Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - sep. 2020, Side 22

Læknablaðið - sep. 2020, Side 22
408 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Y F I R L I T að ná fram breytingu á holdafari og/eða útliti, sem leiðir til þrá- hyggjukenndrar fæðu- og æfingahegðunar26 en slíkt kann að þró- ast út í klínískar átraskanir. Til klínískra átraskana telst lystarstol (anorexia nervosa), lotugræðgi (bulimia nervosa), ofátsröskun (binge eating disorder) og átröskun ekki nánar skilgreind (eating disorders not otherwise specified, EDNOS).27 Algengi átraskana og átrösk- unarhegðunar er ívið hærra meðal íþróttafólks en almennings,28,29 eða 6-45% meðal kvenna og 0-19% meðal karla í íþróttum.26 Rannsóknum á algengi fylgja þó ákveðnar aðferðafræðilegar takmarkanir. Má þar nefna mun á þeim rannsóknaraðferðum sem eru notaðar í ólíkum rannsóknum. Ýmsir sjálfsmats-skimunarlist- ar eru notaðir og breytileiki viðmiða fyrir skilgreiningar átraskana getur haft áhrif á niðurstöður.26 Samkvæmt bestu núverandi þekk- ingu er algengi og áhætta átraskana hvað mest í úthaldsíþróttum og fagurfræðilegum greinum þar sem grannur líkamsvöxtur er gjarnan talinn mikilvægur fyrir árangur. Auk þess gera sumar íþróttagreinar kröfu um að einstaklingurinn sé í ákveðinni þyngd til að öðlast og halda keppnisrétti í gefnum þyngdarflokki. Aðrir mögulegir áhættuþættir átraskana eru fullkomnunarárátta, nei- kvæð líkamsímynd, væntingar og útlitstengd skilaboð þjálfara, áhrif samfélagsmiðla, íþrótta- og kynjasértækir þættir.26,30 Þá geta einnig verið tengsl milli æfingaþráhyggju, átröskunarhegðunar, fullkomnunaráttu og RED-s.31,32 Innkirtla- og hormónastarfsemi Tiltæk orka gegnir lykilhlutverki í þróunarlegu samhengi við að tryggja næga orku til lífs. Skerðing á tiltækri orku leiðir til lífeðlisfræðilegrar aðlögunar sem miðar að orkusparnaði og viðhaldi á lífsnauðsynlegri virkni. Þetta kemur meðal annars fram í minnkuðum efnaskiptahraða í hvíld (resting metabolic rate, RMR)33,34 og lágu hlutfalli milli mælds og áætlaðs hvíldarefnaskiptahraða (RMR ratio) hjá íþróttafólki með eða í hættu á RED-s.35 Þá er æxlun, vöxtur og þroski orkufrek starfsemi sem geld- ur iðulega fyrir hlutfallslega orkuskerðingu. Í því samhengi eru blæðingatruflanir oft með fyrstu einkennum orkuskerðingar hjá íþróttakonum enda eru skilyrði til getnaðar óhagstæð í því ástandi.36,37 Blæðingatruflanir geta spannað allt frá gulbússtigi sem er of stutt (<10 dagar) og/eða einkennist af minnkuðum styrk prógesteróns (luteal phase defects) til fátíða (oligomenorrhea), vöntun- ar á egglosi (anovulation) og tíðateppu (amenorrhea).38 Slíkar truflan- ir eru algengar meðal íþróttakvenna og getur tíðni þeirra verið allt að 70% í hinum svokölluðu áhættugreinum, eins og til dæmis út- haldsíþróttum, fimleikum, dansi og listdansi.39,40 RED-s er aðeins ein mögulegra orsaka tíðateppu hjá íþróttakonum en mikilvægt er að aðrar mögulegar orsakir séu útilokaðar við greiningu.41 Þegar orsökin er rakin til RED-s á sér stað temprun á losunarhormóni kynhormónavaka (gonadotropin releasing hormone, GnRH) í undir- stúku-heiladinguls-eggjastokka öxlinum sem gerir það að verkum að losun á eggbússtýrihormóni (Follicle stimulating hormone, FSH) og gulbússtýrihormóni (Luteinizing hormone, LH) frá fremri heila- dingli truflast. Það hefur temprandi áhrif á framleiðslu estrógens og leiðir til röskunar á tíðahring.42 Algengt er að karlar í úthaldsíþróttum43-45 mælist með lágan styrk testósteróns en einnig eru dæmi þess í þyngdarmiðuðum greinum46 og liðsíþróttum.47,48 Þessi lækkun á styrk testósteróns gæti stafað af truflunum á undirstúku-heiladinguls-kynkirtla- öxlinum og hefur í því skyni verið talað um þjálfunartengda vanseytingu kynkirtla (exercise-hypogonadal male condition, EHMC).49,50 Því má líta á EHMC sem hliðstæðu undirstúku-tíða- teppu hjá konum en fullur skilningur á ferlinu og ólíkum áhrifa- þáttum krefst frekari rannsókna.50 Hversu mikil lækkun verður á styrk testósteróns og hvort þær breytingar stafi af áhrifum á undir- Mynd 2. Áhrif RED-s á A) heilsu og B) afkastagetu/íþróttaárangur. *Þrenna íþróttakonunnar er felld inn í líkanið til að sýna hversu afmörkuð þrennan er í samanburði við RED-s. **Áhrif á geðheilsu geta ýmist verið orsök eða afleiðing RED-s. Þýtt og staðfært með leyfi Mountjoy og fleiri.7

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.