Morgunblaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
Varla var hægt að fá betri leik
til að hefja Íslandsmót karla í
fótbolta en viðureign Vals og KR
á Hlíðarenda í kvöld.
Ríkjandi Íslandsmeistarar
verða í heimsókn hjá liðinu sem
flestir spá meistaratitlinum í ár.
Svo ekki sé nú minnst á aldar-
langan ríg og baráttu á milli
Reykjavíkurfélaganna tveggja
þar sem margt hefur gengið á í
viðureignum þeirra.
Ekki þarf að leita nema tvö ár
aftur í tímann til að finna mikla
dramatík. Þá mættust Valur og
KR á sama stað í fyrstu umferð-
inni og Tobias Thomsen skoraði
sigurmark Vals í uppbótartíma,
strax eftir að Pálmi Rafn Pálma-
son hafði jafnað metin fyrir KR.
Thomsen sneri aftur til KR að
því tímabili loknu og er búinn að
vinna Íslandsmeistaratitil með
báðum félögum.
Vegna kórónuveirunnar verða
víst ekki 2.500 manns á Hlíðar-
enda í kvöld eins og á þeim leik
en eflaust hefði við eðlilegar að-
stæður mátt búast við slíkum
fjölda á völlinn.
Fyrir um sextíu árum var skrif-
að í eitt dagblaðanna að KR hefði
unnið Val 7:0 í jöfnum leik.
Og ég man vel eftir leiknum
ótrúlega á Hlíðarenda haustið
1992 þegar Ragnar Margeirsson
skoraði þrennu í 9:1 sigri KR.
Þá eru liðin þrettán ár síðan
Rúnar Kristinsson lék fyrsta leik
sinn með KR í þrettán ár, gegn
Val á útivelli. Þar höfðu Vals-
menn betur með tveimur mörk-
um Helga Sigurðssonar.
Þetta mun vera í 155. skipti
sem Valur og KR mætast á Ís-
landsmótinu. Hver leikur á sína
stund og sína sögu. Vonandi
stendur þessi undir væntingum.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Pepsi Max-deild kvenna
Valur – KR ................................................ 3:0
Mjólkurbikar karla
2. umferð:
Hvíti riddarinn – Selfoss.......................... 0:1
Leiknir R. – Kári ...................................... 5:0
Kórdrengir – Hamar................................ 6:0
Keflavík – Björninn.................................. 5:0
Ýmir – ÍR .................................................. 1:4
Völsungur – Þór........................................ 6:7
2:2 eftir framlengdan leik.
Mídas – SR................................................ 0:4
ÍH – GG ..................................................... 3:0
Þýskaland
Hoffenheim – RB Leipzig........................ 0:2
Staða efstu liða:
Bayern M. 30 22 4 4 90:30 70
Dortmund 30 19 6 5 81:35 63
RB Leipzig 31 17 11 3 77:32 62
Mönchengladb. 30 17 5 8 57:36 56
Leverkusen 30 17 5 8 56:40 56
Wolfsburg 30 12 9 9 42:36 45
Hoffenheim 31 12 7 12 42:52 43
Freiburg 30 11 8 11 39:41 41
Hertha Berlín 30 10 8 12 43:51 38
Spánn
Granada – Getafe...................................... 2:1
Valencia – Levante................................... 1:1
Staða efstu liða:
Barcelona 27 18 4 5 63:31 58
Real Madrid 27 16 8 3 49:19 56
Sevilla 28 14 8 6 41:29 50
Real Sociedad 27 14 4 9 45:33 46
Getafe 28 13 7 8 38:27 46
Atlético Madrid 27 11 12 4 31:21 45
Valencia 28 11 10 7 39:40 43
Granada 28 12 5 11 35:33 41
Villarreal 27 11 5 11 44:38 38
Ítalía
Bikarinn, undanúrslit, seinni leikur:
Juventus – AC Milan................................ 0:0
Juventus áfram á marki á útivelli, 1:1
samanlagt, og mætir Napoli eða Inter Míl-
anó í úrslitaleik.
spilarar voru í byrjunarliði KR sem
komu til félagsins fyrir leiktíðina.
Vesturbæjarliðið er með gæða-
leikmenn en ljóst er að þeir þurfa
að spila sig betur saman til að bíta
frá sér gegn þeim allra sterkustu.
KR gæti styrkst eftir því sem líður
á mótið.
Markadrottningarnar sáu um KR
Meistararnir byrja á öruggum sigri Gæti tekið tíma hjá mikið breyttu liði KR
Morgunblaðið/Eggert
Snögg Elín Metta var ekki lengi að skora fyrsta mark Íslandsmótsins 2020.
Harold Varner III er efstur eftir
tvo hringi á Charles Schwab Chal-
lenge-mótinu á PGA-mótaröðinni.
Því fyrsta í þrjá mánuði. Er hann á
11 undir pari eftir 36 holur. Jordan
Spieth og Bryson DeChambeau eru
aðeins höggi á eftir.
Útlit er fyrir mikla baráttu um
helgina og efsti kylfingur heimslist-
ans, Rory Mc Ilroy, minnti til dæmis
hressilega á sig í gær og lék á 63
höggum. Er hann á 9 undir pari
samtals. Justin Rose er á 8 undir
pari en hann og Varner voru efstir
eftir fyrsta hringinn.
McIlroy snöggur
að finna taktinn
AFP
Þögn Rory McIlroy vottar George
Floyd virðingu sína í gær.
Juventus leikur til úrslita í ítölsku
bikarkeppninni, en ítalska knatt-
spyrnan fór aftur af stað í gær þeg-
ar stórveldin Juventus og AC Míl-
anó mættust í undanúrslitum.
Gerðu þau markalaust jafntefli í
gær í síðari leik liðanna í Tórínó en
fyrri leiknum í Mílanó lauk 1:1 og
Juventus kemst því áfram á marki
skoruðu á útivelli.
AC Mílanó lenti í vandræðum
snemma leiks þegar Ante Rebic
fékk rauða spjaldið á 17. mínútu.
Mínútu fyrr skaut Cristiano Ron-
aldo í stöng úr vítaspyrnu.
Juventus í úrslit
bikarkeppninnar
AFP
Tórínó Cristiano Ronaldo á víta-
punktinum gegn AC Mílanó í gær.
Valur – KR 3:0
1:0 Elín Metta Jensen 2.
2:0 Elín Metta Jensen 21.
3:0 Hlín Eiríksdóttir 29.
MM
Hlín Eiríksdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
M
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Val)
Elísa Viðarsdóttir (Val)
Lillý Rut Hlynsdóttir (Val)
Ásgerður S. Baldursdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Ingibjörg Valgeirsdóttir (KR)
Thelma Lóa Hermannsdóttir (KR)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (KR)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
– 8
Áhorfendur: 233.
spila í neðri deildunum og finnst það
vera virkilega spennandi áskorun að
spila með FH í Pepsi Max deildinni,“
sagði Kristján Gauti þegar Morgun-
blaðið heyrði í honum í gær. Hann
kíkti á nokkrar æfingar hjá Stjörn-
unni eins og hann orðaði það og fór á
fyrstu æfingu sína með FH í gær.
„Því fylgir virkilega góð tilfinning að
vera byrjaður að spila fótbolta og
snerta boltann. Ég hlakka bara til
sumarsins.“
Þurfa að vera klókir
Kristján er meðvitaður um að var-
hugavert geti verið að fara of geyst
af stað eftir fjögurra ára fjarveru frá
boltanum. Hann segir hins vegar
grunnþolið vera ágætt.
„Ég vil auðvitað gera eins vel og
ég get. Við þurfum auðvitað að vera
klókir til að byrja með á meðan ég er
að koma mér í gang. Svo ég fari ekki
of geyst af stað heldur byrji hægt og
rólega. Ég stefni fyrst á að komast í
leikmannahópinn, hvenær sem það
verður, en ég held að það hljóti að
vera fyrsta markmiðið.
Ég var virkilega duglegur í rækt-
inni og gerði mikið af því að hlaupa
utandyra eftir að ég hætti í fótbolt-
anum. Ég hafði mjög gaman að því
og ég held að grunnþolið sé til staðar.
Byggja þarf ofan á það því það er
annað en að vera í fótboltaformi.“
Nokkur kunnugleg andlit
Kristján var marksækinn síðast
þegar hann lék á Íslandsmótinu eins
og fyrr segir og á ekki von á öðru en
að Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH,
sjái Kristján fyrir sér í sókninni.
„Ég kann vel við mig í tíunni en
get líka leyst níuna af. Ég held að
hann viti alveg að ég er sterkur sókn-
armaður,“ sagði Kristján og hann sér
nokkur kunnugleg andlit í FH-liðinu
frá því fyrir sex árum. „Já, já, þeir
eru nokkrir og ég hef einnig unnið
áður með Guðlaugi Baldurssyni að-
stoðarþjálfara,“ sagði Kristján Gauti
Emilsson í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Efsta deild kvenna hófst í gær og
karlarnir hefja leik í dag. Fyrsti leik-
ur FH verður á morgun klukkan 18
gegn HK í Kórnum.
Kristján Gauti tekur fram skóna
Leikur með FH eftir sex ára fjarveru
Morgunblaðið/Styrmir Kári
FH Kristján Gauti Emilsson er kominn aftur af stað með Hafnarfjarðar-
liðinu eftir langt frí frá fótboltanum og gæti spilað á ný fljótlega.
Virkilega góð
tilfinning að
vera byrjaður
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Óvæntustu tíðindin í aðdraganda Ís-
landsmótsins í knattspyrnu hljóta að
vera þau að Kristján Gauti Emilsson
ætlar að taka fram skóna og spila
með FH eftir fjögurra ára hvíld frá
íþróttinni. Kristján lék síðast árið
2015 með Nijmegen í Hollandi en síð-
ast með FH sumarið 2014. Setti hann
þá verulega svip á FH-liðið með því
að skora fimm mörk í níu leikjum í
deildinni og þrjú til viðbótar í Evr-
ópuleikjum.
„Sú hugsun að taka fram skóna
hefur komið til mín nokkrum
sinnum. Ég gat ekki hætt að velta því
fyrir mér og ákvað loksins að fylgja
því eftir og taka fram skóna. Í raun-
inni velti ég því ekkert fyrir mér að
Á HLÍÐARENDA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Titilvörn Vals hófst með 3:0-sigri á
KR á Hlíðarenda í upphafsleik
Pepsi Max-deildar kvenna í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Eftir langa og
stranga bið er Íslandsmótið loks
hafið og gefur fyrsti leikurinn góð
fyrirheit fyrir það sem koma skal.
Valskonur byrjuðu með látum því
einni og hálfri mínútu eftir að
Gunnar Freyr Róbertsson flautaði
mótið á var Elín Metta Jensen búin
að skora. Tæpum hálftíma síðar var
Elín búin að skora aftur og Hlín
Eiríksdóttir sömuleiðis. Var þá
ljóst hvort liðið færi með sigur af
hólmi.
Það er gríðarlega jákvætt fyrir
Val að Hlín og Elín Metta skuli
byrja á að þenja netmöskvana, en
þær voru markadrottningar síðasta
sumars ásamt Berglindi Björgu
Þorvalsdóttur hjá Breiðabliki. Vals-
liðið er að mestu skipað sömu leik-
mönnum og urðu Íslandsmeistarar
á síðasta ári og markmiðið er skýrt;
að verja titilinn. KR fékk sín færi í
leiknum en landsliðsmarkvörðurinn
Sandra Sigurðardóttir var sterk á
milli stanganna hjá Val. Valsliðið er
lítið breytt á milli ára en sex úti-