Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 10
veiðar, eftir allrahanda undirbúning,
og það komu fjórir fallegir laxar á
land,“ sagði staðarhaldarinn Erik
Koberling. Og hann gladdist yfir því
að einn laxanna veiddist á nýjum
veiðistað, Ennisflúð, efst á svæði 1
sem hann segir vera einstaklega fal-
legan fluguveiðistað.
„Og þetta var í fyrsta skipti sem
bara er veitt á flugu í opnun Blöndu,
á þessu gríðarlega fallega veiðisvæði.
Veiðimennirnir eru kátir og auk lax-
ins sem kom úr nýja veiðistaðnum
veiddist einn á Breiðunni að sunnan
og einn að norðan.
Það var mjög kalt þegar veiðin
hófst en sólin hefur skinið og hlýnað
skarpt; nú erum við öll sólbrunnin,“
sagði hann og hló. Þegar hefur slatti
af laxi farið gegnum teljarann upp á
efri svæði Blöndu, sem veit á gott.
Eftir tíu laxa opnunardag í Norð-
urá á fimmtudag tóku veiðimenn það
rólega í gærmorgun enda var hitinn
við frostmark. Þeir fóru ekki til veiða
fyrr en um tíuleytið, er hlýnaði, og
gekk vel; var átta löxum landað fyrir
hádegi, á hinum ýmsu veiðistöðum.
„Í Munaðarnesi, í Stekknum, á
Stokkhylsbroti, við Laxfoss og víð-
ar,“ taldi Einar Sigfússon upp,
ánægður með byrjunina.
Sá fyrsti Inga Lind Karlsdóttir veiddi spengilega hrygnu í veiðistaðnum
Örnólfi í Þverá í Borgarfirði og var það fyrsti lax sumarsins úr ánni.
„Allt stórar og fallegar hrygnur“
Inga Lind Karlsdóttir veiddi fyrsta lax sumarsins í Þverá í Borgarfirði Fjórum var landað fyrsta
morguninn í Blöndu en þar en nú aðeins veitt á flugu Áfram var fín veiði í Norðurá í kuldanum
Sumarboði Reynir Sigmundsson með myndarlega hrygnu sem hann veiddi
í Blöndu í gærmorgun en þar var í fyrsta skipti bara veitt á flugu í opnun.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Byrjað var að kasta fyrstu flugum
sumarsins fyrir laxa í Þverá í Borg-
arfirði um klukkan níu í gærmorgun
en það var býsna svalt og veiðimenn
urðu, að sögn Ingólfs Ásgeirssonar
staðarhaldara, ekki varir fyrr en um
ellefuleytið þegar hlýnað hafði.
„Inga Lind Karlsdóttir fékk þá
fyrsta laxinn úr Þverá í sumar. Hún
var þá með Agli Kristinssyni leið-
sögumanni og bónda í Örnólfsdal og
við hæfi að hún veiddi laxinn í veiði-
staðnum Örnólfi!“ sagði Ingólfur.
„Svo komu tveir aðrir undir hádegi
úr Guðnabakka, veiddir af Andrési
Eyjólfssyni og Aðalsteini Péturssyni.
Þá misstust aðrir þrír laxar svo það
var sett í sex í morgun. Þeir hefðu ef-
laust orðið fleiri hefði verið hlýrra.
Þetta voru allt stórar og fallegar
hrygnur, 80 til 85 cm langar.“
Rætt var við Ingólf áður en haldið
var til veiða á seinni vaktina í gær og
var hann bjartsýnn fyrir kvöldið,
enda hafði lofthitinn stigið.
Veiðar hófust líka í Blöndu í gær
og þar hafa orðið breytingar á veiði-
fyrirkomulagi; hjá nýjum leigutaka,
Störum, er eins og áður byrjað að
veiða á neðsta svæðinu en á þrjár
stangir í stað fjögurra og nú er bara
veitt á flugu.
„Það var frábært að hefja loksins
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð
og framleidd í Svíþjóð.
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi
Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign,
hafðu samband í síma 533 4200 eða arsalir@arsalir.is
Ársalir
fasteignamiðlun
533 4200
725,2 m² – Vandað og gott atvinnuhúsnæði
sem skiptist í 515 m² á jarðhæð með tven-
num innkeyrsluhurðum og hárri lofthæð, og
210 m² á efri hæð, sem henta vel fyrir
skrifstofur og þh. Góð aðkoma og bílastæði
á lóð.
374,9 m2 – Gott 375 m² atvinnuhúsnæði
við Skútuvog í Reykjavík. Húsnæðið á
jarðhæð sem er 256 m² með hárri og góðri
innkeyrsluhurð, lofthæð ca. 4,3m Skrifsto-
fur, kaffistofa og snyrting á efri hæð, eru
119 m² allt í mjög góðu ástandi.
Til afhendingar við kaupsaming.
Björgvin
Björgvinsson,
löggiltur fasteignasali
Dragháls 10, 110 Reykjavík Skútuvogur 10B, 104 Reykjavík
Til s
ölu
Til s
ölu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Fólk hefur kannski ekki mikla
trú á þessu. Skiljanlega, enda ekki
margir sem tengja pylsur við fisk.
Þeir sem smakka hafa þó verið
ánægðir,“ segir Logi Brynjarsson,
matreiðslumeistari og framleiðslu-
stjóri Hafsins.
Fyrir skemmstu voru settar í
sölu í verslunum Hafsins fiskipyls-
ur sem Logi þróaði. Logi kallar
þær „Pulsur“ og leggur áherslu á
að þær séu öðruvísi en aðrar pyls-
ur á markaði. „Við erum ekki að
fara í samkeppni við SS eða aðrar
kjötpylsur. Þetta er hrein viðbót á
markaðinum. Þó eru þær svipaðar
hefðbundnum pylsum að því leyti
að þær eru forsoðnar og létt-
reyktar og það er hægt að sjóða
þær, grilla, djúpsteikja eða pönnu-
steikja. Og auðvitað borða þær í
brauði með öllu tilheyrandi.“
Fiskipylsurnar eru gerðar úr
þorski og innihalda ekki egg,
hveiti eða mjólk. Þess í stað er
notuð kókosfita til að gera pyls-
urnar meira djúsí, að sögn Loga.
„Við erum með svo góðan tækja-
búnað til að gera fiskibollur og
hann nýtist í þetta líka. Þegar
kórónuveirufaraldurinn skall á
ákvað ég að fara á fullt í að þróa
uppskriftina,“ segir Logi. Hann
segist enn vera að fínpússa fram-
leiðsluna og ætli því að bíða með
að setja pylsurnar í sölu í stór-
verslunum. Viðskiptavinir Hafsins
sitja því einir að herlegheitunum
enn um sinn.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
fiskipylsur eru settar á markað
hér á landi. Að sögn Nönnu Rögn-
valdardóttur, sem þekkir vel til
matarsögu á Íslandi, er fyrirbærið
að minnsta kosti yfir 90 ára gam-
alt. Að hennar sögn fengust ís-
lenskar fiskipylsur, bæði óreyktar
og reyktar, oft á árunum 1927-
1947 og svo aftur 1964 en þá man
hún sjálf eftir að hafa smakkað
þær og orðið fyrir vonbrigðum.
Logi segir að hin síðustu ár hafi
fiskipylsur verið framleiddar fyrir
Fiskidaginn mikla á Dalvík og þá
hafi þróunarverkefni sem unnið
var í samstarfi við Matís ekki skil-
að sér í verslanir.
Ein með öllu – úr þorski
Logi hefur þróað fiskipylsur og borðar þær eins og vínar-
pylsur Voru framleiddar hér á þriðja tug síðustu aldar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýmeti Logi Brynjarsson matreiðslumeistari hefur þróað fiskipylsur og
selur í fiskbúðinni Hafinu. Pylsurnar eru úr þorski og þykja ljúffengar.