Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Sep 2020, Page 32

Læknablaðið - Sep 2020, Page 32
418 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Á heimsmælikvarða í heimsfaraldri Martröð og sigrar, segir Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir, um stöðu sýkla- og veirufræðideildar Landspítala í baráttunni gegn heimsfaraldri. Deildin fer í þessum faraldri frá því að vera illa tækjum búin og í slæmu húsnæði í að komast á heimsmælikvarða. Hún fær brátt alþjóðlega faggildingu „Ég vildi að maður gæti sagt starfsfólkinu að álagið væri að minnka en það virðist bara bætast í verkefnin,“ segir Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Hann segir að nú eftir sumarið verði bún- aður deildarinnar á heimsmælikvarða. Margt hafi breyst til batnaðar í þessum heimsfaraldri. „Í upphafi skorti tæki, svo sýna- tökusett og hvarfaefni, tæki biluðu, afkastagetan var of lítil. Þá fengum við landamæraskimunina á okkar borð ofan á greiningar á öðrum sjúkdómum,“ segir Karl sem viðurkennir að síðustu mánuðir hafi verið þeir annasömustu á ferlinum, sem spannar orðið rúma fjóra áratugi. „Oft hefur verið unnið undir miklu álagi en þetta er það mesta sem ég hef lent í á starfsferlinum,“ segir hann. „Við höf- um staðið í mikilli krísustjórnun og alltaf vonað að hlutirnir færu að róast, jafnvel vonast eftir einum eða tveimur frídögum. En alltaf hefur eitthvað komið upp á,“ seg- ir hann. En hvenær býst hann svo við að álagið minnki? Samstarf við Kára „Við getum ekki keyrt mikið lengur eins og við gerum núna. Þess vegna erum við að fara í samstarf við Íslenska erfðagrein- ingu. Við fáum að nýta tækjabúnað þeirra í samvinnu við þá,“ segir Karl þar sem við hittum hann á rannsóknarstofunni í Ár- múla þriðjudaginn 11. ágúst. Átján starfs- menn sýkla- og veirufræðideildarinnar flytjast í hús Íslenskrar erfðagreiningar um miðjan mánuðinn. Afköstin aukast verulega, eða um 5000 sýni, og deildarinn- ar sjálfrar í 4000 sýni á dag með nýju tæki sem kemur í nóvember. „Samstarfið eykur afkastagetuna, en vinnuna líka, því eftir því sem við grein- um meira, eykst vinnan. En það er vissu- lega gott að geta aukið afkastagetuna og þannig orðið við óskum stjórnvalda um að skima svona mikið meðfram því sem við greinum sjúklingasýnin frá heilbrigðis- stofnunum.“ Vanbúin til áratuga Sýkla- og veirufræðideildin hefur verið áberandi í fréttum nú í heimsfaraldrinum. Greint var frá því í fréttum RÚV í lok maí að tvær efstu hæðir húss deildarinnar ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspít- ala, er stoltur af deildinni sem hefur færst frá því að vera vanbúin yfir í að vera á heimsmælikvarða í heimsfaraldri. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.