Morgunblaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
AFP
Hulin Styttan af Churchill hefur verið hulin vegna fyrirhugaðra mótmæla.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, gagnrýndi í gær Sadiq
Khan, borgarstjóra Lundúna, fyrir
að hylja styttuna af Winston Churc-
hill sem er við breska þinghúsið.
Sagði Johnson að mótmæli gegn
kynþáttahatri í Bretlandi hefðu ver-
ið tekin yfir af öfgamönnum og
hvatti fólk til þess að sitja heima um
helgina frekar en að taka þátt í mót-
mælum, meðal annars vegna aukinn-
ar hættu á kórónuveirusmiti.
Khan hvatti fólk einnig til þess að
vera heima, þar sem vitað væri að
hópar hægri-öfgamanna ætluðu sér
að halda gagnmótmæli, sem aftur
myndi auka hættu á ryskingum.
Boðað hefur verið til mótmæla vítt
og breitt um Bretland um helgina
undir yfirskriftinni „Topple the rac-
ists“, eða „fellið rasistana“, og hefur
það verið skilið sem ákall um að
styttur af fólki, sem talið er hafa haft
rasískar skoðanir eða komið að sölu
þræla á fyrri tíð, verði rifnar niður
líkt og gert var við styttuna af Ed-
ward Colston, kaupmanni á 17. öld, í
Bristol um síðustu helgi.
Borgaryfirvöld í Lundúnum
ákváðu að hylja einnig nokkur önnur
minnismerki, þar á meðal minnis-
merkið um þá sem féllu í fyrri
heimsstyrjöld, en reynt var að
kveikja í breska fánanum sem þar
blaktir jafnan við hún um síðustu
helgi.
Getum ekki breytt fortíðinni
Johnson sagði að hann skildi
hvers vegna fólk vildi mótmæla mis-
rétti, en sagði að ekki væri hægt að
breyta eða ritskoða fortíðina. „Við
getum ekki látið sem sagan sé öðru-
vísi,“ sagði Johnson og benti á að
stytturnar hefðu verið reistar af fólki
fyrri tíðar, sem hefði haft aðra sýn á
hvað væri rétt og hvað rangt. „En
þessar styttur kenna okkur um for-
tíðina með öllum sínum göllum. Að
rífa þær niður væri að ljúga um sögu
okkar og veikja um leið menntun
komandi kynslóða,“ sagði Johnson.
Hann sagði það jafnframt vera
bæði „fáránlegt og skammarlegt“ að
stytta Churchills væri nú skotspónn
mótmælenda, þar sem hann hefði
barist gegn bæði fasisma og einræði.
„Já, hann lét stundum í ljós skoðanir
sem voru og eru óásættanleg fyrir
okkur í dag, en hann var hetja og
hann á fyllilega skilið minnismerki
sitt,“ sagði Johnson, sem ritaði ævi-
sögu Churchills árið 2014.
Hótel Tindastóll og Penny Lane
Mótmælin í Bretlandi og viðbrögð
við þeim hafa ekki bara beinst að
styttum og minnismerkjum. Í Liver-
pool þurfti að hreinsa götuskilti fyrir
götuna Penny Lane, sem Bítlarnir
gerðu fræga með lagi sínu árið 1967,
en gatan heitir í höfuðið á James
Penny, sem var þrælasali á 18. öld.
Þá hafa sumar sjónvarpsstöðvar
og streymisveitur brugðist við ákalli
mótmælenda og látið fjarlægja efni
sem talið er móðgandi. Á meðal
þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á
slíku er þátturinn Hótel Tindastóll,
eða Fawlty Towers, þar sem gaman-
leikarinn frægi John Cleese lék Basil
Fawlty, úrillan hóteleiganda. Þáttur-
inn sem um ræðir snýst um baráttu
Fawltys við að nefna ekki síðari
heimsstyrjöld og lyktir hennar við
hóp Þjóðverja, en eitt atriði í þætt-
inum þótti ekki viðeigandi.
Cleese varði í gær umræddan þátt
og sagði að atriðið sem hefði verið
talið óásættanlegt snerist ekki um að
auglýsa skoðanir persónunnar sem
um ræddi, heldur til að gera grín að
þeim. „Ef fólk er of heimskt til að sjá
það, hvað er hægt að segja?“ Sakaði
Cleese streymisveituna UKTV, sem
er í eigu breska ríkisútvarpsins, um
að reyna að friðþægja öfgar. Cleese
tók þó fram að hann styddi það
markmið núverandi mótmæla að
draga úr misrétti í samfélaginu.
Segir „öfgamenn“ hafa tekið yfir
Boris Johnson gagnrýnir harðlega ákvörðun Khans um að hylja styttuna af Winston Churchill
Lífið á Ítalíu er hægt og bítandi að komast aftur í
samt lag, en landið varð illa úti í kórónuveiru-
faraldrinum, eins og alkunna er.
gondólana sem sigla um síkin á meðan báts-
mennirnir syngja í rauðröndóttum treyjum um
ástina, lífið og tilveruna.
Létt var á sóttvarnaraðgerðum á Ítalíu í gær,
og gátu því grímuklæddir ferðamenn notið lífs-
ins lystisemda í Feneyjum, sem fræg er fyrir
AFP
Fara grímuklædd á gondólum um síki Feneyja
Þúsundir íbúa Hong Kong komu
saman í gær og sungu mótmæla-
söngva í tilefni af því að eitt ár var
þá liðið frá upphafi átaka andófs-
manna og lögreglunnar vegna and-
stöðu við umdeilt framsals-
frumvarp.
Lögregla borgarinnar lýsti mót-
mælin ólögleg og handtók 35 mót-
mælendur á grundvelli samkomu-
banns vegna kórónuveirunnar.
Bresk stjórnvöld lýstu í fyrradag
áhyggjum sínum vegna fyrirhug-
aðra laga um þjóðaröryggi, en
gagnrýnendur óttast að það muni í
raun binda enda á þau réttindi íbúa
Hong Kong, sem þeim eiga að vera
tryggð fram til ársins 2047.
Kínverska utanríkisráðuneytið
sakaði Breta í gær um að sá fræjum
ótta að ástæðulausu, og að þeir
væru að skipta sér af innanríkis-
málum Hong Kong.
Hong Kong Fjöldi fólks fór út á götur
borgarinnar og söng mótmælasöngva.
Ár liðið frá upphafi
framsalsátaka
AFP
HONG KONG
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
4ja rétta draumaveisla:
• Nauta carpaccio
• Tígrisrækjur Nobashi
• Hægeldað Andarlæri
• Jarðarber & Yuzu
Kynningarverð í júní 6.990 kr.
Fullt verð: 9.990 kr.
DRAUMAVEISLA