Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 45

Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is Skrifstofuhæð til útleigu aðVallakór 4 í Kópavogi, rýmið er allt að 410 fm á 2. hæð. Húsnæðið verður innréttað í samráði við leigutaka. Einnig er hægt að skipta rýminu upp í tvo hluta. Lyftuhús og næg bílastæði. Mikill og góður þjónustukjarni er aðVallakór 4, þar erumeðal annars, matvöruverslun, apótek, fasteignafélag, hug- búnaðarfyrirtæki, sálfræðiþjónusta, förðunarskóli, hárgreiðslustofa og tannlæknastofa. Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir: HalldórMár Sverrisson, lögg. fasteignasali og leigumiðlari í síma 898 5599 eða í tölvupósti á halldor@atvinnueign.is Fasteignamiðlun VALLAKÓR 4 Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is TIL LEIGU SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Atvinnueignir eru okkar fag „ÉG HELDA AÐ ÉG HAFI NÁÐ ÖLLU EYRNAVAXINU.” „ÞAÐ VARST ÞÚ SEM SAGÐIST VERA SVO LIÐLEGUR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að rekast á draumadísina. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÍKORNAR ÞURFA EKKI AÐ FÁ BÓLUSETNINGAR OG VERA MEÐ HÁLSÓL EINS OG VIÐ GÆLUDÝR? ÞIÐ GÆTUÐ SAMT GREITT SKOTTIÐ Á YKKUR EINSTAKA SINNUM! VEGNA ÞESS AÐ VIÐ ERUM VILLT DÝR, GÓURINN HVORT ER VERRA? AÐ VERA GIFTUR KONU SEM FINNUR AÐ ÖLLU SEM MAÐUR GERIR? EÐA AÐ BÚA EINN MEÐ SINNI EIGIN NEIKVÆÐU SJÁLFSGAGNRÝNI? ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ SIGRA! KRÁIN SIGRAR. Reykjavík. Foreldrar Ísabellu: Bjarne Lövenholdt, f. 5.5. 1955, d. 30.1. 2017, húsasmíðameistari í Dan- mörku, og Guðrún Edda Andradótt- ir, f. 20.9. 1958, afgreiðslumaður. Þau skildu. Seinni maður Guðrúnar Eddu er Gunnlaugur Ingvarsson. f. 18.11. 1955, leiguflugstjóri, búsett í Reykja- vík. Börn Arnars og Ísabellu eru Theo- dór Fells Lövenholdt, f. 11.9. 2017, og Lúkas Fells Lövenholdt, f. 21.7. 2019. Systkini Arnars eru: Guðbjörg Guðmundsdóttir hálfsystir sam- mæðra, f. 12.10. 1991, nemi og iðju- þjálfi; Þórarinn Gunnarsson hálf- bróðir samfeðra, 14.1. 1993, lögreglumaður; Axel Guðmundsson hálfbróðir sammæðra, f. 16.10. 1994, lagerstarfsmaður hjá Byko; Sigríður Guðmundsdóttir uppeldissystir, f. 6.12. 1981, snyrtifræðingur; Ellert Rúnarsson stjúpbróðir, f. 3.6. 1975, ráðgjafi og kennari við HÍ. Foreldrar Arnars eru Margrét Hjörleifsdóttir, f. 14.2. 1961, hús- móðir í Reykjanesbæ, og Gunnar Þorsteinn Sumarliðason, f. 13.12. 1958, kokkur, búsettur í Reykjanes- bæ. Þau skildu. Margrét er gift Guð- mundi Axelssyni, 21.5. 1953, endur- skoðanda og fv. útgerðarmanni, og Gunnar er giftur Birnu Þórðar- dóttur, f. 11.4. 1956, starfsmanni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Arnar Fells Gunnarsson Kristín Sigurðardóttir húsfreyja á Borgarfelli, f. í Hvammi í Skaftártungu Gunnar Sæmundsson bóndi á Borgarfelli í Skaftártungu, f. á Borgarfelli Sumarliði Gunnarsson vélvirki í Keflavík Gríma Thoroddsen húsfreyja í Vík í Mýrdal og Keflavík Gunnar Þorsteinn Sumarliðason kokkur í Reykjanesbæ Ingibjörg Tómasdóttir húsfr. í Reykjavík, f. Rvík Bolli Skúlason Thoroddsen verkfr. í Rvík, f. á Ísafirði, foreldrar: Theodóra Thoroddsen skáldkona og Skúli Thoroddsen alþm. og sýslum. Nína Sæmundsson myndlistarmaður Margrét Sigurbjörg Kristjánsdóttir húsfreyja í Eyði-Sandvík og Rvík, f. í Hnífsdal Guðmundur Sæmundsson bóndi í Eyði-Sandvík í Flóa og húsasmíðameistari í Rvík, f. í Nikuláshúsum í Fljótshlíð Guðbjörg Guðmundsdóttir fv. skrifstofumaður, bús. í Reykjanesbæ Hjörleifur Magnússon vélvirki, bús. í Reykjanesbæ Gróa Hjörleifsdóttir húsfreyja í Eyjum og Keflavík, f. í Raufarhelli undir Eyjafjöllum Eyjólfur Magnús Ísleifsson skipstjóri í Vestmannaeyjum, síðar í Keflavík, f. í Eyjum Úr frændgarði Arnars Fells Gunnarssonar Margrét Hjörleifsdóttir húsmóðir í Reykjanesbæ Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Margur þekktur á því er. Allir vilja þessu ná. Hlaupagikkur frá því fer. Fær er sá, er þetta ver. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Marki brenndur margur er. Marki vilja flestir ná. Frá marki að hlaupa miður fer. Markið frækinn verja á. Sigmar Ingason leysir gátuna þannig: Manninn setur lífið mark sitt á. Marki settu allir vilja ná. Merkis bíða á markalínu má. Markmaðurinn knöttinn sló sér frá. Guðrún svarar: Er með því marki brennd að marki settu ná. Frá rásmarki sínu send. Á sumrin, ver mörkin þá. Þessi er lausn Helga R. Ein- arssonar: Hógvær gátu horfi á, í henni svarið leynist. Lausnarorðið öllum hjá að einu marki beinist. Þessa vikuna er lausnin svona hjá Hörpu á Hjarðarfelli: Á margan sauð er markið sett. Marki vilja allir ná. Á rásmarki er ræst í sprett. Reynir mark að verja sá. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Á marki þekkja megum hann. Marki vilja allir ná. Frá marki Hlaupa-Mangi rann. Markið Hannes verja kann. Þá er limra: Í markinu Vermundur valti varð bara alveg að gjalti og fýldur að vonum, er framhjá honum skoraði Hermundur halti. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Út um gluggann svartan sé, sitja lítinn fugl í tré, gátu létta læt í té, að launum fæ svo háð og spé: Þarna kemur saman sjót. Sýslur munu vera. Eru líka ástarmót. Á sér menn þau bera. Að lokum eftir Theódóru Thor- oddsen: Þegar landsins þorna Mið og þrjóta vinatryggðir á ég veröld utan við allar mannabyggðir. Halldór Blöndal (halldorblondal@simnet.is) Vísnahorn Af litlu má mikið marka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.