Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 46

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 46
432 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Tilgangur þessa bréfs er að kynna samkomulag Land spítala, Sjúkrahússins á Akureyri og Krabbameinsfélagsins um samstarf varðandi staðlaða skráningu á greiningu og meðferð krabba- meina. Gæðaskráning (quality registration) sem felst í söfnun og skrán- ingu klínískra gagna á samræmdan rafrænan hátt hefur í vaxandi mæli verið notuð á Norðurlöndunum til að fylgjast með grein- ingu og meðferð krabbameina. Með gæðaskráningu fæst yfirlit yfir greiningar- og með- ferðarferli krabbameinssjúklinga frá aðdraganda greiningar til loka fyrstu meðferðar. Einnig er fylgst með sjúklingum að með- ferð lokinni fram að endurkomu sjúkdóms. Vísir að gæðaskráningu hófst árið 1998 hjá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins með söfnun upplýsinga um forspárþætti og meðferð krabbameins í blöðruhálskirtli, í samvinnu við þvag- færaskurðlækna. Árið 2010 efldi Krabbameinsskráin þessa starf- semi sem náði nú til fleiri krabbameina og um leið tók samvinnan til fleiri íslenskra skurðlækna, krabbameinslækna og meina- fræðinga auk forsvarsmanna sænsku gæðaskráningarinnar. Hér á landi hefur verið valið að nota þær breytur sem skráðar eru í gagnagrunn sænsku gæðaskráningarinnar (In- formationsnätverk för Cancervården; INCA). Þar er gæðaskráning fyrir krabbamein vel þróuð og gott aðgengi að breytulýsingum og niðurstöðum og skýr vilji um samstarf við Íslendinga. Æskilegt er að velja gæðavísa sem varða greiningu, meðferð og eftirfylgd krabbameina svo hægt sé að bera þessa þætti á Íslandi saman við sambærilega þætti í nágrannalöndum og stuðla þannig að þjón- ustu í hæsta gæðaflokki. Undanfarin ár hafa læknanemar unnið að BS-verkefnum sem byggja á gæðaskráningu fyrir krabbamein í samvinnu við lækna Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og starfsfólk Krabba- meinsskrár Krabbameinsfélagsins. Notaðar eru breytulýsingar úr sænsku gæðaskránni sem læknar og nemar þýða og staðfæra fyr- ir tiltekin krabbamein og setja inn í skráningareyðublöð Heilsu- gáttar, sjúkraskrárkerfis Landspítala. Fyrirliggjandi upplýsingar úr sjúkraskýrslum eru skráðar á eyðublöðin á staðlaðan hátt. Með samanburði við niðurstöður sænsku gæðaskrárinnar fást gagnlegar upplýsingar um muninn á greiningu og meðferð milli Íslands og Svíþjóðar og hafa niðurstöður verið kynntar meðal annars á skurðlæknaþingum. Gott dæmi um afrakstur slíks ver- kefnis er grein í þessu tölublaði Læknablaðsins um samanburð á greiningu og meðferð ífarandi brjóstakrabbameina milli Íslands og Svíþjóðar. Síðustu tvö ár hafa tveir starfsmenn, þvagfæraskurðlæknir og hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, unnið í hlutastarfi við gæðaskráningu fyrir krabbamein og hafa störf þeirra verið fjár- mögnuð sameiginlega af Krabbameinsfélaginu og Landspítala. Einnig hefur læknanemi hjálpað til við samræmingu skrán- ingarinnar milli ólíkra meina. Rauntímaskráning hófst árið 2015 fyrir nýrnakrabbamein, 2018 fyrir krabbamein í blöðruhálskirtli, 2019 fyrir krabbamein í brjóstum, eggjastokkum, eggjaleiðurum, legbol, leghálsi og lífhimnu og árið 2020 fyrir sarkmein. Í töflu I má sjá hve langt gæðaskráning fyrir mismunandi krabbamein er komin. Lagalegt umhverfi og samningar um krabbameinsskráningu Samkvæmt Lögum um landlækni og lýðheilsu 2007/41 skal landlækn- ir halda skrá á landsvísu, meðal annars um krabbamein, og getur landlæknir falið öðrum að reka skrárnar. Í Reglugerð um heilbrigðisskrár frá 2008 er lýst þeim tilgangi Krabbameinsskrár að skrá og hafa eftirlit með greiningu og með- ferð allra krabbameina sem greinast í sjúklingum á Íslandi og jafnframt að tryggja gæði og meta árangur þjónustunnar. Skráðar Gæðaskráning fyrir krabbamein Samkomulag Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og Krabbameinsfélags Íslands um staðlaða skráningu á greiningu og meðferð krabbameina Helgi Birgisson yfirlæknir Krabbameinsskrár Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins Sigurður E. Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs á Sjúkrahúsinu á Akureyri Torfi Magnússon ráðgjafi framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár B R É F T I L B L A Ð S I N S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.