Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - sept 2020, Qupperneq 48

Læknablaðið - sept 2020, Qupperneq 48
434 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 B R É F T I L B L A Ð S I N S Þekjun og gæði Til að tryggja sem besta þekjun (sem næst 100%) lýðgrundaðrar gæðaskráningar verður gæðaskráin keyrð saman við Krabba- meinsskrá Íslands tvisvar á ári. Með því er mögulegt að ljúka skráningu í Heilsugátt ef upp á vantar. Fastsettur verður tími árs þegar gagnaskilum, framsetningu gagna og skýrslugerð á að vera lokið. Afhending gagna til rannsókna Allar vísindarannsóknir sem áformaðar eru á gögnum úr gæða- skránni þurfa leyfi Vísindasiðanefndar. Embætti landlæknis þarf jafnframt að heimila afhendingu gagna er innihalda grunn- breyturnar. Vísindarannsóknir sem byggja á öðrum breytum úr gæðaskráningunni og sem fengnar eru frá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri þurfa leyfi Vísindasiðanefndar og leyfi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri sem ábyrgðaraðila gagnanna. Úrvinnsla og birting Starfsfólk Krabbameinsskrár Krabbameinsfélagsins tekur að sér úrvinnslu og framsetningu niðurstaðna í samstarfi við fagteymin og birtir árlega á rafrænu formi. Starfsfólk Krabbameinsskrár hefur jafnframt umsjón með samanburði á gæðum greiningar og meðferðar á Íslandi við greiningu og meðferð í öðrum löndum, í samvinnu við fagteymin. Æskilegt er að birta almenningi hluta upplýsinga á heimasíðu Krabbameinsskrár, en meginstofn upp- lýsinganna verður birtur á lokuðu vefsvæði sem Krabbameins- skrá, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri hafa aðgang að. Í þróun er framsetning á gagnvirku formi og má nú þegar sjá upplýsingar um valdar breytur byggðar á gæðaskránni á heimasíðu Krabbameinsskrár, fyrir krabbamein í blöðruhálskirtli, brjóstum, ristli og endaþarmi, skjaldkirtli og sortuæxli í húð. Mynd 1 sýnir dæmi um framsetningu sem byggir á gæðaskrán- ingu fyrir blöðruhálskirtilskrabbamein. Lokaorð Þó að gæðaskráning fyrir krabbamein hérlendis byggi á reynslu grannþjóða okkar hafa hér einnig verið þróaðar eigin lausnir, meðal annars í tengslum við skráningareyðublöðin í Heilsugátt og gagnvirka framsetningu á niðurstöðum. Mjög mikilvægt er að framkvæmd og þróun gæðaskráningar sé í höndum okkar Íslendinga svo við getum tryggt öryggi og greiðan aðgang að gögnunum. Gæðaskráning fyrir krabbamein er umfangsmikið verkefni sem byggir á vinnu fjölda fólks sem á miklar þakkir skildar. Samkomulag Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og Krabbameinsfélagsins um samstarf varðandi staðlaða skráningu á greiningu og meðferð krabbameina er mikilvægt skref í þá átt að tryggja formlega umgjörð við skráninguna. Samkomulagið tryggir enn fremur að gæðaskráningin sé byggð á lögmætum grunni þar sem réttindi sjúklinga eru höfð í heiðri. Þeir sem vilja koma að gæðaskráningu fyrir krabbamein eru hvattir til að hafa samband. Mynd 1. Skjámynd af gagnvirkri framsetningu úr gæðaskráningu fyrir blöðruhálskirtilskrabbamein. Hér má sjá eftir greiningarárum alvarleika sjúkdóms, PSA og Gleason flokkur við greiningu. Sjá nánar á heimasíðu Krabbameinsskrár: krabb.is/krabbameinsskra/upplysingar-um-krabbamein/krabbamein-a-o/ blodruhalskirtill/

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.