Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ SENDING
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
Opið 11-14 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Nanni
kvartbuxur
Kr. 7.900.-
Str. S-XXL
Litir: svart, blátt og hvítt
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
SUMARJAKKAR
GALLABUXUR
Kr. 27,900,-
Frá 12,900,-
SKOÐIÐ NETVERSLUN
LAXDAL.IS
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
ÚRVAL ÚTILJÓSA
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Háafell, dótturfyrirtæki Hraðfrysti-
hússins – Gunnvarar (HG), hefur
fengið rekstrar- og starfsleyfi til að
ala regnbogasilung í sjókvíum í Ísa-
fjarðardjúpi. Er þetta langþráð leyfi
sem lengi hafa verið í vinnslu. Silung-
urinn er að verða tilbúinn í seiðastöð
fyrirtækisins og verður settur út í
kvíar í Álftafirði síðar í mánuðinum.
„Við erum orðnir óþreyjufullir og
þetta er eitthvað til að byrja á, þótt
við viljum vera í laxeldi, sem þykir
arðbærara,“ segir Kristján G. Jóa-
kimsson, vinnslu- og markaðsstjóri
HG. Fram kemur á vef fyrirtækisins
að liðin eru tæp níu ár síðan fyrir-
tækið óskaði eftir stækkun á fyrri
leyfum og ferlið verið hlykkjótt.
Fyrirtækið hefur nú leyfi til að
framleiða 6.800 tonn af regnbogasil-
ungi og 200 tonn af þorski, í kyn-
slóðaskiptu sjókvíaeldi. Það flutti inn
silungshrogn sem klakið var út og al-
in í seiðastöð Háafells á Nauteyri í
Ísafjarðardjúpi. Nýlega voru starfs-
og rekstrarleyfi seiðastöðvarinnar
stækkuð þannig að þar má nú fram-
leiða 800 tonn.
Regnbogasilungurinn, um 170
fiskar, verður settur út í sjókvíar í
Álftafirði síðar í mánuðinum en sú
staðsetning hefur öll leyfi og er tilbú-
in til að taka við fiski. Reikna má með
að undir lok næsta árs verði hægt að
hefja slátrun og að upp úr kvíunum
komi nokkur hundruð tonn.
Háafell hefur sótt um leyfi til að
ala lax í Ísafjarðardjúpi og er um-
sóknin í umhverfismats- og leyfis-
veitingaferli. Endurskoðað áhættu-
mat vegna erfðablöndunar laxa-
stofna sem ráðherra hefur nú
staðfest gerir ráð fyrir að ekki megi
ala frjóan lax innan við Æðey vegna
nálægðar við laxveiðiár. Með því
lenda tvær mikilvægar staðsetningar
Háafells á bannsvæði.
Þarf að spila saman
Kristján segir að fyrirtækið muni
reyna að laga sig að þessum nýju for-
sendum. Áhættumatið nær ekki til
regnbogasilungs þannig að hann
mætti ala innan línunnar en Kristján
segir að byrjað verði í Álftafirði.
Spurður um framhaldið segir hann
að tíminn verði að leiða það í ljós
hvernig hægt verði að spila eldi sil-
ungs saman við laxeldi. Það fari einn-
ig eftir mörkuðum. Ekki sé ólíklegt
að báðar tegundir verði aldar.
Silungur í Ísafjarðardjúp
Háafell fær leyfi til að ala regnbogasilung Fyrsti árgangur settur út í kvíar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjókvíar Eldi á regnbogasilungi hefst á ný á vegum Háafells á næstunni.
Landsréttur staðfesti í gær átján
mánaða fangelsisdóm yfir Þór-
halli Guðmundssyni miðli vegna
kynferðisbrots gegn rúmlega tví-
tugum manni. Þórhallur var sak-
felldur fyrir að hafa fróað mann-
inum án samþykkis hans.
Þórhallur framdi brotið árið
2010 en maðurinn lagði fram
kæru sex árum síðar. Dómurinn,
sem Landsréttur staðfesti í gær,
var kveðinn upp í Héraðsdómi
Reykjaness í fyrra. Dráttur á mál-
inu er metinn til refsilækkunar.
Maðurinn kynntist Þórhalli á
miðilsfundi þremur eða fjórum
árum áður en brotið var framið. Í
framhaldi af öðrum fundi fór
hann svo í heilun til miðilsins
vegna bakverkja. Maðurinn fór
reglulega í tíma til Þórhalls og
fram kemur að miðillinn hafi orð-
ið eins og góður vinur mannsins.
Þórhallur hafi hins vegar farið að
sýna af sér vafasama hegðun í
byrjun árs 2010. Hann hafi tekið á
móti manninum í bol og stutt-
buxum eða náttbuxum og farið að
taka manninn úr bolnum og
teygja á honum. Fram kemur í
dómnum að málin hafi þróast
áfram þar til Þórhallur braut á
manninum. Þórhallur neitaði sök
en var sakfelldur, bæði í Héraðs-
dómi Reykjaness og Landsrétti.
Hann var auk þess dæmdur til að
greiða manninum eina og hálfa
milljón í miskabætur.
Dómur um kynferð-
isbrot staðfestur