Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 33

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 síðast um jólin. Ef hún komst ekki með velviljuðum Siglfirðing- um þá tók hún bara strætó. Við fjölskyldan þökkum Stellu frænku samfylgdina og sendum börnum hennar, Fjólu og Óskari, og barnabörnunum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Stellu frænku. Ólöf Birna Blöndal. Stella frænka mín var órjúfan- legur hluti af bernsku minni. Hún átti heima á efri hæðinni á Há- vegi 65 á Siglufirði og foreldrar mínir á neðri hæðinni og var mik- ill samgangur á milli fjölskyldn- anna. Mamma mín og Stella voru systradætur sem ólust upp sam- an í Hlíðarhúsi á Siglufirði. For- eldrar Stellu áttu Hlíðarhús og það þótti bara sjálfsagt að afi og amma fengju að vera þar líka og ala þar upp dætur sínar tvær. Samvinna og samheldni fjöl- skyldnanna í Hlíðarhúsi var ein- stök og aldrei bar skugga á sam- skipti þeirra. Eftir að mamma Stellu dó árið 1972 sá hún um pabba sinn, sómamanninn Snorra í Hlíðar- húsi, sem var blindur síðustu 26 ár ævi sinnar. Innileg væntum- þykja og gagnkvæm virðing þeirra feðgina var aðdáunarverð. Hlíðarhús var í eigu fjölskyldu Stellu í yfir 100 ár eða þar til hún ánafnaði Síldarminjasafninu hús- ið til minningar um foreldra sína. Stella var ein af fáum konum á Siglufirði sem keyrðu bíl á mín- um uppvaxtarárum. Fór ég ófáar ferðirnar með henni á Willys- jeppanum bæði til berja og í fjallagrasatínslu. Stella söng í kvennakórnum og kirkjukórnum í áratugi og tók hún mig oft með á kóræfingu á kirkjuloftinu þar sem ég fékk innsýn inn í töfra- heim kirkjutónlistar. Stella frænka mín var stórglæsileg kona, eldklár og einstaklega góð við okkur börnin á neðri hæðinni og skynjuðum við væntumþykj- una alla tíð. Árið 1973 fengu Stella og Knútur tvö fósturbörn, þau Fjólu og Óskar. Það var mikil gæfa þeirra allra. Börnin fengu öruggt skjól, umhyggju og kærleika og líf Stellu og Knúts varð innihalds- og gleðiríkara. Stella var einstak- lega dugleg að heimsækja börnin sín eftir að þau fluttu frá Siglu- firði. Hún vílaði ekki fyrir sér á tí- ræðisaldri að fara með rútunni til Reykjavíkur til að hitta börnin, tengdabörnin og barnabörnin sem veittu henni ómælda gleði. Hún hringdi í mig skömmu fyrir andlátið til að óska mér til hamingju með afmælið eins og hún gerði ávallt. Hress í rómi sagði hún að það væri orðið lítið eftir af sér líkamlega en minnið væri sem betur fer enn tiltölulega gott. Stella frænka mín átti langa ævi og var tilbúin að yfirgefa þetta jarðlíf sátt við guð og menn. Þegar ég lít til baka sé ég hvað ég var heppin að hafa allt þetta góða fólk í kringum mig í æsku sem umvafði mann kærleika og hlýju en Stella er síðust af fjölskyld- unni í Hlíðarhúsi til að kveðja þessa jarðvist. Ég þakka henni allar ljúfu minningarnar sem hún skilur eftir hjá mér og votta Fjólu, Óskari og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Guðrún Ó. Blöndal. Það var alltaf bleksterkt kaffið hjá henni Stellu frænku. Á ótal fundum okkar, þegar ég heim- sótti minn gamla góða heimabæ, drukkum við kynstrin öll af þess- um gæðadrykk. Alltaf spurði Stella: „Er þetta nokkuð of sterkt?!“ Ekki var um neinar kurteisisheimsóknir að ræða til frænku minnar, heldur setið klukkustundum saman og talað um allt milli himins og jarðar, en einkum þó minningar tengdar Hlíðarhúsum og fólkinu sem þar bjó. Í Hlíðarhúsi bjuggu afi minn og amma, ömmusystir mín – móðir Stellu – og Snorri, pabbi Stellu. Í Syðra-Hlíðarhúsi bjó svo fjölskylda mín á neðri hæðinni, en á efri hæðinni fóstursystir þeirra systra og maður hennar ásamt tveimur börnum. Þau fluttu til Reykjavíkur um miðjan sjötta áratuginn. Þetta fólk ól okkur systkinin upp og veitti okkur alla þá hlýju og öryggi sem hægt er að bjóða barni. Samvinna og samheldni einkenndi líf þess- arar stórfjölskyldu, heiðarleiki, auðmýkt, virðing og lítillæti. Það voru forréttindi að fá að alast upp innan um þetta gæðafólk. Elztu minningar mínar tengd- ar Stellu eru af kórlofti Siglu- fjarðarkirkju. Stella söng í kirkjukórnum allt fram á elliár, og tók mig oft með sér, þegar messað var, þegar ég var barn. Fékk ég þá að sitja til hliðar við kórinn, hlusta á sönginn og fylgj- ast með Kobba sem handsneri sveif sem knúði orgelið, íklæddur svörtum fötum og hvítri skyrtu með slaufu. Þessar stundir voru þrungnar andakt og hátíðleika, og enn þann dag í dag get ég farið með messusöng séra Bjarna Þor- steinssonar. Mér líður alltaf vel í kirkju, og þakka það Stellu frænku og þessum stundum á kórloftinu. Ég hef líka haldið því fram að hún hafi kennt mér að keyra bíl. Stella var afbragðsbílstjóri og keyrði gjarnan Willys-jeppa pabba síns, einkum eftir að hann varð sjóndapur og seinna blindur. Ég sótti í að fá að sitja í, veitti því nána athygli hvernig hún stjórn- aði farartækinu og tel mig hafa lært heilmikið af henni. Stella fór að eiga erfitt með að keyra bíl fyrir nokkrum árum og flutti þá í dvalarheimilið Skálar- hlíð. Fram að því hafði hún búið í húsi sínu sem á táknrænan hátt var staðsett miðja vegu milli Hlíðarhúsanna. Því var ekki dónalegt, þegar ég gisti í mínu gamla bernskuheimili, að geta skotizt yfir til Stellu í kaffi eða þegar hún bauð mér í mat. Minni hennar var með ólíkindum, og enginn hefur frætt mig eins mik- ið um fjölskyldu mína, húsin tvö og lífsbaráttu fólksins fyrr og síð- ar. Og nú er hún farin, blessunin. Mikið er ég þakklátur fyrir allar okkar samverustundir og fyrir að hafa átt hana að. Og mikið á ég eftir að sakna okkar samveru- stunda og bleksterka kaffisins. Minning hennar mun búa í hjarta mínu ásamt öllu yndislega fólkinu sem hefur átt þar fastan sess frá því ég var kornabarn – fólkinu í Hlíðarhúsum. Fjólu og Óskari, mökum þeirra og börnum færi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Jósep Ó. Blöndal. Anna Snorradóttir stóð lengi í fararbroddi fyrir Kvenfélagið Von, þar sem hún starfaði sem formaður, gjaldkeri og var í for- svari fyrir starf flestra nefnda fé- lagsins. Hún lagði heimili sitt undir stjórnarfundi okkar um langt árabil og bauð upp á veitingar af mikilli rausn, enda var hún mjög gestrisin og ánægjulegt að ræða og skipuleggja næstu skref í starfsemi félagsins svo sem nám- skeið o.fl. sem félagið stóð fyrir. Hún hafði umsjón með minn- ingarkortasölu kvenfélagsins ásamt fleirum í mörg ár, er það mjög tímafrekt og bindandi starf sem hún sinnti af mikilli fórnfýsi. Ég minnist ótal samverufunda okkar þar sem unnið var að bakstri laufabrauðs, undirbún- ingi að skemmtun eldra fólksins sem kvenfélagið hafði forustu um í mörg ár. Ég er þakklát fyrir allar okkar góðu stundir sem gott er að minnast og eru mér svo dýrmæt- ar. Ég veit að við kvenfélagskonur minnumst hennar nú með sökn- uði en þegar við lítum til baka, þá er okkur kært að sameinast um að þakka henni fyrir þessi störf sem hún sinnti af einstakri alúð. Yfir liðna ævidaga lítum við á kveðjustund. Minningarnar mörgu streyma mildar fram í hljóðri lund. Þú hið besta vildir veita, vaxta allt sem fagurt var, vinna, fórna, vaka, biðja, vinunum til blessunar. Liðnar stundir ljúft við gengum, leiðir hér þá skilja nú, frelsarans í faðmi blíða felum þig í bjartri trú. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ég þakka þér, Anna mín, allar góðar stundir og samfylgdina og sendi börnum þínum, barnabörn- um og öðrum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Auður Björnsdóttir. Í dag er kvödd í Siglufjarðar- kirkju mæt kona, Anna Snorra- dóttir. Hún var af þeirri kynslóð landsmanna sem þótti sjálfsagt að leggja sig fram um að vera virkur í samfélagi sínu og leggja mikið af mörkum í hinu unga, fullvalda ríki. Um áratugi lét hún mjög til sín taka í Kvenfélaginu Von við margskonar líknar- og menningarmál í þágu kvenna. Þar var hún formaður í 18 ár og enn lengur í stjórn og sýndi þar mikinn myndugleika og fórnfýsi. Kvenfélag sjúkrahússins og Systrafélag Siglufjarðarkirkju nutu einnig krafta hennar og í sönglífi staðarins var hún lengi mjög virk, bæði í kirkjukórnum og kór eldri borgara, Vorboða- kórnum. Að hálfu var Anna ættuð frá Siglunesi og hálfu frá Akureyri. Föðurafi hennar, Stefán Ólafs- son, og amma, Anna Sigurbjörg Jóhannesdóttir, fluttust bláfátæk til Siglufjarðar frá Akureyri árið 1907 með börn sín tvö, Sigríði Lovísu og Snorra. Þau höfðu ætlað sér að hefja nýtt líf í Kanada en fyrir vald ör- laganna misstu þau af Vestur- faraskipinu. Varð þá bjargarleið- in að róa á árabáti norður á Siglufjörð þar sem næga vinnu var að hafa í síldinni hjá Norð- mönnum. Innan fárra ára var fjölskyldan orðin vel bjargálna, hafði unnið sig frá skuldum og keypt sér lítið timburhús til bú- setu. Sem dæmi um velgengni þeirra fékk Snorri notið skóla- göngu og nam vélfræði bæði heima á Siglufirði og í Reykjavík – auk þess að sigla með norsku síldarskipi til Noregs til þessa sama náms. Snorri faðir Önnu varð síðar verksmiðjustjóri síldarverk- smiðjanna Gránu og Rauðku – af- skaplega vel liðinn og virtur borgari Siglufjarðar. Þessa merkilegu fjölskyldusögu sagði Anna okkur, starfsfólki Síldar- minjasafnsins, leiddi okkur um hið gamla og fallega æskuheimili sitt að Hlíðarhúsi og miðlaði til okkar skriflegum gögnum með ít- arlegum upplýsingum um líf og reynslu fólksins síns. Þetta leiddi til fyrstu bókaútgáfu Síldar- minjasafnsins er Saga úr síldar- firði leit dagsins ljós 2011 – bók sem hefur nýst vel í þágu fræðslu ungdómsins um síldarsöguna og verið safninu til sóma. Þar er fjöl- skyldusaga Önnu sögð sem dæmisaga um það að sá tími rann upp á Íslandi að fátækt fólk náði að vinna sig frá örbirgð til þokka- legrar velmegunar í eigin landi. Einstökum og örlátum tengslum Önnu við Síldarminja- safnið gat, að hennar mati, varla lokið á annan veg en þann en hún ánafnaði safninu Hlíðarhús. Hús að stofni frá 1898 og er í hægri viðgerð. Fyrir hönd Síldarminjasafns- ins er Önnu Snorradóttur þakkað fyrir einstaka velvild og vináttu. Örlygur Kristfinnsson og Anita Elefsen safnstjóri. Kæra vinkona, nú ertu komin í sumarlandið með Knúti þínum sem þú misstir alltof snemma. Sem þú talaðir um af svo mikilli virðingu og þú sagðir alltaf: „Hann Knútur minn.“ Okkar leið lá saman þegar ég gekk í kvenfélagið Von, þú varst þá formaður félagsins og ég stuttu seinna gerð að gjaldkera félagsins. Þú kenndir mér þá ungri og óreyndri hvernig ég ætti að bera mig að í fundarsköpum og leið- beindir mér á allan þann hátt sem þurfti og er ég þér mjög þakklát fyrir það. Og alveg frá þessum tíma hefur vinátta okkar aukist jafnt og þétt þó aldursmunurinn væri töluverður á okkur. Kven- félagið átti hug þinn allan alveg fram á síðustu stundu, alltaf þeg- ar ég kom í heimsókn til þín þá spjölluðum við um hvað væri á döfinni hjá kvenfélaginu. Mikið sem þú varst búin að vinna í þágu þess, fara ótal ferðir til hinna ýmsu staða og keyrðir alltaf sjálf, en ekki var algengt þá að konur væru með bílpróf, til að fara á fundi hjá Sambandi kvenfélaga, og svo öll vinnan og undirbúning- ur fyrir laufabrauðsgerð, basara, hinar ýmsu skemmtanir fyrir eldri borgara, og öll samúðar- kortin sem þú varst búin að sitja við og vélrita sem voru oft mjög mörg við hverja jarðarför, og aldrei taldir þú eftir þér að vinna í þágu kvenfélagsins. Það er virkilegur sjónasviptir að þér hér í bæjarfélaginu okkar og munum við kvenfélagskonur sakna þín. Hvíl í friði, kæra vinkona, og hafðu það gott í sumarlandinu með Knúti. Kæra Fjóla og Óskar, innileg- ar samúðarkveðjur til ykkar og fjölskyldna. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. (Þórunn Sigurðardóttir) Pálína Pálsdóttir. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HULDA JÓNSDÓTTIR frá Seljanesi, Austurbrún 39, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 24. maí, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 9. júní klukkan 13. Bragi Kristinsson Margrét Traustadóttir Magnús Traustason Vilborg Traustadóttir Jón Trausti Traustason tengdabörn og ömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hauksstöðum, Jökuldal, lést sunnudaginn 31. maí. Hún verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju mánudaginn 8. júní klukkan 11. Jarðsett verður í Hofteigskirkjugarði. Guðmundur Ólason Katrín Ásgeirsdóttir Ólöf Óladóttir Benedikt Sigurbergsson Heimir Ólason Snæbjörn Valur Ólason Aðalbjörg Gréta Helgadóttir Svanfríður Drífa Óladóttir Karl Jóhannsson Þórunn Hrund Óladóttir Gunnþór Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR, Dollý, frá Akranesi, lést 30. maí á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Hafnarfirði. Útför fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 10. júní klukkan 13. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Ölduhrauns á Hrafnistu fyrir góða umönnun og hlýhug. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Hrafnistu. Halldóra R. Þórðardóttir Björn Þórðarson Óskar Þórðarson Rósa Jónsdóttir Þórður Þórðarson Guðbjörg Þórðardóttir Oddbergur Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR E.R. LYNGDAL kennari, Aðallandi 1, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 3. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 12. júní klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni: https://www.facebook.com/groups/Sigurdurlyngdal/ Magnea Antonsdóttir Reynir Lyngdal Elma Lísa Gunnarsdóttir Anton Lyngdal Kristín Ýr Lyngdal Kjartan Traustason Una Margrét Lyngdal, Nína Magnea Lyngdal og Klara Lyngdal Ástkær sambýlismaður minn, faðir, sonur og bróðir, JÓHANN MAGNÚSSON, Litlakrika 1, Mosfellsbæ, lést sunnudaginn 31. maí. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 16. júní klukkan 15. Anna Lilja Marteinsdóttir Arnar Jóhannsson Alexandra Ivalu Einarsdóttir Adam Ágúst Jóhannsson Birnir Kári Jóhannsson Magnús Þorgeirsson Ellý Björnsdóttir Valdís Magnúsdóttir Jóhann Alfreð Kristinsson Þórdís Magnúsdóttir Elvar Magnússon Klara Óðinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.