Morgunblaðið - 18.07.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð 518.000 kr. Tilboðsverð 389.000 kr. Tilboðsverð 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar SUMARTILBOÐÁGARÐHÚSUM! Afar einfalt er að reisa húsin okka r Uppsetning teku r aðeins einn da g BREKKA 34 - 9 fm STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm 25% afsláttur 25% afsláttur 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. ÍAV hófu í gær að grafa fyrir Korpu- línu sem lögð verður í jörð á milli tengivirkjana á Geithálsi og Korpu. Síðar á árinu mun Landsnet hefja vinnu við að leggja Rauðavatnslínu í jörð. Báðar gömlu loftlínurnar verða rifnar. Korpulína liggur í gegn um Úlfars- árdal og er farin að hamla þróun byggðar þar, að mati Reykjavíkur- borgar, auk þess sem hún stendur í vegi fyrirhugaðs kirkjugarðs. Lagðir verða þrír einfasa strengir í skurðinn. Þvermál hvers strengs er rúmir 11 sentímetrar. Jón Bergmundsson, verkefnastjóri hjá Landsneti, segir að strengurinn geti flutt 200 megavött og er hann því töluvert öflugri en nú- verandi loftlína. ÍAV annast jarð- vinnu og lagningu strengsins. Mikilvægur póstur Sá hluti Rauðavatnslínu sem enn er í loftlínu innan borgarmarkanna verð- ur lagður í jörð síðar á árinu. Kaflinn er frá Geithálsi og framhjá hesthúsa- hverfinu í Almannadal og að aðveitu- stöð sem þar er. Sú aðveitustöð er mikilvægur póstur í dreifingu raforku inn á höfuðborgarsvæðið. Samskonar strengir fara í þann skurð og jarð- streng Korpulínu. Hins vegar er ekki öruggt að hægt verði að tengja jarð- strenginn við Almannadal fyrr en á næsta ári. Hverfur þá síðasti hluti gamallar loftlínu sem lá frá Sogsvirkj- unum. helgi@mbl.is Línur úr lofti og niður í jörð  Korpulína og Rauðavatnslína verða settar í jarðstrengi og gömlu loftlínurnar rifnar í kjölfarið  Korpulína er farin að hamla þróun byggðar í Úlfarsárdal og stendur í vegi fyrirhugaðs kirkjugarðs Morgunblaðið/Árni Sæberg Hólmsheiði Byrjað var í gærmorgun á greftri fyrir jarðstreng í Korpulínu við Geitháls. Nokkur tré í vegkantinum voru fyrir og þurftu að víkja. Alexander Kristjánsson Snorri Másson Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair, segir að „ömurlegt“ sé að vera í þeirri stöðu að þurfa að segja flugfreyjum upp. Aðgerðirnar séu engu að síður nauðsynlegar til að bjarga félaginu. Sem kunnugt er sleit Icelandair í gær viðræðum við Flugfreyjufélagið um gerð kjarasamninga og sagði upp öllum 40 flugfreyjum sem enn störfuðu hjá félaginu. Bætast þær uppsagnir við tæplega 900 uppsagn- ir flugfreyja í apríl. Félagið sé uppi við vegg Í bréfi Boga til flugfreyja segir hann að niðurstöður atkvæða- greiðslu flugfreyja um undirritaðan kjarasamning hafi gefið til kynna að meirihluti félagsmanna sé ekki tilbúinn í að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru. „Tíminn er á þrotum og við erum uppi við vegg,“ segir Bogi í bréfinu. Rúm vika er síðan flugfreyjur felldu kjarasamning við Icelandair, sem samninganefnd félagsins hafði þá undirritað. Í þeim samningi fólst að flugfreyjur tóku á sig 20% aukið vinnuframlag gegn 12% launahækk- un fyrir flugfreyjur á lægstu laun- um, en enn minni hækkun fyrir reyndari flugfreyjur. Þá voru einnig gerðar breytingar á reglum um hvíldartíma og vaktavinnu í samn- ingnum. Samningurinn var felldur með afgerandi hætti í atkvæða- greiðslu og þá sest aftur að samn- ingaborðinu. Þær viðræður hafa aft- ur á móti ekki borið árangur. Icelandair hefur nú gefið út að fé- lagið hyggist semja við nýjan aðila um störf flugfreyja en fyrst um sinn muni flugmenn sinna störfum þeirra um borð. „Það eru gríðarleg vonbrigði og í rauninni bara áfall að þetta skyldi fara svona,“ segir Bogi í samtali við mbl.is. Hann vonar að flugfreyjur muni einhverjar koma til starfa fyr- ir félagið í gegnum annað stéttar- félag, en metur atburðarásina þó þannig að einhverjar muni ekki gera það. Stjórnvöld fordæmi Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir að útspil Icelandair hafi komið félagsmönnum algjörlega að óvör- um. Það sé félaginu til minnkunar hvernig Icelandair ætli að haga sér við starfsfólkið en framkoman setji Flugfreyjufélagið í þá ömurlegu stöðu að þurfa að undirbúa verkfall. Rétt eins og Drífa Snædal, forseti ASÍ, kallar Guðlaug eftir því að ríkisstjórnin taki málið fyrir og for- dæmi framgöngu Icelandair. Bendir hún á að félagið hafi þegið fjár- stuðning frá íslenska ríkinu, í formi hlutabóta og greiðslu launa á upp- sagnarfresti, auk þess sem félaginu hafi verið heitið láni tækist því að semja við kröfuhafa. Helga Vala Helgadóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar, segir ákvörðun Icelandair óforsvaranlega. Segir hún nauðsynlegt að stjórnvöld sendi skýr skilaboð um að svona geri mað- ur ekki. Kjaraviðræður framtíðar séu undir. Hvorki forsætis-, fjármála- né félagsmálaráðherra gáfu kost á við- tali þegar þess var óskað. Nauðsyn en ömurlegt að slíta viðræðum  Icelandair segist munu semja við annað stéttarfélag Morgunblaðið/Eggert Samningafundur Síðasta samningafundi flugfreyja og Icelandair lauk án árangurs í gærmorgun. Ríkissáttasemjari vonar þó enn að aðilar nái saman. „Þetta horfir þannig við okkur að Icelandair er að fara í undirboð – gegn þeim leikreglum sem hafa gilt á vinnumarkaði hingað til,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðu- sambandsins, um þá ákvörðun Ice- landair að segja upp flugfreyjum og láta flugmenn starfa sem „öryggis- liða“ um borð í stað flugfreyja. Alþýðusambandið mun að sögn Drífu gera þær kröfur að lífeyris- sjóðir taki ekki þátt í fyrirhuguðu hlutafjárútboði Icelandair og stjórn- völd leggi ekki fé til flugfélagsins úr sameiginlegum sjóðum skattgreið- enda. Í tilkynningu Icelandair kemur fram að félagið geri ráð fyrir að hefja viðræður við annan samnings- aðila á íslenskum vinnumarkaði um framtíðarkjör „öryggis- og þjónustuliða“ hjá félaginu. Spurð hvort þetta þýði að nýtt flug- freyjufélag hafi verið stofnað eða unnið sé að stofn- un slíks félags segir Drífa að Icelandair verði að svara fyrir það. „Ég hef ekki orðið þess áskynja að flugfreyjur á Íslandi séu að stofna nýtt stéttarfélag. Hug- myndin með stéttarfélögum er að starfsfólkið stofni sjálft félag og stýri því,“ segir hún. thor@mbl.is „Þetta verður ekki látið viðgangast“ Drífa Snædal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.