Læknablaðið - sep. 2020, Side 24
410 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
Y F I R L I T
lífmerkja (biomarker) RED-s og áhrifa á íþróttaárangur út frá slík-
um niðurstöðum gefa þær engu að síður vísbendingar um mögu-
legar líffræðilegar skýringar.
Íþróttafólk með fatlanir
Lítið er vitað um algengi, áhættuþætti og birtingarmyndir RED-s
meðal fatlaðs íþróttafólks, og hvort lífeðlisfræðilegar orsakir séu
að einhverju leyti frábrugðnar því sem sést hjá öðru íþróttafólki.
Þar gæti tegund og alvarleiki fötlunar, sem getur til að mynda haft
áhrif á orkuþörf og lífeðlisfræðilega virkni, ráðið því hvort við-
komandi sé í aukinni hættu á RED-s.68 Til dæmis er orkuþörf þeirra
sem nota hjólastól við daglegar athafnir oft
minni en meðalþörf69,70 á meðan orkuþörf
einstaklinga með skaða á miðtaugakerfi,
svosem CP-hreyfihömlun (cerebral palsy),
getur verið umfram meðalþörf.71 Rann-
sóknir á íþróttafólki með mænuskaða gefa
til kynna að orkuþörf þess hóps sé undir
meðalþörf68 en bent hefur verið á að skerði
þeir einstaklingar orkuinntöku um of til að
viðhalda eða ná ákveðinni líkamsþyngd
geti það leitt til skorts á mikilvægum nær-
ingarefnum.68,72 Í nýlegri rannsókn sem mat
algengi áhættuþátta RED-s meðal fatlaðs afreksíþróttafólks út frá
rafrænum spurningalistum kom meðal annars fram að stór hluti
þátttakenda hefði það að markmiði að breyta líkamsþyngd- og/
eða samsetningu fyrir árangur í sinni grein. Þá var algengi blæð-
ingatruflana 44% meðal íþróttakvenna í rannsókninni.73 Vert er
að hafa í huga að blæðingatruflanir meðal fatlaðra íþróttakvenna
gætu stafað af truflunum á taugastarfsemi sem getur haft áhrif
á undirstúku-heiladinguls-eggjastokka öxulinn, óháð tiltækri
orku.74,75 Loks getur hreyfihömlun haft neikvæð áhrif á beinheilsu
fatlaðs íþróttafólks. Fyrir því eru ýmsar mögulegar ástæður, svo
sem lömun og skortur á þungaberandi áreiti sökum fötlunarinn-
ar.68 Það má því ljóst vera að fatlað íþróttafólk býr margt við ýmsar
heilsutengdar áskoranir sem RED-s gæti aukið enn frekar á. Þess
vegna skiptir máli að orku- og næringarefnaþarfir þess hóps fái
sérstaka athygli í rannsóknum, fræðslu og forvarnarstarfi.
Áhættumat og skimun
Snemmbær greining íþróttafólks með RED-s skiptir miklu máli
þar sem neikvæðar afleiðingar eru í flestum tilfellum afturkræf-
ar ef inngrip er hafið nógu snemma.7 Beinar mælingar á tiltækri
orku eru þó tímafrekt og vandasamt verkefni sem verður ekki
alltaf komið við í íþróttastarfi. Hjá íþróttakonum hefur <30 kkal/
kg FFM/dag verið notað sem viðmið fyrir skerta tiltæka orku, 30-
45 kkal/kg FFM/dag sem miðlungs tiltæk orka en ≥45 kkal/kg FFM/
dag talin ákjósanleg tiltæk orka.5 Þessi viðmið byggja að mestu
á upphaflegum íhlutandi skammtímarannsóknum Loucks og fé-
laga76,77 sem fundu truflanir á tíðnimynstri LH og bælingu efna-
skiptahormóna þegar tiltæk orka fór undir 30 kkal/kg FFM/dag
í hópi óþjálfaðra kvenna. Engin slík viðmið hafa verið sett fram
fyrir karla en vísbendingar eru um að þau væru lægri (skert tiltæk
orka ~20-25 kkal/kg FFM/dag) sökum þess lífeðlisfræðilega munar
sem er á kynjunum.18,78,79 Þá hafa þessi viðmið verið nokkuð um-
deild síðastliðin ár. Má þar fyrst nefna nýlegar rannsóknir sem
gefa vísbendingar um að tiltæk orka við eða undir 30 kkal/kg FFM/
dag viðmiðinu spái ekki fyrir um blæðingatruflanir í öllum til-
fellum.80,81 Það gæti meðal annars skýrst af einstaklingsbundinni
lífeðlisfræðilegri svörun við gefnu magni tiltækrar orku.80 Viðmið
tiltækrar orku gætu því betur átt við til áhættumats og flokkun-
ar fyrir stærri hópa og rannsóknir.18,80 Einnig eru ýmsar aðferða-
fræðilegar áskoranir við mat á tiltækri orku utan stýrðra aðstæðna
tilraunastofa og þörf á alþjóðlega viðurkenndri og staðlaðri aðferð
til mats á tiltækri orku.82
Þar sem mæling tiltækrar orku er svo flókið og tímafrekt verk-
efni hefur erlendis verið mælt með því
að fyrst sé notaður einfaldur sannprófað-
ur spurningalisti og skimunartæki, svo
sem Relative Energy Deficiency in Sport
Clinical Assessment Tool (RED-s CAT),83
samhliða klínískri skoðun. Slíkir listar eru
enn ekki til í íslenskri þýðingu. Niðurstaða
skimunar gæti þá gefið tilefni til frekara
mats á þáttum eins og næringarástandi
og beinþéttni.82 RED-s CAT er klínískt
matstæki fyrir fagfólk til skimunar, grein-
ingar og eftirfylgni íþróttafólks með
RED-s. Í því skyni hefur til að mynda verið mælt með að stuðst
sé við RED-s CAT í árlegri læknisskoðun og/eða ef grunur leikur
á RED-s, svo sem ef einstaklingur sýnir einkenni átraskana, léttist
hratt, tekur ekki út eðlilegan vöxt og þroska á kynþroskatímabil-
inu, truflun verður á innkirtla- og hormónastarfsemi, meiðsli og/
eða veikindi eru tíð, skaplyndi breytist eða árangur í íþróttinni fer
dvínandi. Út frá sögu og skoðun einstaklingsins má nota RED-s
CAT til að flokka einstaklinga eftir áhættu í rauðan flokk (mik-
il áhætta), gulan (miðlungs áhætta) eða grænan (lítil eða engin
áhætta), líkt og sýnt er í töflu II. Erlendis hefur RED-s CAT verið
notað til að meta áhættu af þátttöku í æfingum og keppni, sem
og til að auðvelda ákvarðanir um hvort einstaklingar geti hafið
æfingar aftur eða án takmarkana í kjölfar meðferðar eða inngrips.
Er þar ráðlagt að þeim sem falla undir rauðan flokk sé ekki heim-
iluð þátttaka í æfingum og keppni meðan ástandið er svo alvar-
legt enda gæti slíkt haft alvarlegar afleiðingar á heilsu og tafið
bataferli og meðferð. Þeir sem falla undir gulan áhættuflokk geta
samkvæmt því haldið þátttöku áfram svo fremi að eftirlit sé með
þeim, þeir framfylgi meðferðaráætlun og staðan sé endurmetin
á eins til þriggja mánaða fresti.7,83 Leiðbeinandi áhættumat hef-
ur einnig verið sett fram fyrir þrennu íþróttakonunnar15 en ekki
verður fjallað nánar um það hér. Þá hefur Low Energy Availabil-
ity in Females Questionnaire (LEAF-Q) skimunarlistinn reynst
vel við að meta tíðni og áhættu kvenna á RED-s. LEAF-Q tekur
til lífeðlisfræðilegra einkenna skertrar orkuinntöku; meiðsla og
meltingareinkenna, reglu tíðahrings, blæðingasögu og notkunar
getnaðarvarna. Áreiðanleiki og réttmæti LEAF-Q var upphaflega
metið meðal úthaldsíþróttakvenna og dansara62 og er LEAF-Q sá
listi sem hefur verið mest notaður í rannsóknum á íþróttakonum
síðastliðin ár.8 Í nýlegri rannsókn á breskum karlkyns hjólreiða-
mönnum55 var notaður spurningalisti sem var sérhannaður fyrir
þá íþróttagrein samhliða klínísku viðtali (Sport-specific Energy
Forsenda þess að íþróttafólk
geti hámarkað afkastagetu og
þjálffræðilega aðlögun er að
það sé við sem besta heilsu
og lífeðlisfræðileg starfsemi
virki sem skyldi.