Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 2

Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 518.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nýtt hjólabrettasvæði var tekið í notkun á Mið- bakka Reykjavíkurhafnar í gær. Hjólabretta- garðurinn er hannaður af Eika Helgasyni, sem er atvinnumaður á snjóbretti og hefur haft hjóla- brettið sem áhugamál og lífsstíl frá því seint á tí- unda áratugnum. Eiki hannaði hjólabrettagarð- inn og smíðaði allar grindurnar á Akureyri þar sem hann er búsettur. Hann mætti suður með af- raksturinn á flutningabíl. Líf og fjör við höfnina Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýr hjólabrettagarður á Miðbakka Hjúkrunarfræðingar samþykktu með miklum meirihluta í atkvæða- greiðslu sem lauk í hádeginu í gær að fara í ótímabundið verkfall sem hefst að morgni 22. júní nk. Verkfallið nær til þeirra sem fá greitt skv. samningi milli Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga og ríkisins. Það eru um 2⁄3 hjúkrunarfræðinga; þeir sem starfa á Landspítala, heilsugæslustöðvum, Sjúkrahúsinu á Akureyri og víðar hjá hinu opinbera. Alls 85,5% þátt- takenda vildu í verkfall, 13,3% voru á móti og 1,2% skiluðu auðu. Fulltrúar hjúkrunarfræðinga og ríkisins gengu frá kjarasamningi 10. apríl síðastliðinn, á föstudaginn langa. Í atkvæðagreiðslu var sá samningur felldur af 53% þeirra sem þátt tóku, sem færði málið aftur á byrjunarreit. Viðræður milli aðila máls hafa staðið yfir síðustu vikur en lítið miðar í samkomulagsátt. „Skýr vilji okkar félagsmanna er að grunn- laun hækki. Sú er líka meginkrafan í viðræðunum nú,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh. Fimmtán mánuðir eru nú síðan gerðardómur Fíh rann út og þar með miðlægur kjarasamningur félagsins. „Þessi niðurstaða veldur von- brigðum,“ sagði Sverrir Jónsson, formaður samninganefndar ríkisins. Hann minnir á að samningur sá sem náðist um páskana hafi verið felldur með naumum meirihluta. Því hafi hann vænst þess að ekki væri ýkja langt milli fólks í yfirstandandi við- ræðum en önnur virðist raunin. Eins og málum sé nú komið sé ekki annað í stöðunni en reyna áfram og til þrautar að ná lendingu, því heil- margt hafi áunnist nú þegar. Áhersla hafi verið lögð á hærri laun, en ekki síður styttingu vinnutímans. Samkomulag sem þegar hefur verið undirritað gefur hjúkrunar- fræðingum sem vinna á sólarhring- svöktum möguleika á að stytta vinnuviku sína í allt að 32 stundir á viku. sbs@mbl.is Verkfall samþykkt  Hjúkrunarfræðingar ætla í hart  Hægt miðar í viðræðum  Grunnlaun hækki  Niðurstaða veldur vonbrigðum Guðbjörg Pálsdóttir Sverrir Jónsson Menn úr vinnuflokkum Vegagerðar- innar hefjast strax eftir helgi handa við að reisa nýja brú yfir Bleiksá inn- arlega í Fljótshlíð. Burðarstaur við nyrðri enda gamallar brúar sem nú er yfir ána gaf sig á miðvikudaginn svo loka varð fyrir umferð stærri bíla og loks allra ökutækja. Í gær voru í ána sett ræsi og þar mótaður vegur yfir. Sú lausn er þó aðeins til skemmri tíma. Brúin gamla er átta metra löng, reist fyrir um sextíu árum og er barn síns tíma eins og gjarnan er sagt. „Við þurfum að setja niður nýja staura þarna, en þeir eru undirstaða mannvirkisins. Sennilega þarf svo líka að skipta um brúargólf. Ég vænti þó að eitthvað sé heillegt í brúnni sem fyrir er og það efni megi nýta eftir föngum. Við erum þegar búnir að flytja eitthvað af efni á stað- inn,“ segir Sveinn Þórðarson, brúar- smiður Vegagerðarinnar á Suður- landi, við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Bleiksárbrúin laskaðist  Ræsi nú en ný brú væntanleg á næstu dögum Ljósmynd/Sveinbjörn Fljótshlíð Ræsi sett í ána, en til þess var notuð stór grafa. Vörubílar fluttu möl og þannig var mótaður vegur sem er þó aðeins til bráðabirgða. Ólafur William Hand, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Eimskips, var í gær sýknaður í Landsrétti af kæru um ofbeldi gegn barnsmóður sinni. Landsréttur sneri við dómi Héraðs- dóms Reykjavíkur en Ólafur var þar dæmdur í tveggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi. Þar var Ólafur sakfelldur fyrir ofbeldi í garð barnsmóður, að viðstöddu barni þeirra, í júlí fyrir fjórum árum. Auk tveggja ára skilorðsbundins dóms var hann dæmdur til að greiða barnsmóður sinni 400 þúsund krón- ur í bætur. Fram kemur í dómi Landsréttar að áverkar barnsmóð- urinnar passi illa við lýsingar henn- ar og sambýlismanns á atburðum áðurnefnds júlídags. Einkum vegna þess sýknar Landsréttur Ólaf. Ólafur Hand sýkn- aður í Landsrétti Sumarstörfum verður fjölgað um 30 hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögum til að koma til móts við erfitt atvinnuástand í landinu. Störfin bætast við þau ríflega 100 sumarstörf sem þegar hafa verið auglýst og ráðið í. Störfin eru aug- lýst á vef OR og eru af ýmsum toga og krefjast margvíslegrar þekk- ingar enda starfsemi OR og dóttur- fyrirtækja fjölbreytt, hvort sem lit- ið er til framleiðsluþáttar þeirra eða þjónustuhlutans. Ráðningar- tíminn er tveir mánuðir. Sumarstörfum fjölgað hjá OR Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir ekki annað koma til greina en að Reykjavíkurborg virði samkomulag ríkis og borgar um skipulag og upp- byggingu á landi ríkisins við Skerja- fjörð. Þetta kemur fram í færslu Sig- urðar á Facebook í gær í kjölfar fregna þess efnis að viðhaldsstöð flug- félagsins Ernis við Reykjavíkurflug- völl verði rifin, bótalaust, vegna nýs skipulags. Skýli flugfélagsins stendur nærri ströndinni þar sem ráðgert er að Fossvogurinn verði brúaður frá Vatnsmýrinni og yfir til Kársness. Leggja á veg þar sem skýlið stendur samkvæmt áætlunum borgaryfir- valda. „Fyrirhugaðar vegaframkvæmdir sem voru í fréttum í gærkvöldi eru innan flugvallargirðingar og verða aldrei án sam- þykkis Isavia,“ skrifar Sigurður og heldur áfram: „Áform um að leggja veg í gegn- um friðað hús eru fráleit og engin sómakær sveitar- félög taka heldur eignir bótalaust af íbúum sínum. Allra síst aðilum sem hafa þjónað sjúkraflugi og líffæraflutningum fyrir landsmenn í áratugi. Þannig hagar sér enginn.“ „Þetta stenst ekki einu sinni stjórn- arskrá, hvað þá samkomulagið sem Reykjavíkurborg gerði við ríkið í nóv- ember,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Verða að virða samkomulagið  Ráðherra gagnrýnir borgarstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.