Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
✝ Marta BáraBjarnadóttir
fæddist 4. desem-
ber 1933 í Þorkels-
gerði í Selvogi.
Hún lést 25. maí
2020 á Landspít-
alanum við Hring-
braut.
Foreldrar henn-
ar voru Bjarni
Jónsson bóndi, f.
22.8. 1877, d. 22.4.
1935, og Þórunn Friðriksdóttir
ljósmóðir, f. 6.10. 1889, d. 25.3.
1975.
Bára var yngst af sautján
systkinum. Eftirlifandi systur
hennar eru: Valgerður, f. 9.
september 1927, og Eydís, f. 3.
desember 1928.
Bára var gift Jens Þórarni
Karlssyni, vélstjóra frá Stokks-
eyri, f. 14. september 1925, d.
23. maí 1988. Bára og Jens eign-
uðust ellefu börn. 1) Þórunn, f.
22.3. 1952. Börn: Sesselja Íris,
Davíð Freyr og Unnar Þór.
Barnabörnin eru sjö og barna-
barnabörn tvö. 2) Bjarni Már, f.
ur. Barnabörnin eru þrjú. 10)
Rafnar, f. 20.4. 1970. Börn:
Frosti Rafn, Fannar Yngvi og
Eiður Már. 11) Silja Dögg, f.
26.8. 1975. Barn Marta María.
Bára var fædd og uppalin í
Selvogi en flutti til Þorláks-
hafnar árið 1955 ásamt eig-
inmanni og tveimur elstu börn-
unum. Bára og Jens voru hluti
af svonefndum frumbyggjum í
Þorlákshöfn og bjuggu fyrstu
tuttugu árin í B-götu 2. Bára
vann ekki fasta vinnu utan
heimilisins fyrstu búskaparárin,
enda var heimilið stórt. Í byrjun
árs 1968 slasaðist Jens við störf í
Búrfellsvirkjun og var frá vinnu
í marga mánuði. Þá þurfti Bára
að fara að vinna meira frá heim-
ilinu. Bára vann til að byrja með
í fiskvinnslu og við skúringar.
Um haustið byrjuðu þau hjónin
að vinna við ræstingar Grunn-
skóla Þorlákshafnar og unnu
þar í mörg ár. Bára vann einnig
í mörg ár við að skipta á kojum í
Herjólfi, um tíma í þvottahúsinu
í Meitlinum og seinna við þrif á
skrifstofunum þar. Hún vann
einnig við þrif á Heilsugæslunni
í tæp 20 ár, ásamt ýmsu fleiri til-
fallandi störfum. Síðustu árin
bjó Bára á Egilsbraut 21.
Útför Báru fer fram í Þor-
lákskirkju í dag, 6. júní 2020, kl.
14.
23.8. 1953, maki
Elva Hannesdóttir.
Börn: Þórunn
Selma og Helena
Guðrún. Barna-
börnin eru sex. 3)
Birna Guðríður, f.
11.10. 1955. Börn:
Valgeir Jens,
Hólmfríður Harpa,
Svavar Karl, Þór-
arinn Rafn og
Marta Bára. Barna-
börnin eru sex. 4) Hafdís, f. 2.12.
1956, maki Haraldur Ragnar
Ólafsson. Barn: Berglind Eir
Magnúsdóttir. Barnabörnin eru
þrjú. 5) Sesselja, f. 13.8. 1959, d.
27.6. 1968. 6) Guðmundur Karl,
f. 29.7. 1961. 7) Ásta Kristjana, f.
20.7. 1963. Börn: Elfar Þór
Bragason, Eva Lind og Matthías
Orri Elíasbörn. Barnbarn er 1.
8) Jenný Bára, f. 26.12. 1967.
Börn: Viktor Örn og Vilhelm
Þór. 9) Anna Kristín, f. 26.12.
1967, maki Hermann Jónsson.
Börn: Friðgerður og Jenný Kat-
arína Pétursdætur, Sunna Björk
og Auður Anna Hermannsdæt-
Mamma og pabbi fluttu til
Þorlákshafnar í janúar 1955 í
hús sem þau höfðu keypt að B-
götu 2. Þar byrjuðu þau form-
legan búskap. Á þessum fyrstu
búskaparárum var samgangur
við nágrannana mikill. Þorláks-
höfn var ungur bær og allir
þekktu alla. Krakkarnir léku
sér saman og B-gata 2 var vin-
sæll viðkomustaður hjá hús-
mæðrum í götunni á leiðinni í
kaupfélagið. Þar var oft mikið
fjör. Í minningunni sitja hús-
mæðurnar saman við eldhús-
borðið í hagkaupssloppum með
rúllur í hári, kaffibolla í annarri
hendi og sígarettu í hinni.
Mamma vann ekki fasta
vinnu utan heimilis fyrstu bú-
skaparárin, enda var heimilið
stórt og mannmargt. Herbergi
var leigt út og því oft aukafólk á
heimilinu utan fjölskyldumeð-
lima. Á þessum árum var allt
bakað heima, tekið slátur og
kjöt saltað í tunnur. Alltaf var
til nægur matur.
Í byrjun árs 1968 slasaðist
pabbi við störf í Búrfellssvirkj-
un og var frá vinnu í marga
mánuði.
Þá þurfti mamma að fara að
vinna úti, börnin voru orðin níu
og tvíburarnir rétt eins mánaða
gamlir. Um sumarið dó Sesselja
systir okkar af slysförum og var
þetta ár erfiður tími hjá fjöl-
skyldunni. Um haustið byrjuðu
þau hjónin að vinna við ræst-
ingar við Grunnskóla Þorláks-
hafnar þar sem þau unnu í mörg
ár. Mamma vann einnig lengi
við að skipta á kojum í Herjólfi
og við þrif á Heilsugæslunni og
Meitlinum, ásamt ýmsum fleiri
tilfallandi störfum. Við krakk-
arnir fórum oft með mömmu í
vinnuna, hvort sem var í skúr-
ingar eða í Herjólf.
Árið 1976 flutti fjölskyldan í
nýtt hús að Klébergi 12 en þá
voru eldri systkinin farin að tín-
ast að heiman. Árið 1988 féll
pabbi frá eftir veikindi. Síðustu
árin bjó mamma ein í huggu-
legri íbúð að Egilsbraut 21.
Mamma hafði mikinn áhuga á
tónlist. Jazz var í uppáhaldi, þó
hún væri nánast alæta á tónlist.
Mamma las mikið í seinni tíð
þegar fór að róast á heimilinu.
Hún var fróðleiksfús, las alltaf
blöðin, gerði krossgátur og
fylgdist með fréttum. Mamma
hafði alla tíð sérstaklega gaman
af því að ferðast, bæði innan-
lands og erlendis. Hún ferðaðist
til Suður- og NorðurAmeríku
og víða í Evrópu.
Hún hafði alltaf gaman af því
að skreppa í bíltúr og tók bíl-
próf eftir fimmtugt. Í seinni tíð
var fátt sem gladdi mömmu eins
mikið og að skreppa í dagsferð í
góðu veðri.
Mamma var alltaf góð heim
að sækja og því oft mikill gesta-
gangur. Ekki var amalegt að fá
kleinur, skonsur og pönnukökur
hjá henni. Mamma var alltaf
mikil pæja, ungleg og fín til
fara. Ef eitthvað stóð til voru
settar rúllur í hárið og hún fór
ekki til læknis án þess að setja á
sig varalit.
Allt fram á síðustu ár tókst
mamma á við lífið af einstakri
ósérhlífni. Hún greindist með
krabbamein fyrir rétt um ári
síðan. Hún sló aldrei slöku við,
fór í gönguferðir og tókst á við
veikindi sín af æðruleysi. Við
systkinin reyndum að njóta
þessara stunda sem við fengum
með mömmu síðasta árið en
veikindin voru farin að taka
sinn toll í lokin.
Ferðin í sumarlandið var
kærkomin hvíld. Það verður þó
erfitt að geta ekki lengur hringt
í mömmu eða skroppið í heim-
sókn.
Hvíl í friði elsku mamma,
Fyrir hönd systkinanna,
Jenný Bára.
Ó, gætu þeir séð sem að syrgja og
missa
þá sannleikans gleði sem óhult er
vissa,
að bönd þau sem tengja okkur eilífð
ná yfir,
að allt sem við fengum og misstum
það lifir.
(Ólöf frá Hlöðum)
Ég vildi að ég gæti sett í orð
hve dásamleg kona amma mín
var.
Amma var ein duglegasta
kona sem ég hef kynnst, hún
vann mörg störf og vann þau
vel, hún prjónaði, eldaði, bakaði
og hjálpaði til með barnabörnin,
þrátt fyrir þetta og mikinn
gestagang var heimilið alltaf
óaðfinnanlegt og hún tilhöfð.
Hver sá sem þekkti til ömmu
þekkir til gestrisni hennar, allt-
af var heitt á könnunni og nóg
að maula með því.
Amma var iðin við bakstur og
er vert að nefna kleinurnar
hennar sem voru þær bestu sem
hægt var að fá og skonsurnar
hennar sem voru í miklu uppá-
haldi hjá mér. Þegar amma vildi
gera mér dagamun skellti hún í
skonsur mér til ómældrar gleði.
Alla tíð hef ég verið afar lán-
söm því hver sá sem fær að eiga
ömmu eins og Báru hlýtur að
vera lánsamur. Amma átti alltaf
lausa stund fyrir mig og við vor-
um gott teymi. Hún tók mig oft
með í vinnuna þar sem ég fékk
að hjálpa við litlu verkin á með-
an hún tók stóru. Aldrei kvart-
aði hún þó hún hafi oft verið
þreytt eftir vinnu og kvalin af
mikilli gigt, það eina sem hún
bað um var örlítið nudd, þá
nuddaði ég lúnar hendur og
fætur. Þó að hendur hennar
væru afmyndaðar af gigt prjón-
aði hún hverja flíkina á fætur
annarri fyrir öll börnin, barna-
börnin og barnabarnabörnin og
er ég svo heppin að hafa fengið
óteljandi sokka í gegnum tíðina.
Það er svo ótalmargt sem við
amma gerðum saman, ég á svo
margar dýrmætar minningar.
Amma var mikill bókaormur og
hef ég eflaust erft það frá henni.
Sem barn lásum við hvor fyrir
aðra og ég hélt áfram að lesa
fyrir hana fram að síðustu
stundu. Bækurnar fylgdu okkur
alla tíð og á fullorðinsárum
ræddum við mikið þær bók-
menntir sem við lásum. Hennar
helsta lesefni voru ævisögur og
endurminningar, hún hafði
áhuga á sögulegu gildi þessara
bókmennta. Amma hafði mikinn
áhuga á fólki, sögu þess og ætt-
artölu.
Hún var afar skörp til hinstu
stundar, það var varla til sá
þorpsbúi sem amma kunni ekki
deili á og vissi hverra manna
þeir voru. Það var stórkostlegt
að heyra hana rekja ættir bæj-
arbúa. Hún naut þess einnig að
tala um gamla tíma, það lifnaði
yfir henni þegar hún talaði um
uppbyggingu Þorlákshafnar og
tíma sinn í Selvoginum. Mér er
minnisstæðast brosið sem færð-
ist yfir hana þegar hún talaði
um afa, hún talaði öðruvísi um
hann en nokkurn annan. Hún
elskaði hann heitt og saknaði
hans mikið og er það huggun í
sorginni að vita að þau eru loks
sameinuð á ný.
Amma studdi mig alltaf, hún
hvatti mig áfram, stóð við bakið
á mér og var stolt af öllum mín-
um afrekum.
Hún var mér svo miklu meira
en bara amma, hún var amma
mín, aukamóðir og mín kærasta
vinkona.
Ég er og mun alltaf vera stolt
af því að vera barnabarn Báru
Bjarnadóttur og þakklát fyrir
allan þann tíma sem ég fékk
með henni.
Aldrei fellur á þig ryk
fyrir innri sjónum mínum.
Átt hef ég sælust augnablik
í örmunum sterkum þínum.
(Þura í Garði)
Þín
Jenny Katarína.
Marta Bára
Bjarnadóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur
og frændi,
FRIÐRIK GUÐMUNDSSON,
Lyngmóa 17, Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. júní.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 12. júní klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Duchenne vöðvarýrnun á Íslandi,
reikningsnúmer 111-26-10315, kt. 640512-2610.
Guðmundur Sigurðsson Kolbrún Geirsdóttir
Gunnfríður Friðriksdóttir Antonio Manuel Goncalves
Kolbrún Guðmundsdóttir Karl Kristján Davíðsson
Salka Snæbrá og Kolbeinn Friður
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum v/Fossvog
laugardaginn 30. maí.
Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju
þriðjudaginn 16. júní klukkan 13.
Guðmundur Þórðarson
Pálmar Guðmundsson Kamilla Guðmundsdóttir
Smári Guðmundsson
Fríða Dís Guðmundsdóttir Þorsteinn Árnason Surmeli
Særún Lea Guðmundsdóttir Guðjón Örn Sigurðsson
og ömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRET ANNA PÁLMADÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeildinni í
Kópavogi sunnudaginn 31. maí. Útförin fer
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki 11-EG og
líknardeildarinnar fyrir góða umönnun. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Ljósið, Líf, Kraft eða Krabbameinsfélagið.
Fjölskyldan þakkar hlýhug og vinsemd.
Íris Björk Hreinsdóttir Gunnar Smári Tryggvason
Pálmi Aðalbjörn Hreinsson
Tryggvi Hreinn Gunnarsson
Egill Pálmi Gunnarsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA ARNÓRSDÓTTIR,
áður til heimilis að Hlíðarbraut 9,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu 2. júní. Útför hennar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
8. júní klukkan 13. Innilegar þakkir færum við starfsfólki
Ölduhrauns, Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Árný Skúladóttir Friðrik Guðlaugsson
Sólveig A. Skúladóttir
Arnór Skúlason Margrjet Þórðardóttir
Skúli Skúlason Katrín Guðbjartsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, afi, bróðir, frændi og
vinur okkar,
FRIÐMAR PÉTURSSON
frá Gili, Fáskrúðsfirði,
lést 9. apríl. Hann verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 12. júní
klukkan 13.
Una Sjöfn, Sindri Þór, Hjördís Lilja
Anna Þóra Pétursdóttir Björgvin Baldursson
Jóhannes Marteinn Péturs.
Sigurður Ágúst Pétursson Fjóla Sesselja Þorsteinsdóttir
Pétur Einar Pétursson
Herdís Pétursdóttir Kristmann E. Kristmannsson
Haraldur Leó Pétursson Michaela Schinnerl
fjölskyldur og Hildur Ársælsdóttir