Morgunblaðið - 13.06.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta byrjaði allt á því að viðhjá samtökunum Villikött-um fengum ábendingu frákonu um að það væri villi-
köttur í Elliðaárdalnum þar sem hún
var stundum að gefa kanínum. Hún
bað okkur um að leggja sér lið við að
gefa þessum ketti og gauka ein-
hverju að kanínunum í leiðinni. Ég
tók það að mér og kanínurnar voru
fljótar að læra að þekkja röddina í
mér, þær flykktust að mér í tugatali
þegar ég kallaði á þær. Þær þekktu
líka fljótlega bílinn minn, þær voru
mættar í kringum hann um leið og ég
lagði honum,“ segir Margrét Sif Sig-
urðardóttir, sem er sjálfboðaliði hjá
Villiköttum, en hún stofnaði nýlega
dýrahjálparsamtökin Villikanínur.
„Ég er búin að bjarga um átta-
tíu kanínum úr Elliðaárdalnum, það
er alveg nóg að gera,“ segir hún og
hlær og rifjar upp hvernig þetta þró-
aðist.
„Ég var búin að gefa þeim í
langan tíma, líka í vonda veðrinu í
vetur, og það var svo krúttlegt þegar
þær eltu mig og gaman að kynnast
þeim og spjalla við þær. Ég varð al-
veg miður mín þegar stórfelldur
kanínudauði fór að gera vart við sig í
kanínuhópnum núna í lok vetrar, ég
þekkti sumar þeirra dánu af útlitinu.
Tugir kanína drápust á hverjum degi
og fyrst var haldið að einhver hefði
eitrað fyrir þeim, sem fór fyrir
brjóstið á mér. Ég gat ekki setið
heima aðgerðarlaus, svo ég spurði á
Facebook hvort einhverjir væri til í
að fóstra kanínur og hvort einhverjir
gætu lánað eða gefið mér búr til að
geyma kanínur í. Ég fékk góð við-
brögð og óð í verkið á degi tvö eftir
að þær fóru að drepast, fór að fanga
kanínur í búr. Ég óskaði eftir fólki til
að hjálpa mér við að fanga þær og
setti upp hóp og fljótlega var ég
komin með helling af kanínum og var
á fullu að skutla þeim til fólks sem
vildi fóstra kanínur.“
Var eins og kanínu-Covid
Margrét var í sambandi við
Matvælastofnun, MAST, og í ljós
kom að það sem herjaði á kanínurnar
var bráðsmitandi lifrardrep.
„Níutíu prósent þeirra kanína
sem veikjast af þessu drepast.
Elliðaárdalurinn er því sýkt svæði
núna, því þetta lifir í jarðveginum í
tvö ár. Ég reyni að forða þeim heil-
brigðu kanínum sem eftir eru, læt
bólusetja þær og kem þeim í tíma-
bundið fóstur. Við þurftum að að-
skilja þær allar í upphafi, þær máttu
ekki vera saman því þá gat sýkt kan-
ína smitað heilbrigða kanínu. Þetta
var þegar Covid gekk yfir landið og
kanínurnar voru því í takt við mann-
fólkið þegar þær fóru í kanínusóttkví
á fósturheimili. Okkur leið svolítið
eins og þetta væri kanínu-Covid, þó
að þetta sé önnur veiki, því við þurft-
um að bregðast við með svipuðum
hætti. Þetta var mikil vinna og ég
var fyrst ein að skutlast með kanínur
út um allan bæ og græja og gera, en
stuðningurinn sem ég fékk var ótrú-
lega mikill og ég er mjög þakklát fyr-
ir hann.“
Margrét segir að hjá MAST hafi
henni verið bent á að sniðugt væri að
stofna samtök til að bjarga kan-
ínunum, sem hún og gerði.
„Ég var líka í sambandi við
Reykjavíkurborg um að fá að sleppa
kanínunum aftur og fá að byggja
skjól fyrir þær. Ég má ekki sleppa
þeim aftur ef það er ekki skjól á
staðnum fyrir þær, það er ólöglegt
samkvæmt dýraverndunarlögum.
Ég fékk leyfi hjá Reykjavíkurborg
til að fanga þær, hringdi líka í MAST
og passaði mig að fara eftir öllum
reglum. Yndislegar stelpur, Sonja F.
Ludvig Daníelsdóttir, Júlía Fanney
Jóhannsdóttir og Berglind Jóns-
Kanínubjargvætturinn mikli
„Ég er hrifin af öllum
dýrum,“ segir Margrét,
sem stofnaði dýrahjálpar-
samtökin Villikanínur til
bjargar þeim villtu kan-
ínum sem ekki drápust
úr bráðsmitandi lifrar-
drepi sem herjaði á þær.
Morgunblaðið/Eggert
Mæðgin Margrét og Matthías sonur hennar sem var duglegur að fanga kanínur með henni í Elliðaárdalnum, en hann er dýravinur eins og mamma hans.
Umvafinn Matthíasi finnst gaman að gefa kanínunum að borða.
Koss Margrét er
afar hrifin af öll-
um dýrum enda
ólst hún upp með
þeim í sveitinni.
Krútt Þessi fallega
kanína er ekki mat-
vönd, hún gerði sér
gras að góðu.
Matartími Þessi
kanínukrútt voru
að gæða sér á
grænmeti úr skál.
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibún
Komið og
skoðið úrvalið
aði