Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
Fimm sýningar verða opnaðar sam-
tímis í Listasafninu á Akureyri í dag
klukkan 15, einkasýningar lista-
mannanna Brynju Baldursdóttur,
Heimis Björgúlfssonar, Jónu Hlífar
Halldórsdóttur og Snorra Ásmunds-
sonar, auk samsýningarinnar Meira
en þúsund orð.
Sýning Brynju Baldursdóttur
nefnist Sjálfsmynd. Um hana segir
Brynja: „Listsköpun mín sprettur
upp af viðleitni minni til að mynd-
gera innra landslag mannsins, hið
sammannlega og einstaka sem hluta
af stærri heild. Sjálfsmyndaserían
er summa þriggja þátta; líkama,
hugar og sálar.“
Brynja (f. 1964) stundaði nám við
MHÍ 1982-1986, mastersnám við Ro-
yal College of Art í Lundúnum 1987-
1989 og Ph.D.-nám við sama skóla
1989-1993. Brynja hefur sýnt víða
hér heima og erlendis. Hennar
helstu listform eru bóklist og lág-
myndir.
Ljós- og klippimyndasería
Sýning Heimis Björgúlfssonar,
Zzyzx, er byggð á sögu og umhverfi
Zzyzx-svæðisins í Mojave-
eyðimörkinni í Kaliforníu. Hryggj-
arstykkið er ný ljós- og klippi-
myndasería, en einnig eru til sýnis
önnur verk sem tengjast viðfangs-
efninu beint eða óbeint.
Heimir er fæddur í Reykjavík
1975. Hann lauk BA-gráðu í mynd-
list í Hollandi 2001 og meistaragráðu
í Amsterdam 2003. Heimir hefur
haldið einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum víða um Evrópu og
Bandaríkin. Hann var tilnefndur til
De Volkskrant Beeldende Kunst
Prijs í Hollandi 2006 og einnig til
Carnegie-verðlaunanna í Svíþjóð
2011. Heimir hefur undanfarin ár
búið og starfað í Los Angeles.
Textaverk og tilraunir
Meira en þúsund orð er heiti sýn-
ingar Jónu Hlífar Halldórsdóttur.
„Drifkrafturinn á bak við sýn-
ingar mínar er tilfinning fyrir við-
fangsefnunum hverju sinni og orkan
sem tengist þeim,“ segir hún. „Ein-
stök verk hafa snúist um hvernig
raunveruleikinn birtist í myndlist
eða hvernig samfélagið bregst við
myndlistinni.
Textaverk og tilraunir með efni
hafa verið undirstaða verkanna und-
anfarin ár. Texti sem áferð, sem
framsetning hugsana, sem hug-
myndavaki við mótun samfélags. Í
nýlegum verkum hef ég verið að fást
við kjarna, tíma og ímynd.“
Jóna Hlíf (f. 1978) lauk MFA-
gráðu frá GSA í Skotlandi 2007. Hún
er fyrrverandi formaður SÍM og nú
forstöðumaður Gerðarsafns.
Á sýningunni Hverfandi landslag
taka íslenskir og finnskir listamenn
höndum saman og sýna þæfð verk úr
ull. Samvinnan hófst 2017 með sýn-
ingunni Northern Landscape í
Jämsa, Finnlandi, sem haldin var í
tilefni af 100 ára sjálfstæði landsins.
Viðfangsefnið er áhrif og afleiðingar
loftslagsbreytinga.
Málverk „óþekkta barnsins“
Snorri Ásmundsson kallar sýn-
ingu sína Franskar á milli. Í tilkynn-
ingu segir að Snorri hafi stundum
verið kallaður „óþekka barnið“ í ís-
lenskri myndlist. Hann vinnur
gjarnan með samfélagsleg „tabú“
eins og pólitík og trúarbrögð og hafa
gjörningar hans löngum hreyft við
samfélaginu.
„Málverkið hefur skipað stóran
sess í minni sköpun og fyrsta mynd-
listarsýningin sem ég hélt 1996 var
málverkasýning. Þó ég sé kunnastur
fyrir gjörningana mína er það mál-
verkið sem er ódauðlegt og brauð-
fæðir mig. Það er æðisleg tilfinning
að vera besti málari á Íslandi og í
hópi fimm bestu málara í heiminum í
dag,“ segir hann.
Á morgun, sunnudag, verður lista-
mannaspjall með Jónu Hlíf Hall-
dórsdóttur kl. 14 og Önnu Gunn-
arsdóttur sýningarstjóra kl. 15.
Sjálfsmyndir, Zzyzx-svæði
og Meira en þúsund orð
Fimm ólíkar sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri
Myndverk Eitt verka Heimis Björgúlfssonar á sýningunni Zzyzx, sem er
byggð á sögu og umhverfi svæðis í eyðimörk einni í Kaliforníu.
Þetta er „Þriðja veran“,“ segir
Steingrímur Eyfjörð og kinkar kolli
að stórri fígúrunni sem þeir Helgi
Þórsson stilla sér upp við. „Og þá
eru þetta…?“ segir hann svo hugsi
og lyftir skúlptúr sem hann heldur
á.
„… bara barnið hennar,“ botnar
Helgi sem heldur á öðrum eins.
Þótt Steingrímur og Helgi hafi
þurft að kynna „Þriðju veruna“ og
börnin hennar fyrir gestinum er
óþarfi að kynna þá í löngu máli, þeir
hafa lengi verið meðal þekktustu
myndlistarmanna okkar, þó hvor af
sinni kynslóðinni, þekktir fyrir æv-
intýraleg verk þar sem oft er stutt í
leikinn.
Þeir opna í dag, laugardag, klukk-
an 16 sýningu í Gallery Porti á
Laugavegi 23b sem þeir kalla Valsað
milli vídda. Og verkin hafa þeir unn-
ið í sameiningu, skúlptúrana og tugi
verka á pappír. Textar eru hluti af
þeim öllum, sprottnir úr deiluriti eft-
ir Þorgeir Þorgeirson.
Steingrímur segir Helga hafa
hringt í sig í fyrra og spurt hvort
hann vildi gera með sér verk. Upp-
hafið var ekki flóknara en það. „Við
settumst fyrst niður og gerðum lista
yfir hvað við vildum gera. En þegar
við svo fórum af stað gerðum við
eitthvað allt annað,“ segir hann.
„Svo kom þetta Covid og hafði
áhrif á pælingarnar, sem voru til að
byrja með mjög dramatískar,“ segir
Helgi. „En svo fannst okkur það ekki
passa.
Við ætluðum fyrst að gera sýn-
ingu um konu, Ófelíu, sem væri dáin
og kærastan hennar reyndi að ná
sambandi við hana með drauga-
útvarpi. Það eina sem er eftir af
þeirri hugmynd er útvarpið, sem er
einn skúlptúranna.“
„En teikningunum hentum við svo
bara á milli okkar,“ segir Stein-
grímur.
„Enda var ég lengi í sóttkví; fór til
útlanda og lenti því í henni þegar ég
kom til baka,“ bætir Helgi við. „En
þá var góður tími til að vinna í teikn-
ingunum.“
Kollegi tvímenninganna, Egill Sæ-
björnsson, fylgir sýningunni úr hlaði
með texta þar sem segir: „Þegar
Helgi og Steingrímur vinna saman
verður til þriðja aflið, einhvers kon-
ar borðsalt, eða þriðja veran, lista-
maður sem er hvorki Steingrímur
né Helgi.“ efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Samstarf Steingrímur Eyfjörð og Helgi Þórsson með Þriðju verunni í
Gallery Porti þar sem þeir sýna verkin sem þeir unnu að saman.
Höfundurinn hvorki
Steingrímur né Helgi
Sköpuðu myndverkin í samstarfi
Myndlistarsýningin COM’ON verð-
ur opnuð kl. 15 í SÍM-salnum og á
efri hæð SÍM-hússins í Hafnar-
stræti 16. Sýningin er á Listahátíð í
Reykjavík og er einn hluti verkefn-
isns „Common Ground“.
Lista- og fræðafólk, heimamenn
og innflytjendur eiga stefnumót
þar sem kafað er í hugmyndina um
sameiginlega jörð og spurninguna
Hvar er heima? Meðal þátttakenda
eru Íslendingar sem hér fæddust og
ólust upp ásamt nýjum Íslendingum
frá Litháen og Póllandi. Saman er
unnið þvert á landamæri og menn-
ingarheima og nýtt upplifun og
þekking hvers og eins til að skapa
fjölbreytt verk og innsetningar á
sýningu sem bregður upp ólíkum
snertiflötum og viðhorfum. Sýning-
arstjóri er Pari Stave og sýnendur
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Anna
Sigríður Sigþórsdóttir, Arvydas Zi,
Eygló Harðardóttir, Gudrita Lape,
Jóhannes Atli Hinriksson, Kai
Dobrowolska, Kristín Reynisdóttir,
Lukas Bury, Pétur Magnússon,
Ragnhildur Lára Weisshappel,
Seweryn Chwała og Wiola Ujaz-
dowska. Fræðimenn sem koma að
verkinu eru Anja Wojtynska mann-
fræðingur, Justas Kazys vistfræð-
ingur og Sigríður Þorgeirsdóttir
heimspekingur.
Fjölbreytileiki Unnið þvert á landamæri og menningarheima.
Á COM’ON er
spurt hvar sé heima
Viðamikið verkefni í SÍM-húsinu