Morgunblaðið - 13.06.2020, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Djasssumarið er hafið á Jómfrúnni,
í tuttugasta og fimmta sinn. Á öðr-
um tónleikum Sumarjazz á Jóm-
frúnni í dag, laugardag, milli kl. 15
og 17, kemur Skuggatríó saxófón-
leikarans Sigurðar Flosasonar
fram. Auk Sigurðar skipa tríóið
þeir Þórir Baldursson sem leikur á
hammondorgel og Einar Scheving á
trommur.
Á efnisskránni verður að mestu
leyti tónlist eftir Sigurð Flosason
sjálfan, sem er á mörkum djass- og
blústónlistar. Hann segir tónlistina
aðgengilega og hressilega; annars
vegar nýtt efni og hins vegar lög
sem hafa komið út á nokkrum plöt-
um sem hann hefur gert í þessum
stíl.
Djasssumarið leggst vel í Sigurð,
sem hefur skipulagt Sumarjazz á
Jómfrúnni í áraraðir. „Það er búið
að opna landið fyrir tónleikum og
músík, og þar með fyrir djassi.“
Aðeins inni í kolbrjáluðu veðri
Sigurður segir stemninguna á
Jómfrúnni hafa verið frábæra síð-
astliðinn laugardag þegar tónleika-
röðin hófst að nýju. „Það var góð
mæting og maður fann að fólk var
óþreyjufullt að geta verið úti í hóp
og heyrt lifandi músík. Það var al-
veg sérstakt andrúmsloft. Ég er
náttúrlega búinn að skipuleggja
þessa tónleikaröð í yfir tuttugu ár
og spilað oft í gegnum árin en það
var öðruvísi andrúmsloft síðasta
laugardag. Það var frábært veður
og einhver léttir í loftinu. Maður
treystir því að sumarið verði þann-
ig; að það verði gott veður og
borgarbúar geti notið þessara tón-
leika á laugardögum.“
Tónleikarnir á Jómfrúnni eru
iðulega haldnir utandyra. „Þetta er
algjörlega frábært þegar það er
glampandi sól,“ segir Sigurður. „En
fólk er ótrúlega þrautseigt að sitja
þarna í veðri sem er ekki fullkomið,
jafnvel með regnhlífar og teppi. Við
spilum úti næstum við hvaða að-
stæður sem er. Við höfum farið inn
á staðinn örfáum sinnum en það
þarf eiginlega að vera alveg kol-
brjáluð slagveðursrigning til að það
gerist.“
Færri komast að en vilja
Sigurður segist halda ótrauður
áfram að halda utan um Sumar-
jazzinn. „Þetta er einstaklega
skemmtilegt allt saman.“
Mikill áhugi er fyrir því að koma
fram á tónleikaröðinni meðal djass-
listamanna þjóðarinnar. Sigurður
segir að af nógu sé að taka;
tónlistarmennirnir séu miklu fleiri
en hægt sé að koma að.
Hlutverk Sigurðar er að setja
saman dagskrá djasssumarsins.
„Þetta verður skemmtileg og jöfn
dagskrá. Við erum alltaf með
blöndu af vel þekktum djasstón-
listarmönnum þjóðarinnar, söngv-
urum og hljóðfæraleikurum, og svo
reyni ég alltaf að vera með yngra
fólk í þessu og einhverja sem hafa
ekki komið fram áður. Þetta er
svona blanda af gömlu og nýju en
við erum alltaf með gæðin í fyrir-
rúmi. Fólk getur treyst því að
þarna verði fín músík, hvort sem
það þekkir öll nöfnin eða engan.
Mitt hlutverk er að vera gæðastjór-
inn og passa upp á að í hverri viku
sé prógramm sem virkar við þessar
aðstæður.“
Spennandi dagskrá á
laugardögum í allt sumar
Sigurður vekur athygli á því að
Jómfrúin býður þessa tónleikaröð
frítt fyrir borgarbúa. „Þetta er frá-
bært framtak. Ókeypis menning í
borginni.“
Tónleikar verða áfram alla laug-
ardaga í júní, júlí og ágúst. „Þetta
er eitthvað sem borgarbúar geta
reitt sig á, að mæta þarna, fá sér að
borða og drekka og hlusta á fína
músík,“ segir Sigurður.
Fram undan eru fleiri spennandi
tónleikar. Laugardaginn 20. júní
kemur sex manna Latínband Tóm-
asar R. Einarssonar fram. Auk
Tómasar er Latínbandið skipað
Óskari Guðjónssyni, Kjartani Há-
konarsyni, Samúel Jóni Samúels-
syni, Ómari Guðjónssyni og Matt-
híasi Hemstock.
Viku síðar, hinn 27. júní, mætast
tvær kynslóðir þegar Kvartett
Benjamíns Gísla kemur saman í
spennandi samspili. Kvartettinn
skipa Sölvi Kolbeinsson á saxófón,
Benjamín Gísli Einarsson á píanó,
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa
og Einar Scheving á trommur, en
hann kemur einnig fram með
Skuggatríói í dag.
„Alveg sérstakt andrúmsloft“
Skuggatríó Sigurðar Flosasonar spilar á Jómfrúnni í dag Spennandi
dagskrá alla laugardaga í sumar „Við erum alltaf með gæðin í fyrirrúmi“
Skuggatríó Tónlistarmennirnir Einar Scheving, Þórir Baldursson og Sigurður Flosason spila blöndu af djassi og
blústónlist á Jómfrúnni í dag, bæði gamalt efni og nýtt, sem Sigurður segir hressa og aðgengilega músík.
Tónleikaröð til styrktar Hallgríms-
kirkju í Saurbæ í Hvalfirði hefst á
morgun, 14. júní, með tónleikum
hljómsveitarinnar Skuggamynda
frá Býsans. Hún mun leika tónlist
frá Grikklandi sem sögð er fjörug,
tilfinningarík og áhrifamikil.
Hljómsveitina skipa Haukur Grön-
dal á klarinett, Ásgeir Ásgeirsson á
bouzouki, Þorgrímur Jónsson á
bassa og Erik Qvick á slagverk.
Allur ágóði af miðasölu rennur til
styrktar staðnum og hefjast tón-
leikarnir kl. 14.
Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans.
Grísk tónlist leikin
í kirkju í Hvalfirði
Sýningin Nýjar
birtingarmyndir
listarinnar verð-
ur opnuð í dag
kl. 14 á vef-
svæði tímarits-
ins Artzine,
artzine.is, og er
hún haldin í til-
efni af kynningu
og útkomu bók-
arinnar Digital
Dynamics in Nordic Contempor-
ary Art sem ritstýrt er af Tönyu
Toft og gefin út af forlaginu In-
tellect Books.
Margrét Elísabet Ólafsdóttir er
höfundur kaflans „Visions and
Divides in Icelandic Contempor-
arty Art“ og er hún einnig sýn-
ingarstjóri Nýrra birtingarmynda
listarinnar.
Samhliða sýningunni verður
sýnd upptaka af pallborðs-
umræðum þar sem annar hópur
ungra listamanna ræðir afstöðu
sína til stafrænnar tækni og áhrif
hinna stafrænu og síðstafrænu
tíma á eigin listsköpun. Frekari
upplýsingar má finna á
www.digitaldynamics.art.
Nýjar birtingar-
myndir listarinnar
Margrét Elísabet
Ólafsdóttir
Bókakaffið á Selfossi hefur á
morgun, sunnudaginn 14. júní,
þematengda viðburðaröð sem ber
yfirskriftina Menningarsumarið í
Bókakaffinu. Viðburðirnir verða
fjórir og munu taka mið af fordæma-
lausu ástandi með fjöldatakmörk-
unum og því mikilvægt að mæta tím-
anlega til að tryggja sér sæti, segir í
tilkynningu. Dagskráin verður um
30 mínútur að lengd og flutt tvisvar,
kl. 14 og 15.
Fyrsta dagskrá menningarsum-
arsins ber yfirskriftina Nú andar
suðrið og er helguð þýðingum. Inn á
milli lestra munu hljóma íslenskir og
argentínskir tónar. Fram koma Árni
Óskarsson sem les úr þýðingu sinni
á spennusögunni Otsjajaníje eftir
verðlaunahöfundinn Vladimir Nabo-
kov en bókin nefnist á íslensku Ör-
vænting og er væntanleg seinna á
árinu. Pamela De Sensi flytur verkin
Kveðju eftir Elínu Gunnlaugsdóttur
og Tango Etude nr. 3 eftir Astor
Piazzolla og les einnig úr ítalskri
þýðingu bókarinnar Tvöfalt gler
sem hefur farið sigurför um heim-
inn, auk þess sem höfundur hennar,
Halldóra Thoroddsen, les brot úr
bókinni á íslensku. Hallgrímur
Helgason, þýðandi og skáld, les úr
þýðingu sinni á Óþelló eftir William
Shakespeare og Helga Soffía
Einarsdóttir fjallar um þýðingu sína
á bókinni Glæpur við fæðingu eftir
grínistann og þáttastjórnandann
Trevor Noah en í bókinni segir hann
frá uppvexti sínum á tímum aðskiln-
aðarstefnunnar í Suður-Afríku.
Viðburðaröð í Bókakaffinu
Menningarhús Bókakaffið á Selfossi blæs til viðburðaraðar.