Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 41

Morgunblaðið - 06.06.2020, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 41 Tilboð/útboð Ríkiskaup Allar útboðsauglýsingar eru birtar á utbodsvefur.is Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. Raðauglýsingar Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) Umsóknarfrestur: 21. júní 2020. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör taka mið af kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt samþykktum um stjórn sveitarfélagsins ræður sveitarstjórn sviðsstjóra. Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Húnaþing vestra auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins. Sviðsstjóri heyrir beint undir sveitarstjóra og er staðgengill hans. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í liði, ásamt því að vera sjálfstæður í starfi. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og hafa gott vald á íslenskri tungu. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg • Reynsla af rekstri og stjórnun • Leiðtogahæfileikar • Frumkvæði og skipulagshæfileikar • Reynsla af opinberri stjórnsýslu • Góð færni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku í ræðu og riti • Hreint sakavottorð • Yfirmaður fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins • Staðgengill sveitarstjóra • Umsýsla fundarboða, fundargerða og afgreiðsla erinda byggðarráðs og sveitarstjórnar • Daglegur rekstur skrifstofu sveitarfélagsins • Ábyrgð á uppfærslum á samþykktum, reglum og gjaldskrám sveitarfélagsins • Fjármálastjórnun og úrvinnsla fjárhagsupplýsinga • Ábyrgð á fjárhagsáætlanagerð og vinnu við ársreikninga • Umsjón með menningar- og atvinnumálum í samstarfi við sveitarstjóra Sveitarfélagið var stofnað árið 1998 við sameiningu hinna sjö gömlu hreppa Vestur-Húnavatnssýslu og árið 2012 stækkaði það með sameiningu þess við fyrrum Bæjarhrepp í Strandasýslu. Íbúar sveitarfélagsins eru 1.222 talsins. Þéttbýliskjarnar eru þrír í sveitarfélaginu. Hvammstangi, Laugarbakki og Borðeyri. Hvammstangi er stærstur þeirra með ríflega 600 íbúa og þar er að finna alla helstu þjónustu og atvinnustarfsemi héraðsins. Um helmingur íbúa sveitarfélagsins býr í dreifbýli og er landbúnaður ein helsta meginstoð atvinnuuppbyggingar sveitarfélagsins. Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt starf fer fram í leik-, grunn- og tónlistarskóla. Aðstaða til íþróttaiðkunar er mjög góð og er mikið framboð af íþrótta- og tómstundastarfi. Hjá sveitarfélaginu starfa 130 starfsmenn. Nánari upplýsingar má finna á: www.hunathing.is Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð: Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík Sími 563 9300 | www.landsnet.is ÚTBOÐ Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, byggingu og fullnaðarfrágang á byggingu tengivirkishúss og spennagryfju nálægt Suðurlandsvegi skammt austan Þjórsárbrúar. Opnun tilboða verður þriðjudaginn 7. júlí 2020 kl. 11.00 hjá Landsneti að Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar er finna á www.utbodsvefur.is Óskum eftir starfsmanni - ,  Sjá nánar á kopavogur.is Laus störf hjá Kópavogsbæ    

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.