Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Síða 43

Læknablaðið - apr. 2020, Síða 43
LÆKNAblaðið 2020/106 211 starfsfólki sem smitist í starfi sem og sjúk- lingum sem smitist innan stofnana. En álagið á þau Þórólf Guðnason sótt- varnalækni? „Við finnum fyrir álaginu, en Þórólfur er Vestmannaeyingur og ég Sigl- firðingur. Við höfum vertíðargen í okkur og höldum sjó. Við erum með gott þrek og líður vel. Við vinnum vel saman og því enginn bilbugur á okkur.“ En þurfa þau að stækka hópinn til að mæta álaginu á embættið? „Það vinna allir með okkur. Við tvö með Víði Reynissyni höfum margt fólk með okkur.“ Skilgreint hefur hver taki við störfum þeirra heltist þau úr lestinni; lendi í sóttkví eða veikist. „Það er ekki gefið upp hver það eru og á borði heilbrigðisráðherra hver yrði landlæknir, en við höfum velt þessu fyrir okkur.“ Bakvarðasveitin þegar virkjuð Alma segir mikið muna um bak- varðasveitina. Langt sé síðan svæfinga- og gjörgæslulæknar sem vinni utan Landspít- ala hafi skráð sig á lista og boðið fram krafta sína. „Það sama á við um svæfinga- og gjörgæsluhjúkrunarfræðinga. Það er gott að vita af því.“ Hún telur augljóst að bakvarðasveit lækna verði kölluð til. Þegar hafi hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar verið kallaðir til á Landspítala. Á þriðja hundrað heilbrigðisstarfs- manna eru í sóttkví og hlutfallið hærra en almennt hjá landsmönnum. Hvað skýrir það að mati landlækni? „Heilbrigðisstarfs- menn eru virkur hópur,“ bendir hún á. Mörg þeirra voru á skíðum erlendis. Þá hafi komið sjúklingar inn á spítalann með ekki verið með þekkt smit. Svo hafa starfs- menn smitast af öðrum starfsmönnum og því fljótt að fjölga í sóttkví starfsmanna. Hún bendir þó að færri séu í sóttkví þennan dag en dagana á undan. „Fólk verður vonandi komið úr sóttkví fyrir mesta kúfinn um miðjan apríl.“ Spurð um smithættu heilbrigðisstarfs- fólks segir hún hana mesta í litlum nánum hópum, innan fjölskyldna og vinahópa. Viðeigandi hlífðarbúnaður sé lykilatriði. „Ég hef því biðlað til fólks að klæða sig frekar upp einu sinni of oft en einu sinni of sjaldan,“ segir Alma. Mikilvægt sé að fólk æfi sig í að fara í gallann og úr. Land- læknir beitir sér hart fyrir því að viðeig- andi hlífðarbúnaður sé til taks fyrir alla. „Sóttvarnarlæknir er með neyðarbirgð- ir.“ Þá hafi meira verið pantað. En verður nóg? „Það er erfitt að fullyrða en mikið er til.“ Landlæknir segir unnið út frá spálík- ani Háskóla Íslands. „Við undirbúum okkur undir vestu spá en auðvitað er það þannig að við vonum það besta.“ Hún bindi einnig vonir við að starfsaðferðirnar hér á landi, Covid-deild Landspítala, skili árangri. „Þar er unnið frábært starf. Ef ein- hver á að geta glímt við þessa veiru erum það við.“ „Ég er að vona að það sem komi gott út úr þessum faraldri verði að menn geri sér betur grein fyrir mikilvægi heilbrigðisstarfsmanna,“ segir Alma D. Möller landlæknir. „Okkur vantar nýja spítalann núna því þar verður stór gjörgæsludeild. Þar verður stór hátæknismitsjúkdómadeild þannig að enn og aftur: Við erum alltof, alltof sein að byggja nýjan spítala, en það þýðir ekki að tala um það núna. Við vinnum með það sem við höfum.“ Landlæknir segir íslenska heil- brigðiskerfið hafa staðið sig „ótrúlega vel“ í veirufaraldrinum COVID-19 sem komi ofan í afar bágborið ástand á bráðamót- tökunni. „Það vann með okkur að 99 rúma hjúkrunarheimili á Sléttuvegi opnaði sama dag og fyrsti greindist með kórónu- vírusinn. Ekki hefur verið sjúklingur á gangi bráðamóttökunnar síðan,“ bendir hún á. Viðbrögðin hafi verið snör. „Við þekkjum veikleikana í heilbrigðiskerfinu svo vel að það var hægt að bregðast hratt við. Hingað til er okkur að takast vel til,“ segir hún. Samvinna milli heilsugæslu, Læknavaktarinnar og Landspítala sé góð. „Landspítalinn stendur sig frábærlega og mikið sem mæðir þar á farsóttarnefndinni og starfsfólki. Ég fæ daglega fundar- gerðir þaðan og dáist að því hvað þau spila vel úr hlutunum.“ Brátt reyni meira á heilbrigðisstofnanir úti á landi og vert sé að nefna einkareknar heilbrigðisstofnanir „Allir eru boðnir og búnir til að hjálpast að.“ „Okkur vantar nýja spítalann núna“ Mynd/gag

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.