Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
MERCEDES BENZ E 350e AVANTGARDE
nýskráður 03/2018, ekinn 29 Þ.km, bensín og rafmagn
(plug in hybrid), sjálfskiptur, tvöfalt stafrænt mælaborð,
sjónlínuskjár, Multibeam LED ljós o.fl. aukahlutir!
Verð 6.690.000 kr.
Raðnúmer 251299
AUDI A3 E-TRON DESIGN
nýskráður 06/2018, ekinn 29 Þ.km, bensín og rafmagn (plug in
hybrid), sjálfskiptur. Stafrænt mælaborð,
Bang & Olufsen hljómkerfi o.fl.
Verð 4.350.000 kr.
Raðnúmer 251205
ÓSKUM EFTIR BÍLUM Á SKRÁ
MIKIL SALAUNDANFARIÐ!
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu
lækkaði um 0,7% í júní frá mán-
uðinum á undan. Þetta kemur fram
í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-
og mannvirkjastofnunar. Áður hafði
leiguverð lækkað um 0,9% á höfuð-
borgarsvæðinu í maí. Árshækkun
leiguverðs mælist nú 1,1% eða undir
verðbólgu.
Hækkun á landsbyggðinni
Sömu sögu er þó ekki að segja af
leiguverði í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins en þar undir falla bæir á
borð við Akranes, Keflavík, Hvera-
gerði og Selfoss. Á því svæði hækk-
ar leiguverð annan mánuð í röð og
mældist árshækkun 2,9% í júní. Þá
hækkar leiguverð um 4% á milli
mánaða annars staðar á lands-
byggðinni og er 12 mánaða hækkun
þar 6,5%. Sá varnagli er þó sleginn
að fáir leigusamningar geta verið að
baki útreikninga þar og geta sveifl-
ur því verið talsverðar milli mánaða.
Þinglýstum leigusamningum fyrir
íbúðarhúsnæði hefur á sama tíma
fjölgað til muna. 57% fjölgun var á
þinglýstum leigusamningum á
höfuðborgarsvæðinu í júní, en sé
annar ársfjórðungur borinn saman
við síðasta ár er fjölgunin 16%
höfuðborgarsvæðinu, 15% í ná-
grannasveitarfélögum og 17% á öðr-
um svæðum landsbyggðarinnar.
Covid og almennar leiguíbúðir
Ólafur Sindri Helgason, yfirhag-
fræðingur hagdeildar HMS, segir
að ljóst sé að framboð á leiguhús-
næði hafi aukist á höfuðborgar-
svæðinu. Íbúðir sem áður voru
leigðar ferðamönnum á Airbnb
skipti þar að öllum líkindum miklu.
„En það má ekki gleyma að fjöl-
margar íbúðir eru að koma í leigu í
almenna íbúðakerfinu,“ segir Ólafur
og vísar til íbúða sem óhagnaðar-
drifin leigufélög á borð við Bjarg
standa að.
Aðspurður segir Ólafur að ekki sé
hægt að segja til um hvort áfram-
hald verði á þróuninni. „Það er
mjög erfitt að segja til um og veltur
allt á því hvernig þessi faraldur
þróast.“
Leiguverð lækkar milli mánaða
Fleiri leigusamningum þinglýst um
allt land Faraldurinn hefur áhrif
Morgunblaðið/Arnþór
Húsnæði Áhrif kórónuveirufaraldursins á íbúðaútleigu til ferðamanna, sem
og uppbygging almennra leiguíbúða, er talin skýra lækkunina.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hefur margt gerst á þessum
stutta tíma,“ segir Sigurður Hólmar
Jóhannesson, formaður Hamp-
félagsins og framkvæmdastjóri Ozon
ehf. sem flytur inn CBD-vörur. Tæpt
ár er nú liðið síðan félagið var stofn-
að en í kjölfarið var Sigurður fyrstur
til að hefja innflutning á snyrtivörum
sem innihalda virka efnið CBD, sem
unnið er úr hampi.
Nú er svo komið að umræddar
snyrtivörur er að finna í fjölda versl-
ana og apóteka. Um er að ræða vara-
salva, bólukrem, húð- og verkjakrem
og sitthvað fleira, alls sautján vörur
frá þremur framleiðendum. Sigurð-
ur er langt í frá eini innflytjandinn.
Til að mynda greindi Viðskiptablaðið
frá því í vikunni að vörur sem tónlist-
armaðurinn Emmsjé Gauti flytur
inn hafi selst upp á skömmum tíma.
„Þetta er að nálgast sextíu aðila
sem selja vörur okkar, apótek og
verslanir. Margir sem voru skeptísk-
ir í byrjun eru núna að taka trúna.
Þeir verða vitaskuld spenntir þegar
þeir sjá hvað viðskiptavinir eru
ánægðir með vörurnar,“ segir Sig-
urður.
Hér á landi er CBD skilgreint sem
innihaldsefni í lyfi og fellur því undir
lyfjalög. Því er ekki leyfilegt að flytja
efnið inn sem fæðubótarefni til
einkanota. Tillaga þess efnis hefur
verið lögð fram á Alþingi og kom
Sigurður fyrir velferðarnefnd þings-
ins þegar málið var til umfjöllunar
þar. Hann kveðst binda vonir við að
breyting verði á næsta vetur. Það sé
ekki seinna vænna því síminn stoppi
ekki frá fólki sem er að leita að slík-
um fæðubótarefnum. „Mér fannst
jákvætt hljóðið í þeim í velferðar-
nefnd. Eina var að þeir virtust vilja
hafa einhverja stjórn á því hvar
þetta væri selt.“
Mikil ásókn í
CBD-vörur hér
Vonast eftir fæðubótarefnum í vetur
Vinsældir Ýmsar snyrtivörur sem
innihalda CBD fást nú í apótekum.
Rauði krossinn á Íslandi hefur fest
kaup á 25 nýjum sjúkrabifreiðum
sem er liður í stórtækri endurnýjun
flotans.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir, fram-
kvæmdastjóri RKÍ, segir að það
hafi verið mjög hátíðlegt að veita
nýju bílunum viðtöku. RKÍ hafi í 90
ár komið að rekstri sjúkrabíla og
það sé hluti af „DNA-mengi“ fé-
lagsins. Hún segir það löngu tíma-
bært að endurnýja gamla flotann
sem sé úr sér genginn, en nýr bíll
hefur ekki bæst við síðan 2015.
Einhver rekistefna hafi verið í
samningum við ríkið en það hafi
verið leyst með góðu samstarfi
allra aðila. RKÍ er eigandi bílanna
en heilbrigðisstofnanir og slökkvi-
lið um allt land sjái um akstur
þeirra í gegnum þjónustusamning
við ríkið.
Sex bílar hafa þegar þegar verið
teknir í gagnið og nýir munu bæt-
ast ört í flotann. Kristín segir að á
næsta ári verði keyptir 35 bílar til
viðbótar og því um gríðarmikla
fjárfestingu að ræða. Kaupverð
hvers bíls er um 25 milljónir króna
en að hennar sögn er öll fjár-
mögnun tryggð og frágengin.
Nýtt útlit og betri aðstaða
Bílarnir hafa nýtt útlit og eru
með svokölluðu „Battenburg“-
mynstri. Kristín segir að mörgum
finnist þeir komnir í heim kvik-
mynda við þá ásýnd, en bílarnir séu
mun sýnilegri í umferðinni og góð
reynsla sé af slíkum merkingum.
Bílarnir hafa aukið burðarþol og
betri akstureiginleika en þeir eldri
og eru búnir loftfjöðrun sem auð-
veldar mjög akstur á sjúkrabörum
inn og úr afturrými. Ný hönnun að
innan skapar betra umhverfi bæði
fyrir sjúkraflutningamenn og sjúk-
linga. sighvaturb@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sjúkrabílar Rauði krossinn á Íslandi hefur tekið fyrstu skref í stórtækri endurnýjun sjúkrabílaflotans.
Nýir sjúkrabílar
Rauða krossins
Stórtæk endurnýjun bílaflotans