Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 52

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 52
220 LÆKNAblaðið 2020/106 Fyrsti sjúklingurinn með COVID-19 greindist hér á landi 28. febrúar sl. Þegar þetta er ritað (26. mars) eru smitin orðin 802. Smituðum fjölgar hratt og lönd hafa lokað landamærum sínum. Læknar og heilbrigðisstarfsmenn eiga almennt ekki það val að draga sig til hlés í þessum aðstæðum. Þeir eru í framvarða- sveit þeirra sem glíma við faraldurinn og afleiðingar hans. Þeir taka próf úr mögu- lega sýktum, oft við erfiðar aðstæður. Þeir sinna sýktum. Þeir sýkjast af sýktum og gjalda jafnvel fyrir með lífi sínu. Hverjar eru skyldur lækna í þessum að- stæðum og hver er réttarstaða þeirra? Skyldur Siðareglur lækna segja að þeim sé skylt að leitast við að hjálpa sjúkum til að öðlast heilbrigði að nýju og að þeim beri að rækja starf sitt af vandvirkni og samviskusemi án tillits til eigin hagsmuna.1 Sambæri- leg skylda er orðuð í bæklingnum Góðir starfshættir lækna.2 Þar segir m.a. að læknar verði að bjóða fram aðstoð sína ef bráða- tilvik koma upp á spítala eða starfsstofu eða í samfélaginu, að teknu tilliti til eigin öryggis, lækniskunnáttu og hvaða aðrir kostir til að veita læknisþjónustu eru fyrir hendi.2 Líklega þarf einnig að líta til 22. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 skyldar heilbrigðisstarfsmenn til að veita hjálp, séu þeir nærstaddir eða til þeirra leitað, að veita fyrstu nauðsynlegu aðstoð í skyndilegum og alvarlegum sjúkdóms- eða slysatilfellum í samræmi við menntun og þjálfun, nema þeim mun alvarlegri for- föll hamli eða þeir með því stofni lífi eða heilbrigði sínu eða annarra í háska. Það er borgaraleg skylda allra á aldrin- um 18-65 ára að gegna á hættustundu, án endurgjalds, starfi í þágu almannavarna. Það er sú ábyrgð sem hverjum borgara er ætlað að sýna samfélaginu og tengist meginreglunni um að borgurum beri að þjóna samfélagi sínu gegn því að njóta ákveðinna réttinda og verndar. Það hef- ur verið litið svo á að það sé borgaraleg skylda starfsmanna opinberra aðila þar á meðal lækna, að gegna störfum í þágu almannavarna við slíkar aðstæður. Einnig að opinberum aðilum sé þá heimilt að fela starfsmönnum tímabundið breyttar starfs- skyldur til að sinna forgangsverkefnum. Þessir starfsmenn halda óbreyttum launa- kjörum.3 Þessi borgaralega skylda starfs- manna opinberra aðila hefur ekki verið lögfest. Fyrir Alþingi liggur lagafrumvarp til að bæta úr því. Ekki er við öðru að búast en að frumvarpið verði samþykkt. Því fylgir að við núverandi aðstæður má flytja lækna í annað starf en það sem þeir voru ráðnir til. Í umsögn sinni til Alþingis benti LÍ á mikilvægi þess að við beitingu ákvæðisins verði tekið tillit til undirliggj- andi sjúkdóma opinberra starfsmanna og þeir þá ekki settir í bein samskipti við sýkta.4 Sýnist sá fyrirvari í samræmi við þá varnagla sem settir eru í 22. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn og í Góðum starfs- háttum lækna. Réttindi Réttindi lækna í þessum kringumstæðum snúa að vinnuaðstæðum, veikindarétti og tryggingavernd. Tryggja þarf að vinnuað- stæður séu eins öruggar og hægt er, meðal annars með tryggum aðgangi að nauðsyn- legum hlífðarbúnaði. Um veikindarétt lækna og tryggingavernd er fjallað í kjarasamningi fjármála- og efnahagsmála- ráðherra og LÍ.5 Veikindaréttur opinberra starfsmanna er allmiklu rýmri en á hin- um almenna vinnumarkaði. Læknar fá meðaltalslaun þann tíma sem veikinda- rétturinn varir, sem er mismunandi eftir starfstíma viðkomandi. Til viðbótar kemur að veikindarétturinn lengist um 13 vikur, 91 dag, en þá eingöngu á dagvinnulaun- um, ef veikindin stafa af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Smit við þær kringum- stæður sem nú eru uppi er eðlilegt að telja vinnuslys. Tryggingaverndin er tvíþætt, örorkubætur og dánarbætur. Örorkubætur vegna slyss í starfi eru að hámarki liðlega 22,3 mkr. Dánarbætur vegna slyss í starfi eru á bilinu 1-12 mkr. og fara eftir hjúskap- arstöðu. Læknar hafa lengi talið trygginga- verndina ófullnægjandi. Með síðasta kjarasamningi var því bókun um að aðilar ætluðu að skipa vinnuhóp til að fara yfir vinnuslysatryggingar lækna með sérstöku tilliti til einstakra áhættuþátta í starfi þeirra.5 Hópurinn átti að ljúka störfum fyrir 1. október 2018. Skemmst er frá því að segja að hópurinn var aldrei skipaður þó LÍ hafi tilnefnt fulltrúa og ítrekað minnt á bókunina. Heimildir 1. Siðareglur lækna, 1. gr. lis.is/is/sidfraedi/codex-ethicus/ codex - mars 2020. 2. Góðir starfshættir lækna, 2. útgáfa, Reykjavík 2017. landlaeknir.is/servlet/file/store93/item32436/Godir_starfs- haettir_laekna_31.5.2017.pdf. - mars 2020. 3. Sbr. 19. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008. Þessi grein verður að 19. gr. a í lögunum, ef Alþingi samþykkir frumvarp til laga um breytingu á þessum lögum sem dómsmálaráðherra mælti fyrir 23. mars sl., 697. mál, þskj. 1176, 4. Umsögn LÍ til allsherjar- og menntamálanefndar dags. 24. mars 2020. althingi.is/altext/erindi/150/150-1664.pdf - mars 2020. 5. Kjarasamningurinn rann út 28. febrúar 2019. Nýr samn- ingur hefur ekki náðst. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands Dogg@lis.is Skyldur og réttindi lækna á tímum COVID-19 L Ö G F R Æ Ð I 3 6 . P I S T I L L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.