Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 26
412 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
Y F I R L I T
aðarvörn og skyldi það haft í huga ef markmiðið er að fyrirbyggja
þungun.12,85
Lokaorð
Eitt af meginmarkmiðum íþróttahreyfingarinnar er að styðja við
og efla heilsu og velferð einstaklingsins. Góð heilsa er auk þess
forsenda íþróttaárangurs til skemmri og lengri tíma. Þess vegna
er mikilvægt að beina sjónum að mögulegum heilsufarslegum
áskorunum íþróttafólks á öllum aldri og getustigum. Síðustu ár
hefur rannsóknaráhugi á RED-s aukist erlendis og er hagnýtingar-
gildi þeirra rannsókna verulegt. Þar reynir vissulega á markvisst
samtal vísindamanna við bæði íþróttahreyfinguna og heilbrigðis-
starfsfólk til að auka meðvitund um áhættuþætti, birtingarmynd-
ir, forvarnir og meðferð. Hafa ber í huga að RED-s getur haft víð-
tæk áhrif á heilsu og árangur, óháð kyni og getustigi í tiltekinni
íþrótt.
Ólíkt því sem margir gætu haldið á RED-s ekki alltaf skylt við
átraskanir og/eða verulega undirþyngd og því þurfa þjálfarar,
sjúkraþjálfarar og aðrir fagaðilar að þekkja til annarra mögulegra
orsaka. Stundum er einfaldlega um að ræða einstaklinga með háleit
markmið í æfingum sem gera sér ekki grein fyrir eigin orkuþörf
eða eiga í erfiðleikum með að uppfylla hana. Andleg og líkamleg
vanlíðan, álagsbrot og/eða önnur meiðsli gefa fullt tilefni til frekari
skoðunar á næringarástandi. Einnig er áríðandi að íþróttafólk fái
faglega fræðslu og næringarráðgjöf sérfræðinga með þar til bæra
þekkingu á íþróttanæringarfræði til að styðja við heilsu og árang-
ur.88 Það er reynsla höfunda að kappsamir iðkendur horfi gjarnan
frekar til íþróttaárangurs í núi en lífsgæða og heilsufars síðar á
lífsleiðinni. Þegar umræðan um RED-s er opnuð getur því reynst
gagnlegt að sjónum sé fyrst beint sérstaklega að árangurstengdum
afleiðingum en aðrir þættir skoðaðir í framhaldinu.
RED-s er tiltölulega nýtt hugtak en áður en það var sett fram
árið 2014 hafði lengi verið talað um þrennu íþróttakonunnar. Þau
kynjasértæku áhrif sem þrennan lýsti eru því best þekkt. Síðast-
liðin ár hefur rannsóknum á áhrifum RED-s á heilsu og árangur
karla fjölgað þó enn sé mörgum spurningum ósvarað. Jafnframt er
þörf á fleiri rannsóknum á RED-s í öðrum greinum en þeim sem
taldar hafa verið með aukna áhættu. Loks er vert að gefa sérstakan
gaum að RED-s meðal fatlaðs íþróttafólks.
Erlendis hafa spurningalistar komið að gagni við skimun,
áhættumat og greiningu RED-s. Mat tiltækrar orku er vandasamt
verkefni og þörf er á alþjóðlega viðurkenndri aðferð fyrir slíkt
mat til að tryggja sem best réttmæti og auðvelda samanburð milli
ólíkra rannsókna. Spurninga- og skimunarlistar hafa því töluvert
upplýsingagildi í rannsóknum samhliða klínískum mælingum
og mati á tiltækri orku. Hérlendis skortir rannsóknir á tiltækri
orku, algengi og áhættuþáttum RED-s meðal íslensks íþróttafólks.
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar á líkamsímynd og átröskunar-
einkennum meðal íslensks íþróttafólks89 gefa þó fullt tilefni til
frekari rannsókna á næringartengdum áskorunum meðal þessa
hóps. Þróun íslenskra skimunartækja og ráðlegginga þarf að
byggja á frekari rannsóknum, sem jafnframt myndi efla forvarnir
og meðferð.
Greinin barst til blaðsins 29. maí 2020, samþykkt til birtingar 10. ágúst 2020.
1Faculty of Health promotion, Sport and Leisure Studies,
University of Iceland.
10.17992/lbl.2020.09.596
Birna Varðardóttir1
Sigríður Lára Guðmundsdóttir1
Anna Sigríður Ólafsdóttir1
Key words: sport, nutrition, health, performance,
energy availability, relative energy deficiency
Correspondence: Birna Varðardóttir, biv8@hi.is
E N G L I S H S U M M A R Y
Health and performance consequences of Relative Energy Deficiency in Sport (RED-s)
Fulfilling individual energy and nutrient requirements is of great importance for athletes to support
overall health and well-being, training adaptation, recovery and injury prevention.
Energy availability is the amount of energy left over and available for bodily functions after the
energy expended for training is subtracted from the energy taken in from food.
The syndrome of Relative Energy Deficiency in Sport (RED-s) refers to the multifactorial health
and performance consequences of low energy availability. Potential physiological implications of
RED-s include impaired metabolic rate, hormonal disruptions, menstrual dysfunction, reduced
bone health, immunity, protein synthesis, and cardiovascular health. These can have short and
long term consequences on health and sport performance.
Causes of RED-s range from unintentional (e.g. lack of awareness or difficulties with meeting
high energy requirements) to more intentional behaviors and further to clinical eating disorders.
RED-s prevalence appears to differ between sports and sport disciplines, with highest risk in
endurance, aesthetic and weight-class sports.
This article summarizes current knowledge of RED-s implications for health and performance,
and highlights the importance of early diagnosis and screening. Research on RED-s in Icelandic
athletes is warranted as it could support development of national guidelines, prevention and treat-
ment protocols.