Morgunblaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 10
Fyrri ummæli
» „Veðurfar hefur verið mikið
vandamál á þessu svæði. Það
er mikið grjót sem gengur
þarna á land á hverju ári og svo
hefur gras verið að fjúka,“
sagði borgarfulltrúi Pírata.
» „Hvernig borgin getur tekið
allan rétt af Seltirningum og
þrengt í sífellu að ferðavenjum
þeirra, ég bara skil það ekki,“
sagði borgarfulltrúi Miðflokks-
ins og bætti við:
„ Verður það sem sagt stefnan
núna þegar borgin þarf að
spara viðhald og slátt að
sturta niður malarbingjum?“
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég hef áhyggjur af því að þessar
hrúgur fjúki í vetur, en ítrekað gerir
þarna vestanátt og þá geta sjór og
steinar gengið langt á land og inn á
göngustíga,“ segir Elín Björk Jónas-
dóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til grjót-
hrúgna sem búið er að sturta á gras-
blett við Eiðsgranda í Reykjavík, eitt
stærsta græna svæði Vesturbæjar.
Hrúgurnar hafa vakið talsverða at-
hygli að undanförnu og verið mikið
til umræðu meðal íbúa á svæðinu,
sem segja litla prýði vera að mölinni.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins er einn
þeirra sem óskað hafa eftir skýring-
um á hrúgunum og tilgangi þeirra,
en borgarfulltrúi Pírata hefur sagt
þær minnka viðhaldsþörf og gras-
slátt á vegum borgarinnar.
Elín Björk bendir á að veður geti á
veturna oft orðið hressilegt við Eiðs-
granda, um og yfir 20 m/s, en við slík
skilyrði getur grjót farið af stað.
„Gömlu 9 vindstigunum, sem eru
20,8-24,4 m/s, er lýst þannig að þá
geta orðið lítils háttar skemmdir á
mannvirkjum, varla er þá hægt að
ráða sér á bersvæði og glórulaus byl-
ur ef snjóar. Ég geri nú ráð fyrir að
þegar við erum í þeirri stöðu að
skemmdir verða á mannvirkjum geti
möl farið af stað,“ segir hún og bend-
ir á að við 10 vindstig rifni tré upp
með rótum með hættu á talsverðum
skemmdum á mannvirkjum.
„Í vetur fóru hviður reglulega yfir
20-25 m/s á þessu svæði. Þá er ekki
hægt að vera alveg viss um að grjót
fari ekki af stað,“ segir hún og bend-
ir á að brýnt sé að hafa í huga mögu-
leg áhrif veðurs á framkvæmdir,
einkum þegar þær eru í miklu návígi
við vinsæla göngu- og hjólastíga.
Borgin hlustar ekki á mótmæli
Greint hefur verið frá því að
Reykjavíkurborg vilji koma fyrir alls
sex ljósastýrðum gönguþverunum
yfir Eiðsgranda, sem skilgreindur er
sem þjóðvegur í byggð og er önnur
helsta akbrautin út á Seltjarnarnes.
Magnús Örn Guðmundsson, for-
seti bæjarstjórnar Seltjarnarness,
segist fyrst hafa heyrt af þessum
áformum Reykjavíkurborgar í
Morgunblaðinu og gagnrýnir borg-
ina fyrir fullkomið samráðsleysi.
„Það er ótrúlegt að hlusta á kjörna
fulltrúa í Reykjavík og áherslur
þeirra í samgöngumálum. Þetta
hlýtur að vera einn stór misskilning-
ur hjá þessu fólki. Við munum ekki
láta þetta ganga yfir okkur,“ segir
hann og bendir á að Seltjarnarnes
hafi þegar mótmælt þrengingum á
Geirsgötu án viðbragða frá borginni.
„Við höfum ekki heyrt neitt frá
Reykjavíkurborg varðandi Geirs-
götu og erum mjög ósátt. Nú þurfum
við enn að leita eftir skýringum en ég
er ekki bjartsýnn á að fá þær.“
Gætu farið á hreyfingu í hviðum
Veðurfræðingur hefur áhyggjur af hugsanlegu grjótfoki frá hrúgunum við Eiðsgranda í Reykjavík
Seltirningar ósáttir við boðaðar gönguþveranir og gagnrýna borgina fyrir endurtekið samráðsleysi
Varasamt Bent hefur verið á að grjóthrúgurnar gætu verið hættulegar ökumönnum, gangandi og hjólandi fólki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
Keppendur í Morgunblaðshringnum
mæta keppnisþyrstari til leiks á
mánudaginn en áður eftir mikla
þurrð í mótum vegna kórónu-
veirunnar.
Um er að ræða fyrsta bikarmót
sumarsins í fjallahjólreiðum en
mótið fer venjulega fram í lok apríl.
„Keppnin er aðeins seinna í ár út af
svolitlu sem skeði,“ segir Bjarki
Bjarnason, þjálfari hjá Hjólreiða-
félagi Reykjavíkur sem lagði braut-
ina sem hjóluð verður, kíminn.
Skráningu lýkur á miðnætti á
morgun en keppnin hefst klukkan
sex síðdegis á mánudag. Um er að
ræða sjö kílómetra hring á svæðinu
við Rauðavatn, Hádegishæð og
Paradísardal rétt eins og í fyrra.
Keppendur hjóla einn til fjóra
hringi eftir því í hvaða keppn-
isflokki þeir eru. „Það sem er erfið-
ast við brautina er að þú færð í
raun aldrei hvíld í henni. Hún er
ekki tæknilega krefjandi en menn
eru í botni allan tímann. Þú þarft að
halda svolítið vel á spöðunum því
annars verður þú bara eftir,“ segir
Bjarki.
Á fimmta tug keppenda eru
skráðir til leiks en reynsla móts-
haldara er sú að flestir skrái sig á
síðasta degi fyrir mótið.
Spurður um líklega sigurvegara
nefnir Bjarki í karlaflokki Ingvar
Ómarsson og Hafstein Ægi Geirs-
son. Hvað kvennaflokk varðar
nefndir Bjarki Maríu Ögn Guð-
mundsdóttur og Karen Axelsdóttur,
ríkjandi bikarmeistara. „Kristín
Edda Sveinsdóttir gæti líka veitt
þeim mjög mikla samkeppni,“ segir
Bjarki. Spurður hvaða áhrif það
hafi á hjólreiðafólk að tímabilinu
hafi seinkað jafn mikið og raun ber
vitni segir Bjarki: „Ég held að flest-
ir séu að koma sterkari og keppnis-
þyrstari inn en þeir hefðu gert
annars.“ ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjól Keppnin byrjar og endar við skrifstofur Morgunblaðsins og mbl.is. Að henni lokinni er boðið upp á veitingar.
Keppnisþyrstir í
kjölfar kórónuveiru
Keppendur koma sterkari í Morgunblaðshringinn en ella
Þjálfari Bjarki er sjálfur skráður til
keppni og hlakkar mikið til hennar.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum
nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: White frost/ svartur að innan.
2020 GMC Denali , magnaðar
breytingar t.d. 10 gíra skipting,
auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum
ásamt mörgu fleirra.
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: Svartur/ Svartur að innan.
2020 GMC Denali , magnaðar
breytingar t.d. 10 gíra skipting,
auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum
ásamt mörgu fleirra.
VERÐ
12.990.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
VERÐ
12.990.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“