Morgunblaðið - 18.07.2020, Blaðsíða 47
Ímeltingarveginum lifa trilljónirbaktería og eru flestar þeirra íristlinum. Í daglegu tali köllum við
þessar bakteríur þarmaflóru því þær
samanstanda af meira en 1000 tegundum
og í ristlinum sinna þær ýmsum afar
mikilvægum hlutverkum. Þær framleiða
m.a. vítamín, amínósýrur, stuttar fitusýrur
og ýmis boðefni og ensím. Við þurfum
því að hugsa vel um þær og passa að
jafnvægi sé til staðar svo þær hugsi vel um
okkur. Þarmaflóran ver okkur líka gegn
óæskilegum örverum og hefur margskonar
jákvæð áhrif á heilsu okkar almennt, jafn
andlega sem líkamlega.
Leið strax betur
Davíð Karlsson leið strax betur eftir að
hann byrjaði að taka inn góðgerlablönduna
Prógastró, eftir áralanga baráttu við loft og
önnur óþægindi eftir máltíðir. Hann deildi
með okkur reynslu sinni.
„Ég fann strax hvað mér leið betur eftir
að ég byrjaði á Prógastró. Ég varð yfirleitt
alltaf útþaninn ef ég fékk mér kjöt, bjór eða
gosdrykki, en eftir að ég byrjaði á Prógastró
hef ég ekki verið að finna fyrir þessum
einkennum. Magaverkir sem ég var vanur
að finna reglulega fyrir heyra nú sögunni
til. Ég er búin að taka Prógastró daglega í
mörg ár og er ekki að fara að breyta því.“
Veikindi vegna lífsstíls
Þarmaflóran í venjulegri manneskju
inniheldur yfir þúsund mismunandi
tegundir gerla og baktería. Jafnvægi
þessara baktería getur auðveldlega raskast
vegna veikinda, inntöku sýklalyfja, mikillar
kaffidrykkju og ýmissa lífsstílstengdra
þátta eins og mikils álags eða streitu,
neyslu næringarsnauðrar fæðu og fæðu
sem er mikið unnin. Fjölmargir eru líka
að borða á hlaupum og á óreglulegum
tímum sem er ekki síður slæmt. Við
þessar aðstæður raskast jafnvægi
þarmaflórunnar og getur fólk
þá farið að finna fyrir ýmsum
óþægindum og jafnvel veikindi
farið að gera vart við sig.
Líkamlegir og andlegir kvillar
Það er fjölmargt sem einkennir lélega
þarmaflóru eða að hún sé í ójafnvægi.
Rannsóknir síðari ára hafa rennt styrkum
stoðum undir það hversu gríðarlega
mikilvægt það sé að þarmaflóran okkar sé
í góðu standi bæði hvað varðar líkamlega
sem og andlega heilsu. Það kannast
sennilega flestir við ýmiskonar ónot sem
við tengjum beint við meltinguna. Það
getur t.d. verið:
n Uppþemba eftir máltíðir
n Óreglulegar hægðir
n Vindverkir
n Gyllinæð (tengist oft harðlífi)
n Sveppasýkingar
n Húðvandamál
Tengsl þarmaflóru og heilsunnar
Síðastliðin ár hafa vísindamenn verið
að rannsaka þarmaflóru með tilliti til
síþreytu og ýmissa andlegra kvilla.
Í ljós hefur komið að þarmaflóra
þessara hópa er ekki eins og hjá þeim
sem eru hraustir, sem gefur til kynna
hversu mikilvæg þarmaflóran er. Að
auki er stór hluti ónæmiskerfis okkar
staðsettur í meltingarveginum og því er
mjög mikilvægt að huga að heilbrigði
þarmaflórunnar. Virkni og almennt
heilbrigði meltingarvegarins ræðst meðal
annars af samsetningu örveiruflóru í
þarmaflórunni. Ein leið til þess að huga
að heilbrigði meltingarvegs er að taka inn
mjólkursýrugerla á hverjum degi.
Hefur þarmaflóran áhrif á þyngd?
Rannsóknir gefa til kynna að nokkuð sterk
tengsl séu á milli ástands þarmaflóru og
líkamsþyngdar. Í stuttu máli þá bendir
allt til þess að þarmaflóra fólks sem er
grannvaxið sé önnur en hjá fólki í yfirvigt.
Þetta gefur okkur vísbendingar um að fjöldi
hitaeininga hefur ekki allt að segja um
þyngd okkar, heldur hafi öflug og heilbrigð
þarmaflóra einnig mikið um það að segja.
Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og inntaka
á öflugum mjólkursýrugerlum geta örvað
vöxt hagstæðra örvera í meltingarveginum
og haft þannig jákvæð áhrif á líkamsþyngd
okkar. Það er nefnilega ekki málið að telja
hitaeiningarnar heldur skiptir höfuðmáli
hversu góð vinnsla og upptaka líkamans er
á næringunni í þörmunum.
Góðgerlar semmargfalda sig í
þörmunum
Prógastró Gull mjólkursýrugerlarnir
eru afar öflugir, en í hverju hylki eru
15 milljarðar af gall- og sýruþolnum
gerlastofnum. Einn af þeim er L.
acidophilus DDS®-1, en þetta er nafn
á mjög áhrifaríkum gerlastofni sem
margfaldar sig í þörmunum. L. acidophilus
DDS®-1 er talinn gagnlegur fyrir alla
aldurshópa.
Prógastró Gull er fæðubótarefni.
Neysla fæðubótarefna kemur ekki í stað
fjölbreyttrar fæðu og heilsusamleg lífernis.
Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur
verslana
Davíð Karlsson var alltaf útþaninn eftir máltíðir, sérstaklega
ef hann borðaði þungar máltíðir eða fékk sér sykraða eða
gerjaða drykki. Hann fannmikinn mun á sér eftir að hann
byrjaði að taka Prógastró góðgerla
Fyrir alla sem finna fyrir
eymslum eða þreytu í
vöðvum.
Fyrir eðlilega vöðva- og
liðastarfsemi. Kælir og
hjálpar til við að halda
liðunum mjúkum.
Fyrir svefninn. Stuðlar að
meiri ró og hefur reynst
vel við fótaóerið.
Fyrir íþróttafólk og
þá sem stunda mikla
hreyfingu. Flýtir
endurheimt vöðva.
Getur verið slakandi,
dregið úr krömpum
og fótapirringi ásamt
því að bæta svefn.
Magnesíum spreyin frá
Fást í
apótekum,
heilsubúðum
og
stórmörkuðu
m
Meltingaróþægindi
úr sögunni
pplifi ekki lengur magaverki eða önnur
ægindi tengdmeltingunni. Ég er búin að
a Prógastró í mörg ár og er ekki að fara að
yta því.“ Davíð Karlsson
Trefjaríkt fæði, gerjaðar
afurðir og inntaka á öflugum
mjólkursýrugerlum geta
örvað vöxt hagstæðra örvera í
meltingarveginum og haft þannig
jákvæð áhrif á líkamsþyngd okkar.
„U
óþ
tak
bre
2ja
mánaða
skammtur