Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun,
hárgreiðsla, brúðkaupsferðin,
veislumatur, veislusalir og brúðar-
gjafir eru meðal efnis í blaðinu.
- meira fyrir áskrifendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12, mánudaginn 15. júní.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
BRÚÐKAUPSBLAÐ
Morgunblaðsins kemur út
föstudaginn 19. júní
SÉRBLAÐ
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Fermd verða fimm börn. Prestar eru sr. Svavar
Alfreð Jónsson og sr. Jón Ragnarsson. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sig-
rún Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11 á ljúf-
um og léttum nótum. Sr. Þór Hauksson þjónar.
Organisti er Krisztina Kalló Szklanér. Kaffi og
spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta á sjómannadaginn
kl. 11. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu
Eyjólfsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur. Org-
anisti Bjartur Logi Guðnason. Heitt á könnunni
í Ási á eftir.
Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli á sjó-
mannadaginn kl. 13. Sigurður Jónsson sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti Bjartur Logi Guðnason.
ÁSKIRKJA í Fellum | Guðsþjónusta á sjó-
mannadag kl. 11. Fermd verða tvö börn. Prest-
ur er Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti er
Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju syngur.
BAKKAGERÐISKIRKJA | Sjómannadags-
messa kl. 11 í nýja þjónustuhúsinu við Borgar-
fjarðarhöfn. Prestur er Þorgeir Arason. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur
syngja. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta verður
kl. 11 og kl. 14. Kl. 11 þjónar sr. Magnús Björn
Björnsson fyrir altari. Organistinn Örn Magn-
ússon leiðir almennan safnaðarsöng. Kl. 14
þjónar sr. Toshiki Toma fyrir altari í Alþjóðlega
söfnuðinum í Breiðholtskirkju. Kaffi eftir guðs-
þjónusturnar. Eftir helgi hefst viðgerð á þaki
Breiðholtskirkju. Þá flytjast allar helgistundir á
jarðhæð kirkjunnar.
BÚSTAÐAKIRKJA |
Nú skiptum við yfir í kvöldmessur. Breytt snið
og form í tali og tónum á sunnudagskvöldum í
allt sumar.
Kvöldmessa sunnudag 7. júní kl. 20. Einsöngv-
ari Marteinn Snævar Sigurðsson. Messuþjónar
og sr Pálmi Matthíasson annast þjónustu.
DIGRANESKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11.
Sr. Gunnar Sigurjónsson leiðir stundina ásamt
Sólveigu Sigríði Einarsdóttur organista. Sjó-
mannamessa í Kópavogskirkju á sama tíma.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landakoti
| Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 18 er vigilmessa og messa á pólsku kl. 19.
DÓMKIRKJAN | Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, pré-
dikar séra Sveinn Valgeirsson þjónar. Dómkór-
inn, Kári Þormar, dómorganisti. Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir syngur einsöng. Eiríkur Örn Páls-
son og Jóhann Stefánsson leika á trompeta.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta á sjó-
mannadaginn kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur
organista. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Sjómannadagurinn.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðar-
prestur leiðir stundina. Barn verður borið til
skírnar. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn
við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari
Gunnarssyni.
GARÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Ferming. Félagar í kór Vídalínskirkju
syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson.
Boðið verður upp á kaffi og prins polo og kók í
gleri í messukaffinu í Hlöðunni við hliðina á
bænum Krók á Garðaholtinu.
GLERÁRKIRKJA | Sjómannadagsguðsþjón-
usta 7. júní kl. 11. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir
leiðir stundina. Klukkan 12 er stund við minn-
isvarðann um týnda og drukknaða sjómenn.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fyrsta kaffihúsa-
guðsþjónusta sumarsins verður 7. júní í Grafar-
vogskirkju kl. 11. Prestur er Arna Ýrr Sigurð-
ardóttir. Organisti er Hákon Leifsson og kór
Grafarvogskirkju leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag
kl. 11. Organisti er Ásta Haraldsdóttir, félagar
úr kór Grensáskirkju syngja og þjóna ásamt
messuþjónum. Prestur er sr. Pálmi Matthías-
son.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Sjómannadags-
messa kl. 11. Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, verður ræðumaður. Berta Dröfn
Ómarsdóttir söngkona syngur ásamt Kór
Grindavíkurkirkju undir stjórn Erlu Rutar Kára-
dóttur organista. Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar
fyrir altari. Helgistund í Víðihlíð kl. 12.30.
Guðni Th. Jóhannesson flytur ræðu. Einsöngur:
Berta Dröfn Ómarsdóttir.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á sjómanna-
daginn. Prestur er Karl V. Matthíasson. Ásbjörg
Jónsdóttir sér um tónlistarflutninginn. Kirkju-
vörður Lovísa Guðmundsdóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar
fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Bæna-
stundir kl. 12 miðvikudaga til föstudaga.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sameiginleg
helgistund Kópavogs-, Digranes- og Hjallakirkju
á sjómannadag kl. 11 í safnaðarheimili Kópa-
vogskirkju Borgum. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir,
settur sóknarprestur, verður með hugleiðingu.
Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors kirkjunnar. Tónlistin ber
merki sjómannadagsins og munu þeir Páll Elí-
asson og Hannes Sigurgeirsson leika á harm-
onikkur.
Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðsþjónusta á
hjúkrunarheimilinu Skjóli á sjómannadaginn kl.
13. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur
Logi Guðnason. Almennur söngur.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sjó-
mannadagsmessa kl. 11. Steindór Runiberg
Haraldsson verður ræðumaður dagsins. Hinn
rómaði Sjómannadagskór Skagastrandar syng-
ur við undirleik hljómsveitar hússins og Hug-
rúnar Sifjar Hallgrímsdóttur, organista og kór-
stjóra.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar í mess-
unni. Að athöfn lokinni verður lagður blóm-
sveigur við minnisvarðann um drukknaða sjó-
menn frá Skagaströnd.
HVALSNESKIRKJA | Helgistund við minn-
isvarðann um drukknaða sjómenn í Hvals-
neskirkjugarði kl. 13. Almennur söngur, hug-
vekja, ritningarlestur, bæn, blómsveigur lagður
að minnisvarðanum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Service. Translation into English.
Samkoma á ensku kl. 14. English speaking
service. Samkoma á spænsku kl. 16.
Reuniónes en español.
KÓPAVOGSKIRKJA | Sameiginleg helgistund
Kópavogs-, Digranes- og Hjallakirkju á sjó-
mannadag kl. 11 í safnaðarheimili Kópavogs-
kirkju Borgum. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, settur
sóknarprestur, flytur hugleiðingu og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Tónlistin
ber merki sjómannadagsins og munu þeir Páll
Elíasson og Hannes Sigurgeirsson leika á
harmonikkur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Aldís
Rut Gísladóttir prestur þjónar. Magnús Ragn-
arsson er organisti. Félagar úr Fílharmóníunni
syngja. Barn verður fermt í messu. Léttur há-
degisverður að lokinni athöfn.
MOSFELLSKIRKJA | Kirkjureið að Mosfelli og
guðsþjónusta í Mosfellskirkju 7. júní kl. 14.
Hestamenn úr hestamannafélaginu Herði í
Mosfellsbæ koma ríðandi til guðsþjónustu.
Lagt verður af stað frá hesthúsahverfinu í Mos-
fellsbæ. Ræðumaður verður Jóhannes Krist-
jánsson skemmtikraftur. Félagar úr Karlakór
Kjalnesinga syngja. Þóður Sigurðarson kór-
stjóri og organisti. Prestur er Ragnheiður Jóns-
dóttir. Kirkjuvörður: Bryndís Böðvarsdóttir.
Kirkjukaffi í Harðarbóli að athöfn lokinni.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er
Steingrímur Þórhallsson. Árni Friðrik Guð-
mundsson og Kjarta Hugi Rúnarsson leika á
saxófóna. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Sam-
félag og kaffi á Torginu eftir messu.
SELJAKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30.
Prestar kirkjunnar þjóna, félagar úr Kór Selja-
kirkju leiða söng. Organisti: Tómas Guðni Egg-
ertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 á sjómannadegi. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er org-
anisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju leiða almennan safnaðarsöng.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta að
kveldi sjómannadags, sunnudaginn 7. júní kl.
20. Rusa Petriashvili og kór Seyðisfjarðarkirkju
leiða tónlistina. Prestur er Sigríður Rún
Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar
Einarsson. Messan er tileinkuð sjómönnum á
deginum þeirra. Við þetta tilfefni verður útskrift
ungmenna úr farskólanum en í vetur hafa sjö
unglingar úr æskulýðsstarfi Seyðisfjarðarkirkju
tekið þátt í farskólanum. Kaffi og konfekt eftir
messu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur
annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
TORFASTAÐAKIRKJA Biskupstungum |
Fermingarmessa kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson
sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Org-
anisti er Jón Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Helgistund við minn-
isvarðann um drukknaða sjómenn í Útskála-
kirkjugarði kl. 11. Almennur söngur, hugvekja,
bæn, ritningarorð, blómsveigur lagður að minn-
isvarðanum.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Minning-
arstund kl. 10:45 við altari sjómannsins. Blóm-
sveigur lagður að minnismerkinu. Sjó-
mannadagsmessa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds-
dóttur og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknar-
prestur þjónar fyrir altari.
ORÐ DAGSINS: „Hver
getur þá orðið hólpinn?“
(Lúk. 18.25-27)
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Breiðabólstaðarkirkja í Fljótshlíð.
Mér finnst einhvern
veginn eins og fyrri
hálfleik sé lokið í bar-
áttunni við CO-
VID-19-veiruna. Og
heilt yfir litið tókst
okkur vel til og við
erum yfir í leiknum.
Vissulega urðum við
Hvergerðingar fyrir
miklu áfalli vegna frá-
falls góðra hjóna hér í
bæ og margir urðu mikið veikir.
En að teknu tilliti til þess hversu
fáir létu lífið á Íslandi miðað við
víða annars staðar út í heimi, þá
getum við mjög vel við unað.
Landið virðist vera nær smit-
laust og daglegt líf að komast í
samt lag. Heimsóknarbanni hefur
nú algjörlega verið aflétt af hjúkr-
unarheimilunum og þá komast allir
í crossfit sem það kjósa. Þetta hef-
ur tekist með feikna-samstilltu
átaki allra sem að þessum málum
koma. Til að móðga nú engan, til
dæmis ónafngreinda vísindamenn,
þá vil ég nota tækifærið og þakka
öllum þeim sem hafa komið að
framangreindum málum kærlega
fyrir þeirra góða framlag. Sam-
vinna og samkennd eru
orð sem koma fyrst
upp í hugann, svona
fljótlega á eftir hand-
þvotti.
En eins og áður
sagði, þá tel ég að við
séum í hálfleik. Seinni
hálfleikur hefst líklega
þegar ný smit greinast
við komu erlendra
ferðamanna til lands-
ins, væntanlega í lok
júní. Þá ríður á að við
séum aftur tilbúin í leikinn, sem er
reyndar ekki leikur, heldur dauð-
ans alvara. Njótum hálfleiksins en
verum tilbúin með vel reimaða
takkaskó og hreinar hendur þegar
sá seinni hefst.
Með vel reimaða
takkaskó í seinni
hálfleik
Eftir Gísla Pál
Pálsson
Gísli Páll Pálsson
»Njótum hálfleiksins,
en verum tilbúin
með vel reimaða takka-
skó og hreinar hendur
þegar sá seinni hefst.
Höfundur er forstjóri Grundar-
heimilanna og íbúi í Hveragerði.
gisli@grund.is
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is