Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 47
BREIÐABLIK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er af
miklum knattspyrnuættum en hún
byrjaði að æfa fótbolta fjögurra ára
og er í dag í stóru hlutverki í liði
Breiðabliks í úrvalsdeild kvenna,
Pepsi Max-deildinni.
Þessi efnilega knattspyrnukona,
sem er uppalin hjá FH í Hafnarfirði
og er 18 ára gömul, æfði ballett og
fótbolta á sínum yngri árum en
ákvað að velja knattspyrnuna að lok-
um þar sem hún var talsvert efni-
legri á því sviði.
Breiðablik ætlar sér stóra hluti í
sumar en eftir að hafa unnið tvöfalt,
tímabilið 2018, endaði liðið í öðru
sæti úrvalsdeildarinnar síðasta sum-
ar og féll úr leik í sextán liða úrslit-
um bikarkeppninnar eftir 1:0-tap
gegn Fylki í Árbænum.
„Það er gríðarleg spenna fyrir
tímabilinu í Kópavogi,“ sagði Karól-
ína Lea í samtali við Morgunblaðið.
„Við erum búnar að vera að æfa eins
og brjálæðingar síðan samkomu-
bannið var sett á og við getum í raun
ekki beðið eftir því að sýna hvað við
virkilega getum í sumar.
Þjálfarateymið á eftir að taka
lokafund fyrir tímabilið þar sem við
munum fara yfir markmið sumars-
ins. Ég reikna með því að planið
verði að gera betur en síðasta sumar
og þá er lítið annað í stöðunni en að
enda í efsta sæti deildarinnar.
Það má alveg segja að tímabilið
2019 hafi verið ákveðin vonbrigði en
að sama skapi vorum við taplausar í
deildinni, sem er ekki slæmur árang-
ur. Okkur tókst hins vegar ekki að
vinna neinn titil og að því leytinu til
er klárlega hægt að tala um ákveðin
vonbrigði.“
Óvænt ánægja
Blikar hafa fengið til sín öfluga
leikmenn á borð við Rakel Hönnu-
dóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur
en þá hefur Kópavogsliðið einnig
þurft að horfa á eftir landsliðs-
bakverðinum Ástu Eiri Árnadóttur
og Fjollu Shölu sem eru báðar
barnshafandi.
„Við höfum bætt við okkur sterk-
um leikmönnum og erum með frá-
bæran hóp myndi ég segja. Það vita
allir hvað Sveindís og Rakel geta en
svo eru Hafrún Rakel [Halldórs-
dóttir] og Vigdís Edda [Friðriks-
dóttir) báðar komnar til okkar. Þær
líta báðar mjög vel út og hafa komið
mjög sterkar inn í klefanum, sem
var óvænt ánægja. Ég á því von á því
að þær muni báðar spila spila stórt
hlutverk í liðinu í sumar.
Að sama skapi erum við búnar að
missa bæði Ástu Eiri, Fjollu og svo
verður Selma Sól auðvitað ekki með
vegna meiðsla. Þær hafa allar verið
mjög stórir póstar í okkar liði og
eins mikilvægar í klefanum. Þær eru
líka duglegar að vera í kringum liðið
og það er aldrei langt í þær. Annars
reikna ég með því að það muni aðrir
leikmenn stíga upp í þeirra fjarveru
og vonandi tekst okkur að sýna okk-
ar rétta andlit í sumar.“
Styrktist í mótlæti
Karólína Lea spilaði sinn fyrsta
meistaraflokksleik með FH sumarið
2016, þá fjórtán ára gömul, en hún
lék með liðinu í tvö tímabil í efstu
deild, áður en hún skrifaði undir
samning í Kópavoginum árið 2017.
Þrátt fyrir að verða ekki nítján ára
fyrr en síðsumars hefur hún þegar
spilað 63 leiki í efstu deild og lék
sinn fyrsta A-landsleik á síðasta ári.
„Ég er búin að bæta mig gríðar-
lega mikið á þessum sex árum sem
leikmaður. Að sama skapi tel ég að
það myndu nánast allir bæta sig í
þeirri æfingaaðstöðu sem Breiðablik
hefur upp á að bjóða. Tími minn hjá
FH var algjörlega frábær og þar
fékk ég mitt fótboltauppeldi ef svo
má segja. Þeir gáfu mér tækifæri í
meistaraflokki og fyrir það verð ég
ævinlega þakklát.
Stökkið úr FH í Breiðablik var
ekki beint stærra en ég átti von á en
það sem var kannski erfiðast í þessu
var að vera lítill fiskur í stórri tjörn
eftir að hafa verið stór fiskur í lítilli
tjörn. Það reyndi því aðeins á and-
legu hliðina að vera ekki endilega í
aðalhlutverki en maður lærir mest í
mótlæti og eftir á að hyggja styrkti
það mig gríðarlega að vera ekki að
byrja alla leiki með liðinu sumarið
2018.
Ég er á því að mér hafi ekki tekist
að sýna hvað raunverulega býr í mér
hjá Breiðabliki og mér finnt ég eiga
nóg inni. Markmiðið sumarsins er
því að bæta sig með hverjum leikn-
um sem líður og hjálpa liðinu að ná
sínum markmiðum. Svo hef ég líka
sett stefnuna á að gera mig gildandi
í A-landsliðshópnum.“
Mikil fótboltafjölskylda
Fótboltinn er Karólínu Leu í blóð
borinn en Gylfi Þór Sigurðsson,
landsliðsmaður Íslands og leik-
maður Everton á Englandi, er ná-
skyldur henni og þá er Dóra María
Lárusdóttir, sjöfaldur Íslandsmeist-
ari með Val, einnig í fjölskyldunni.
Faðir Karólínu er svo Vilhjálmur
Kári Haraldsson, þjálfari Augna-
bliks í 1. deild kvenna, sem sjálfur
lék með Breiðabliki á síðasta áratug
20. aldarinnar.
„Pabbi minn er duglegur að láta
mig vita þegar ég er ekki að gera
réttu hlutina en hann á í raun allan
heiðurinn af mínu fótboltauppeldi,
sem og fjölskyldan mín. Það er mikil
fótboltahefð í fjölskyldunni og smá
pressa sem fylgir því en þau hafa
alla tíð haft gríðarlega trú á mér.
Þau eru mín stoð og stytta og á þau
get ég alltaf treyst.
Ég hef alltaf litið upp til Gylfa, al-
veg frá því ég var lítil stelpa, og eins
til Dóru Maríu. Að sama skapi er
það helst ég sjálf sem er að setja
auka pressu á mig að standa mig vel
en mér finnst ég líka þurfa að gera
það miðað við fótboltahefðina í
minni fjölskyldu. Ég geri ákveðnar
kröfur til sjálfrar mín og ef ég stend
mig ekki verð ég oft á tíðum svekkt
út í sjálfa mig.“
Blómstrað með U19
Karólína Lea hefur verið fyrirliði
U19 ára landsliðs Íslands í knatt-
spyrnu og á samtals 45 leiki að baki
með yngri landsliðum Íslands. Hún
hefur sýnt það á undanförnum ár-
um að hún er afar fjölhæf og getur
leyst margar stöður á vellinum.
„Markmiðið er að sjálfsögðu að
komast út í atvinnumennsku á ein-
hverjum tímapunkti og það heillar
mig mjög mikið. Eins og staðan er í
dag er ég fyrst og fremst að hugsa
um Breiðablik en ef það kemur eitt-
hvert gott og spennandi tilboð í
framtíðinni myndi maður skoða það
vel.
Mér finnst ég hafa blómstrað vel
í þessu leiðtogahlutverki innan U19
ára landsliðsins og vonandi er það
eitthvað sem ég get byggt ofan á.
Maður er með sín markmið en eins
og þetta horfir við mér verð ég bara
tilbúin þegar kallið kemur.
Ég hef oft verið spurð hvaða leik-
stöðu ég spila og ég á oft erfitt með
að svara því. Ég vil titla mig sókn-
armann en um daginn spilaði ég
sem djúpur miðjumaður þannig að
það er erfitt að segja. Uppáhalds-
staðan mín á vellinum er samt sem
áður að spila í tíunni,“ bætti Karól-
ína Lea við í samtali við Morgun-
blaðið.
Fyrirmyndirnar eru til
staðar í fjölskyldunni
Frænka Gylfa Þórs og Dóru Maríu er í stóru hlutverki í Breiðabliksliðinu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Efnileg Karólína Lea Vilhjálmsdóttir á fullri ferð í leik gegn Þór/KA síðasta sumar. Hún byrjar Íslandsmótið á leik
gegn uppeldisfélaginu sínu, FH, en Blikar mæta Hafnarfjarðarliðinu á Kópavogsvelli laugardaginn 13. júní.
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Þetta verður á margan hátt
einkennilegt sumar. „Fordæma-
laust“ myndu einhverjir segja. Í
gær var gefin út leikjadagskráin í
enska fótboltanum og nú mun
hann í fyrsta skipti skarast við
þann íslenska um hásumarið.
Við þekkjum vissulega slíkt
frá því á vorin og haustin en það
er eitthvað súrrealískt við að sjá
að á dagskrá fimmtudagskvölds-
ins 2. júlí sé viðureign Manchest-
er City og Liverpool þar sem úr-
slitin um enska meistaratitilinn
gætu mögulega ráðist. Með enga
áhorfendur í stúkunni.
Forráðamenn íslensku félag-
anna fá um leið að glíma í fyrsta
skipti við þann hausverk að geta
ekki komið öllum áhorfendum
inn á vellina sem það vilja, alla-
vega ekki í fyrstu umferðum Ís-
landsmótsins.
Áhugafólk um fótbolta mun
hafa mætt vel á æfingaleiki lið-
anna að undanförnu, enda hefur
marga þyrst í að sjá liðin sín
spila.
Ég var austur í Neskaupstað
um síðustu helgi og sá þá að það
var nokkuð fjölmennt í brekkunni
við fótboltavöllinn þegar Fjarða-
byggð og Einherji mættust þar í
æfingaleik.
Á Englandi snýst umræðan
aðallega um það á hvaða velli
Liverpool verði enskur meistari
og hvernig eigi að sjá til þess að
stuðningsfólk félagsins fagni
ekki of óhóflega með tilliti til
þess að kórónuveiran er enn
mjög virk í landinu.
Þótt veiran sé lítt mælanleg
hér á Íslandi um þessar mundir
er aldrei of varlega farið og eins
gott að farið sé eftir öllum
reglum. Í meistarakeppni kvenna
og karla í dag og annað kvöld fá
Valur og KR góða æfingu í að
framkvæma heimaleiki sam-
kvæmt öllum kúnstarinnar kór-
ónureglum.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Mögulegt er að Albert Guðmunds-
son, landsliðsmaður í knattspyrnu,
leiki á Íslandi í sumar, allavega
fyrri hluta tímabilsins, en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa félög í úrvalsdeild karla sýnt
áhuga á að fá hann lánaðan frá AZ
Alkmaar í Hollandi. Breiðablik og
KR hafa þar verið nefnd til sög-
unnar. Keppni í Hollandi var aflýst
í mars um það leyti sem Albert
hafði jafnað sig af slæmum
meiðslum sem hann varð fyrir í lok
september en hann hefur nær ekk-
ert spilað frá þeim tíma.
Áhugi á að fá
Albert lánaðan
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Holland Albert Guðmundsson er
leikmaður með AZ Alkmaar.
Handknattleikskonan Karólína
Bæhrenz hefur skrifað undir
tveggja ára samning við deildar- og
bikarmeistara Fram. Karólína er
32 ára gömul og spilaði síðast með
ÍBV á næstsíðustu leiktíð. Áður lék
hún með Boden í sænsku B-deild-
inni og þar áður vann hún titla með
bæði Gróttu og Val. Auk þess hefur
hún leikið 21 A-landsleik. Hún er
annar leikmaðurinn sem Fram sem-
ur við á stuttum tíma en áður til-
kynnti félagið að leikstjórnandinn
Guðrún Erla Bjarnadóttir hefði
samið um að spila í Safamýrinni.
Karólína tekur
fram skóna á ný
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Safamýri Karólína Bæhrenz
kemur til liðs við Framara.
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir er í
forystu eftir
fyrsta hringinn á
Golfbúðarmótinu
í golfi sem hófst á
Hólmsvelli í
Leiru í gær. Um
er að ræða annað
mótið á mótaröð
Golfsambands Ís-
lands á árinu
2020 en Ólafía sjálf vann fyrsta mót-
ið á Akranesi í síðasta mánuði og
stefnir því á annan sigurinn í röð um
helgina. Nær allir sterkustu kylf-
ingar landsins eru á meðal þátttak-
enda, enda ekki leikið víða erlendis
vegna kórónuveirunnar.
Ólafía lék fyrsta hringinn á 74
höggum í gær, tveimur yfir pari, og
er einu höggi á undan Guðrúnu Brá
Björgvinsdóttur.
Í karlaflokki er Aron Snær Júlíus-
son óvænt á toppnum eftir að hafa
leikið fyrsta hring á 68 höggum eða
fjórum undir pari. Kristófer Karl
Karlsson er annar en hann lék
hringinn á tveimur höggum undir.
Því næst koma sjö kylfingar sem all-
ir eru á pari en þeirra á meðal eru
Haraldur Franklín Magnús, Andri
Þór Björnsson og Íslandsmeistarinn
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Ólafía stefnir
á annan sig-
urinn í röð
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir