærri tvöfaldaðist á þremur árum.
„Meðallegutími þeirra sem dvelja
styttra en mánuð á spítalanum hefur
lækkað ár frá ári síðustu árin og er nú
4,5 dagar. Vandinn er annar staðar. Hann
felst í því að 1% sjúklinga tekur upp 22%
legudaga,“ bendir hann á. Tryggja þurfi að
ástandið endurtaki sig ekki þegar frá líður.
Það sé stóra verkefnið.
„Það gerum við með því að byggja upp
endurhæfingarfarvegi á spítalanum og
í samstarfi við þá sem veita heimaþjón-
ustu, en á sama tíma þarf að hraða hjúkr-
unarheimilisuppbyggingu,“ segir hann.
„Landspítali er ekki í hjúkrunarheimilis-
bransanum.“
Mannanna verk ófullkomin
Spurður um orð stjórnmálamanna sem
hafa sagt vanda Landspítala stjórnunar-
legs eðlis, svarar hann: „Öll stjórnun er
mannanna verk og þar með ófullkomin.
Því ætla ég seint að halda því fram að við
á Landspítala getum ekki gert betur,“ seg-
ir hann.
„Við erum sannarlega sífellt að vinna
að skilvirkari rekstri, á sama tíma og við
viljum veita góða og örugga þjónustu og
skapa vinnuumhverfi sem starfsfólki líður
vel í. Þetta er snúið á bestu stundum. Hvað
þá þegar ein krísan rekur aðra, þannig að
verkefni sem eru mikilvæg í lengd, víkja
fyrir áríðandi málum.“
Hann segir hins vegar mikilvægt að
horfa á stóru myndina. „Í samanburði við
nágrannalönd erum við að verja tugmillj-
örðum minna á ári í heilbrigðismál heldur
en þau.“ Aldursdreifingin skýri ekki allan
þann mun, ekki þegar komi að Landspít-
ala, sem sinni þeim veikustu.
„Hvort við skipuleggjum starfsemi spít-
alans í deild A og B eða 6 og 7, hvort yfir
spítalanum er stjórn eða ekki, hvort fram-
kvæmdastjórar eru 2 eða 10. Allt þetta eru
smámál í samanburði við stóra vandann –
heilbrigðiskerfið er undirfjármagnað mið-
að við þann árangur sem við viljum sjá.“
Hann segir verkefni næstu ára og ára-
tuga að setja stærri hluta af þjóðarkökunni
í heilbrigðismál. Það kalli á erfiða for-
gangsröðun í ríkisfjármálum. „Það er for-
gangsröðun sem stjórnmálamenn þurfa að
sinna, því þetta er stærra verkefni en svo
að ein stofnun, ein stétt eða jafnvel einn
flokkur geti leyst það upp á eigin spýtur,“
segir hann. „Og þetta verkefni verður
leyst, því það er engin önnur leið.“
Páll segir brýnt að
koma í veg fyrir
annan fráflæðisvanda
Páll Matthíasson forstjóri Landspítala segir brýnt að spítalinn hrökkvi
ekki í sama farið og fyrir kórónuveirufaraldurinn. Hann vísar stjórn-
endamistökum á bug – kerfið sé í vanda og þar skorti fjármagn.
Páll Matthíasson forstjóri Landspítala hafnar orðum
um stjórnunarmistök. Mikilvægt sé að útskrifa fólk í
viðeigandi úrræði þegar þjónustu spítalans sleppi.
COVID-19 hefur
umbylt starfsemi
Landspítala
„Landspítali hefur eins og gjörvallt
heilbrigðiskerfið umbylt allri sinni
þjónustu á nokkrum dögum og vik-
um vegna COVID-19 faraldursins,“
segir Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítala.
„Það tel ég til marks um að-
lögunarhæfni, hraða og sveigjanleika
sem er algjörlega á heimsmæli-
kvarða.“ Hann hælir einnig stjórn-
málamönnum sem hafi sýnt mikla
fagmennsku og framsýni.
„Þeir hafa ólíkt mörgum erlendum
kollegum sínum, lagt mest traust á
sérfræðinga heilbrigðiskerfisins, allt
frá Almannavörnum, landlækni og
sóttvarnalækni til Landspítala og
okkar teymis í farsóttum og smitsjúk-
dómum.“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir