Morgunblaðið - 13.06.2020, Side 48
Kór Neskirkju heldur
tónleika á morgun,
sunnudag, kl. 17 í Nes-
kirkju. Á efnisskránni
verða nokkur verk eftir
ítölsku tónskáldin G.P.
da Palestrina og A.
Scarlatti og einnig
nokkur verk eftir Stein-
grím Þórhallsson,
stjórnanda kórsins.
Meðal annars verður
frumflutt ný messa,
Missa Brevis, eftir
Steingrím. Auk þess verða flutt fleiri verk eftir hann
sem samin eru við ljóð eftir Snorra Hjartarson en safn
tónverka Steingríms við tólf ljóð eftir Snorra var frum-
flutt í heild sinni á vortónleikum Kórs Neskirkju fyrir
tveimur árum. Guðrún Lilja Kristinsdóttir, sópran og fé-
lagi í kórnum, syngur einsöng og Steingrímur stjórnar.
Aðgangur er ókeypis.
Ný messa eftir Steingrím Þórhalls-
son frumflutt á kórtónleikum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Um 54 árum eftir að strákar á Sel-
tjarnarnesi byrjuðu að sparka saman
fótbolta undir stjórn Garðars Guð-
mundssonar er Grótta að fara að
hefja keppni í deild þeirra bestu.
„Enginn hafði hugmyndaflug til að
láta sér detta í hug að þetta gæti
gerst,“ segir Garðar, sem stóð að
stofnun Gróttu 24. apríl 1967 og er
titlaður „eigandinn“, en hann hefur
séð um eldri flokk félagsins undan-
farin 35 ár.
Þegar Garðar flutti á Nesið sakn-
aði hann fótboltans, sem hann hafði
stundað hjá Val í Reykjavík. „Það
var ekkert við að vera á Nesinu,“
rifjar hann upp. „Við bjuggum á
Tryggvastöðum við Lindarbraut og
fyrir framan húsið voru stundum
nokkrir strákar að leika sér í fót-
bolta. Eftir því sem þeim fjölgaði
datt mér í hug að koma skipulagi á
málin, að stofna félag, hengdi upp til-
kynningu í verslunni Steinnesi á
Melabraut og óskaði eftir strákum á
fótboltaæfingar. 126 drengir skráðu
sig til leiks og boltinn fór að rúlla.“
Á þessum tíma var Garðar af-
greiðslumaður í Ziemsen í Hafnar-
stræti og stjórnaði æfingum eftir
vinnu, en fékk sér eldri mann, Garð-
ar Ólafsson, til að vera formaður,
þegar félagið var stofnað. „Þegar ég
var búinn að borða fór ég beint út á
tún,“ leggur hann áherslu á.
Þekktur söngvari
Hann var líka orðinn þekktur sem
söngvari eftir að hafa getið sér gott
orð með ýmsum hljómsveitum eins
og Flamingo-kvintettinum í Vetrar-
garðinum, Pónik og Garðari, Tónum
og Garðari og Garðari og Gosum.
Auk þess var hann glúrinn í skákinni.
„Ég var einn með strákana og á vet-
urna héldum við hópinn með því að
tefla reglulega heima hjá okkur.“
Garðar miðlaði af reynslu sinni og
hélt guttunum við efnið. „Ég kenndi
litlu strákunum allt sem hægt var að
kenna í fótbolta,“ segir hann og vísar
til þess að hann hafi lært fræðin á æf-
ingum á Hlíðarenda.
Ólafur Garðarsson lögfræðingur
og Franz Ploder flugmaður voru í
fyrsta æfingahópnum hjá Garðari og
eru enn hjá honum, nú í flokki 40 ára
og eldri. „Ég sé um allt frá a til ö
nema hvað eiginkonan sér um
uppskeruhátíðina sem við höldum
heima hjá okkur og æfingaferðirnar
til útlanda eru alfarið í höndum Óla
enda er hann umboðsmaður fótbolta-
manna.“
Skákin er aldrei langt undan og
Garðar er formaður Æsis, skák-
félags eldri borgara, sem er með að-
stöðu hjá Félagi eldri borgara í
Stangarhyl. Hann byrjaði í tónlist-
inni 1957, hefur gefið út tvo diska og
er enn að skemmta fólki með söng.
„Við Ólafur Már Ásgeirsson spil-
uðum saman í Stuðbandinu um
hverja helgi í 15 ár en köllum okkur
Stuðgæja eftir að við urðum bara
tveir.“ Hann hefur nánast ekkert far-
ið á leiki með meistaraflokki Gróttu.
„Ég hef kannski séð tvo leiki með Val
á sumri en nú verð ég að snúa mér að
mínum mönnum. Ég verð að sjá
Gróttu spila í efstu deild.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brautryðjendur Garðar Guðmundsson, stofnandi og „eigandi“ Gróttu, á æfingu hjá heldri leikmönnum félagsins.
Fyrir aftan hann standa Franz Ploder, Ólafur Garðarsson og Garðar Ólafsson, fyrsti formaður Gróttu.
Stuðgæinn Garðar
félagsmálatröll í hálfa öld
Stofnandi og „eigandi“ Gróttu enn við stjórnvölinn
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 165. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Sú hugsun að taka fram skóna hefur komið til mín
nokkrum sinnum. Ég gat ekki hætt að velta því fyrir
mér og ákvað loksins að fylgja því eftir og taka fram
skóna. Í rauninni velti ég því ekkert fyrir mér að spila í
neðri deildunum og finnst það vera virkilega spennandi
áskorun að spila með FH í Pepsi Max deildinni,“ sagði
Kristján Gauti Emilsson knattspyrnumaður, sem hefur
tekið fram skóna eftir langt hlé og leikur með FH á
komandi keppnistímabili. »41
Ákvað loksins að fylgja því eftir
ÍÞRÓTTIR MENNING