Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 „SPÍTALINN OKKAR” AÐA L F U N D U R Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn á Nauthóli, Nauthólsvík þriðjudaginn 9. júní 2020, kl. 16.00. DAGSKRÁ Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Að loknum aðalfundarstörfum verða áhugaverð erindi: Skyggnist inn í nýjan meðferðarkjarna Landspítala: Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt Hlutverk meðferðarkjarna á tímum farsótta: Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma Landspítala Lokaorð flytur María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Tækninýjungar og framtíðarsýn í heilbrigðismálum. Allir velkomnir Stjórn „Spítalans okkar“ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gamall birkiskógur er illa útleikinn eftir gróðureldana í Norðurárdal 18. maí sl. og miklar gróðurskemmdir hafa orðið. Kemur það fram í grein- argerð sérfræðinga Náttúrufræði- stofnunar Íslands sem metið hefur skemmdirnar. Brunna svæðið nær yfir 13,2 hekt- ara, samkvæmt mælingum stofn- unarinnar. Í upphafi var rætt um að eldurinn hefði farið yfir mosa og hraun. Járngerður Grétarsdóttir, gróðurvistfræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun, segir að það sé ekki rétt. Stærsta svæðið sé skógur, gamall birkiskógur, fyrir neðan hraunbrúnina, alls um 11,3 ha. Einn- ig brann nokkurt svæði uppi á hraunbrúninni, meðal annars 1,1 ha hraunlendi þar sem hraungambri er ríkjandi. Þá brann tæpur hálfur hektari syðst og um miðbik svæð- isins þar sem gulvíðir og gisið birki var og loks tæpur hálfur hektari af graslendi næst Norðurá. Kolsvart teppi Skógurinn er illa útleikinn eftir brunann og gróðurskemmdir mikl- ar. Stofnar stórra og gamalla birki- trjáa eru mikið brunnir og grennri tré og gulvíðirunnar orðin að svörtu spreki. Það eina sem sérfræðing- arnir sáu af sortulyngi voru sviðin laufblöð og kolaðar greinar. Kræki- lyng var brunnið upp til agna og mosi, bæði hraungambri og annar mosi í skógarbotninum, var ýmist horfinn eða lá sem kolsvart teppi af mjóum þráðum. Járngerður segir að meiri skemmdir verði á gróðri þegar land er þurrt og frost farið úr jörðu. Spurð um mun á þessum gróður- eldum og Mýraeldum sem fóru yfir mun stærra svæði fyrir 14 árum seg- ir Járngerður að annars konar gróð- ur hafi brunnið þar. Auk þess hafi þeir verið fyrr um vorið og klaki hafi verndað ræturnar. Í Norðurárdal hafi orðið mikið tjón á trjám og und- irgróður brunnið alveg niður. Annað vistkerfi í staðinn Hún segir að ekki sé hægt að segja til um það fyrr en í ágúst hvaða gróður hefur lifað af. Það fari eftir því hversu djúpt bruninn hefur náð og hvernig rótunum hefur reitt af. „Svæði jafna sig alltaf aftur. Það er spurning um tíma og hvað vex aft- ur. Ég gæti trúað því að gras spretti þarna og að eitthvað af trjánum hafi lifað af. En þetta er ekki sama vist- kerfið, gamall birkiskógur hefur skemmst með öllum sínum undir- gróðri,“ segir Járngerður. Ljósmynd/Sigurður Kristinn Guðjohnsen Norðurárdalur Gamall birkiskógur á milli Grábrókarhrauns og Norðurár er illa farinn eftir gróðureldana. Gamall birkiskógur fór verst út úr gróðureldum  13,2 hektarar brunnu í skógareldunum í Norðurárdal Ljósmynd/Járngerður Grétarsdóttir Birki Stofnar gamalla birkitrjáa eru illa farnir og skógarbotninn brunninn. Pétur Magnússon petur@mbl.is Gert er ráð fyrir byggingu nýs golfvallar á Álftanesi í tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes á Álftanesi, sem samþykkt var í bæjarstjórn Garðabæjar í vikunni. Einnig er um að ræða breytingar í aðalskipulagi Norðurness, sem snúa að frekari uppbyggingu á svæðinu. Auk golfvallar er gert ráð fyrir uppbyggingu fjögurra íbúðasvæða, smábáta- og skemmtibátahafnar og aðstöðu fyrir hestamenn á Seyl- unni. Nýi golfvöllurinn mun leysa af hólmi Álftanesvöll, sem fyrir er á Álftanesi, en völlurinn hefur, að sögn Arinbjörns Vilhjálmssonar, skipulagsstjóra Garðabæjar, aldrei átt stoð í skipulagi bæjar- ins. Í nýju deili- skipulagi verður Álftanesvöllur að mestu tekinn undir íbúðarhús og opin svæði þegar nýi golfvöllurinn verður kom- inn í gagnið. Lendingarbraut fyrir margæsir Arinbjörn segir sveitarfélagið einnig horfa til ýmissa mótvægis- aðgerða, og taka sérstakt tillit til gróðurs og fuglalífs. Þær aðgerðir innihalda endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn og gerð hólma í Bessastaðatjörn. Arinbjörn segir einnig golfbraut- ir vera kjörnar lendingarbrautir fyrir margæsir, sem millilenda iðu- lega á Álftanesi á leið sinni til Grænlands. Skipulagsmál bæjarins séu enn á forkynningarstigi, en sveitarfélagið muni kynna þessar framkvæmdir frekar á kynningarfundi hinn 25. ágúst. Verður lagt fyrir bæjarbúa Upplýsingar um framkvæmdirn- ar verða gerðar opinberar á heima- síðu Garðabæjar 11. júní, þar sem bæjarbúar geta kynnt sér áætlanir bæjarins og komið með ábendingar. Að sögn Arinbjörns er erfitt að segja hvenær hægt verður að leika golf á nýja vellinum, en ef skipu- lagsforsendur ganga upp væri hægt að hefja framkvæmdir í byrjun næsta árs. Nýr golfvöllur skipu- lagður á Álftanesi  Einnig gert ráð fyrir smábátahöfn og aðstöðu fyrir hestafólk Fyrirhugaður golfvöllur á Álftanesi Samkvæmt deilskipulagi Garðabæjar fyrir Norðurnes 1 5 2 4 3 8 7 9 6 Golfskáli Íbúðarsvæði T Ú N Jö fra ve gu r Norðurnesvegur Bessastaðir Mö rk sk ipu lag s Bessastaðatjörn Ka sth ús atj örn Æfinga- svæði H ei m ild : G ar ða bæ r. G ru nn ko rt : L an ds la g. Arinbjörn Vilhjálmsson Þorri Þórarinsson, nemandi í Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra, náði þeim magnaða árangri að hljóta meðaleinkunnina 10,0 á stúd- entsprófi á náttúrufræðibraut. Þorri hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í ensku, dönsku, íslensku, þýsku, raun- greinum og stærðfræði, auk þess að hljóta verðlaun fyrir alhliða náms- árangur á stúdentsprófi náttúru- fræðibrautar. „Mér líður ótrúlega vel, ég er bú- inn að vinna hart að þessu í ótrú- lega langan tíma. Þetta er bara yndislegt,“ segir Þorri í samtali við Morgunblaðið. Hann segist hafa óendanlegan metnað fyrir námi, en það skipti miklu máli að muna að slappa af og taka það rólega inn á milli. Þorri segist ekki alltaf hafa haft svona mikinn metnað fyrir námi en það hafi stóraukist þegar hann byrjaði í framhaldsskóla. „Þegar ég sá fyrstu tíurnar fékk ég mikinn metnað til að halda þessu áfram.“ Líkt og aðrir útskriftarnem- endur þurfti Þorri að ljúka námi sínu í fjarkennslu vegna kórónu- veirufaraldursins, en hann segir fjarkennsluna hafa hentað sér ágætlega. „Stressið minnkaði mikið við að vera heima. Það er vegna þess að ég held mjög vel utan um námið og var mjög tilbúinn í þessar óvissuaðstæður.“ Í lok sumars stefnir Þorri á nám í lífefna- og sameindalíffræði við Há- skóla Íslands og ætlar hann að nota sumarið í að vinna og búa sig undir það. Dúxaði með 10,0 í meðaleinkunn  Fjarkennskan minnkaði stressið Metnaðarfullur Í haust stefnir Þorri í háskólanám í bænum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.